Enginn sósíalismi án sjálfstæðs gjaldmiðils

Andri Sigurðsson
15. október, 2024

Viðreisn og hinir frjálslyndu flokkarnir hafa af stórum hluta gert baráttuna gegn krónunni að aðal baráttumáli sínu síðustu áratugina og nýleg grein Sigmars Guðmundssonar á Vísir.is er engin undan tekning. Þar kennir hann krónunni um öll okkar vandamál, húsnæðiskrísuna, skuldaþrælkunina, vaxtastigið og fleira. En hvers vegna?

Að gera blóraböggul úr sjálfstæðum gjaldmiðli þjónar ákveðnu hlutverki. Það er í fyrsta lagi að afneita hagkerfinu sem stjórnmálaflokkarnir hafa skapað í samvinnu við hægrið og auðvaldið, og í öðru lagi að réttlæta inngöngu í Evrópusambandið sem mun óhjákvæmilega framselja hluta af sjálfstæði landsins til embættismanna í Evrópu og Evrópska seðlabankans. Í þessu tilfelli verður fullveldi Íslands í penigamálum framselt. 

Staðreyndin er að sjálfstæður gjaldmiðill er stór hluti af því að vera sjálfstæð og fullvalda þjóð. Og það sem meira er, sósíalismi án sjálfstæðs gjaldmiðils er ekki dæmi sem gengur upp. Það er það sem vinstrisinnaðir hagfræðingar líkt og Michael Hudson þreytast ekki að benda á. Íslenskir hagfræðingar líkt og Ólafur Margeirsson hafna líka að hátt vaxtastig og öll stóru vandamálin sem íslenskir stjórnmálamenn eru ófærir um að leysa hafi eitthvað að gera með krónuna heldur sé vaxtastigið einfaldlega niðurstaðan úr því hagkerfi sem íslenskir stjórnmálamenn hafi skapað. Eða eins og Ólafur Margeirsson skrifaði í grein 2014: „Háir vext­ir, verð­bólga, við­skipta­halli og geng­is­sveiflur hafa ekk­ert með krón­una að gera heldur stofn­ana­legt umhverfi hag­­kerf­is­ins“.


Markaðshyggju krafist og ríkisvæðing takmörkuð

Breskir vinstrimenn líkt og Tony Benn og Jeremy Corbyn hafa í áratugi bent á að Evran sé ekki samhæfanleg við að byggja upp sósíalískt ríki. Ein forsenda þess er nefnilega að hafa yfir að ráða sjálfstæðum gjaldmiðli sem hægt er að beita til að byggja innviði og stækka efnahagskerfið með því að veita fjármagni til uppbyggingar húsnæðis en líka iðnaðar og innviða. 

„Evrópusambandið hefur einu stjórnarskrána sem er bundin við kapítalisma .. hún gerir út af við möguleikann á sósíalisma alls staðar í Evrópu, og gerir kapítalisma að stjórnarskrábundinni kröfu“ — Tony Benn

Það er margt sem stendur í vegi fyrir því að byggja upp sósíalisma innan ESB. Þar má nefna reglur sambandsins um samkeppni sem leggjast gegn ríkisstuðningi við iðnað sem ESB segir að geti “raskað” samkeppni á hinum frjálsa markaði. Grein 120 í Lissabonsáttmálanum krefst þess að aðildarríki „starfi í samræmi við meginregluna um opið markaðshagkerfi með frjálsri samkeppni“. Markaðshyggja er þannig bundin í lög sambandsins.

Þá bindur Maastrict sáttmálinn hendur aðilarríkja við 3% árlegan fjárhagshalla miðað við landsframleiðslu og að skuldir ríkisins skuli ekki vera meiri en 60%. Þetta þýðir í stuttu máli að niðurskurðarstefnu sé krafist innan ESB. Samskonar reglur voru settar á Íslandi undir miklum áróðri Viðskiptaráðs árið 2015, en þær hafa verið teknar úr sambandi t.d. Í covid eftir okkar eigin hentugleika. Innan ESB gæti Ísland átt yfir höfði sér að taka út refsingar fyrir að fara fram úr fjárlögum. Mikil umræða hefur verið innan hagfræðinnar um tilgang og afleiðingar ríkisskuldasöfnunar, og hvort að ríkisskuldareglur þjóni yfir höfuð einhverjum tilgangi, öðrum en að þrengja að umsvifum hins opinbera – sem var eflaust markmið Viðskiptaráðs á sínum tíma. 

Samkvæmt 101 greinar Lissabonsáttmálans er skylt að „þjónusta sem hefur almenna efnahagslega þýðingu eða er í eðli sínu tekjuskapandi einokun“ sé háð samkeppni. Þetta er gert til að takmarka verulega möguleikann á þjóðnýtingu og til að uppfylla kröfuna þyrfti almennt að brjóta upp og selja starfsemi í eigu hins opinbera. Þarna á réttur markaðarins að ráða en ekki almennings. Þjóðnýting fjármálakerfisins og bankanna, sem er nauðsynleg til að byggja upp sósíalískt ríki, eða annars iðnaðar myndi brjóta gegn sáttmálanum.


Valdleysi verkafólks er vandamálið

Að gera krónuna að blóraböggli er fullkomin afsökun fyrir þá sem vilja ganga í Evrópusambandið því það þýðir að ekki sé hægt að leysa húsnæðislána-, vaxta- og okurvandann á neinn annan hátt en að taka upp annan gjaldmiðil. Það þurfi ekki einu sinni að reyna, allar tilraunir til þess eru jú tilgangslausar með svona “ónýtan” gjaldmiðil eins og krónan er sögð vera. Mörg helstu vandamál Íslands eru þannig smættuð niður í þetta eina atriði. 

En raunverulegt vandamál okkar er ekki sjálfstæður gjaldmiðill, sem vill svo til að heitir króna, heldur hvernig honum er stýrt og fyrir hvaða stétt! Það er spurning sem fólkið í Viðreisn spyr sig aldrei því svarið er stéttin sem þau eru að vinna fyrir, ekki verkafólkið sem Sigmar nefnir ekki einu sinni í greininni heldur kapítalið sem græðir á ástandinu.

Grein Sigmars ber heitið “Vatn rennur ekki upp í móti” en með því heldur hann því ranglega fram að hátt vaxta stig sé náttúrulögmál sem ekki sé hægt að breyta. Það er auðvitað ekkert lögmál. Það sem er hins vegar mikið frekar lögmál er að flestir stjórnmálamenn munu seint setja sig upp á móti hagsmunum kapítalsins sem hefur skapað umhverfið sem er að sliga verka- og launafólk í landinu. Síhækkandi húsnæðisverð og vaxtaokur er gróðastýja hins fjármálavædda kapítalisma sem íslenskt samfélag er byggt í kringum. Sama fjármálakapítalisma sem arðrænir verkafólk í Evrópu. Innganga í Evrópusambandið mun því aðeins þýða að íslenskum almenningi verði kastað úr öskunni í eldinn.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

ESB nei takk

ESB nei takk

Karl Héðinn Kristjánsson

Ég kýs nei við ESB 29. ágúst. Fólk talar mikið um að við eigum einfaldlega að „kíkja í pakkann“. En pakkinn er ekki lokaður …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Nýjustu greinar

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Fólkið á myndunum

Fólkið á myndunum

Guðmundur Brynjólfsson

Á dögunum var mikið úr því gert hérlendis að forsætisráðherra Íslands hefði talað við tvo breska uppgjafar stjórnmálamenn sem halda úti hlaðvarpi, svo málefnalega …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.