Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa
—
Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar um þessar ógnir í Evrópu höfðu þegar verið hraktar en engin hlutlaus grein um efnið hafði samt verið skrifuð um það. Hugveitur og rannsóknarnefndir í hinum ýmsu löndum í Evrópu höfðu tekið málin til athugunar og ekki fundið neinar sannanir fyrir því að þessar ásakanir á hendur Rússa hefðu við rök að styðjast.
Það var samt eins og þessar niðurstöður hefðu ekki verið kynntar eða að þær næðu ekki í gegnum lygavefina sem geta verið flóknir því oftast er ekki um eina lygi að ræða heldur fjölmargar litlar lygasögur sem svo fléttast saman. Oftast er sagt sem svo að „talið sé“ að Rússar standi að baki, án þess að rökstyðja það nánar. Það sem fyllti mælinn hjá Fazi var drónafárið mikla haustið 2025 þegar mörgum flugvöllum var lokað vegna meintrar hættu frá rússneskum drónum.
Fazi birti niðurstöður sínar í langri grein á Substack-síðu sinni undir titlinum „A Russia Hybrid War Narrative. A New NATO Strategy of tension“og styttri samantekt í Responsible Statecraft.
Í grein sinni segir Fazi að varla líði vika í Evrópu án þess að Rússum sé kennt um fjölþáttaárásir. Þetta sé sögð stöðug og vaxandi ógn í álfunni, sem Moskva standi fyrir.
Hann spyr hvort einhverjar sannanir séu fyrir þessum ásökunum. Vitnað sé í gögn og skýrslur þessu til sönnunar, þar sem hver um sig dragi upp nöturlega mynd af atburðunum en séu þessi gögn borin saman segi þau aðrar og mjög misvísandi sögur um sömu atburði.
Ástæðan sé líklega sú að það sé ekki til nein samræmd skilgreining á því hvað fjölþáttaárás sé. Hugtakið geti falið í sér næstum alla skapaða hluti. Í flestum tilvikum sé tengingin við Rússland mjög hæpin eða alls ekki raunhæf.
Árásin á GPS merki flugvélar von der Leyen, eyðilegging kapla í Eystrasalti, DHL áreksturinn í Vilnius og eldur á Heathrow, allt þetta átti sér aðrar skýringar sem ekki komu fram í sviðsljósið.
Drónafárið í Evrópu haustið 2025 reyndist vera tómstundadrónar, flugvélar eða þyrlur, gervihnettir eða jafnvel stjörnur. Þess má geta hér að nákvæm rannsókn á þessu fór fram í Danmörku þar sem ekkert óeðlilegt kom fram, og alls ekki var hægt að tengja atburðina við Rússland. Um drónafárið var líka gerður fræðsluþáttur sem sýndi fram á það sama og birtist í danska sjónvarpinu en ekkert var talað um það hér á landi.
Drónar sem hafa villst inn á flugyfirráðasvæði NATO hafa nær allir verið nálægt úkraínsku landamærunum. Tilvikið við Leipzigflugvöll var kennt Rússum sem gæti vel verið satt en ekki hefur ennþá verið sýnt fram á neinar sannanir.
Svona mætti lengi telja en spurningin er sú hvort þetta sé bara hræðsluáróður frá takkaglöðum fjölmiðlum eða samræmdar aðgerðir Evrópusambandsins og NATO um að telja borgurum trú um að öll Evrópa liggi undir árásum frá Rússlandi.
Orðræðan þjónar margvíslegum tilgangi segir Fazi. Hún hjálpar til við að viðhalda stuðningi við óvinsælt stríð og við að verja fjárauksturinn í vopn og hervæðingu í stað velferðar.
Hún á líka þátt í að réttlæta útilokanir fólks á samfélagsmiðlum og jafnvel afskipti af kosningum eins og í Rúmeníu þar sem þær voru ógiltar vegna meintra afskipta Rússlands sem aldrei voru sönnuð. Burnham forsætisráðherra hélt því jafnvel fram að Rússar hefðu skipt sér af Brexit og stækkunarstjóri Evrópusambandsins talaði um hatursorðræðu frá erlendum öflum, m.a. í Rússlandi, vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi.
Fazi telur að hægt sé að draga þá ályktun að fjölþáttahernaður gegn Evrópu sé stundaður af Evrópusambandinu og NATO sjálfu gegn eigin borgurum. Þetta sé áhyggjuefni í ljósi stigmögnunar stríðsins í Úkraínu með þátttöku Nató sem kalli á aukna stigmögnun frá kjarnorkuveldinu Rússlandi.
Þeir Pascal Lottas á Neutrality Studies og Glenn Diesen á sínu hlaðvarpi hafa báðir birt athyglisverð viðtöl við Thomas Fazi þar sem þeir velta fyrir sér ýmsum hliðum málsins í stærra samhengi. Hér á eftir fer lítillega stytt og þýtt viðtal Glenn Diesen við Thomas Fazi:
Thomas Fazi: Fjölþáttahernaður NATO – blekkingar og viðvarandi stríð
Glenn Diesen: … mér finnst grein þín mjög áhugaverð, sérstaklega þetta hugtak „fjölþáttahernaður“, því það sem gerir fjölþáttahernað áhugaverðan er hvað þetta er óljóst hugtak. Það er óljóst hvað það felur í sér, hvernig maður greinir það og mælir, sem þýðir að það er auðvelt að nota það í áróðri. Ég held að gott dæmi um þetta sé Gerasímov-kenningin sem vestrænir stjórnmálamenn, fjölmiðlar og fræðimenn halda áfram að tala um, sem á að vera rússnesk kenning um fjölþáttahernað. Ég sé herforingja um öll Vesturlönd vísa til hennar sem viðurkenndrar staðreyndar. Jafnvel þótt sá sem bjó hugtakið til, Mark Galeotti, hafi í raun skrifað grein í Foreign Policy undir fyrirsögninni „Mér þykir leitt að hafa búið til Gerasímov-kenninguna“, því hún var einfaldlega uppspuni. Í grunninn byggðist hún á ræðu Gerasímovs þar sem hann lýsti í raun því sem hann taldi vestræn ríki vera að gera gegn Rússlandi.
…
Thomas Fazi: Já. Ég er þér algjörlega sammála. Ég held að þetta sé ótrúlega óljóst hugtak. Það er vísvitandi gert óljóst og ég held að það sé mjög hættulegt, því í raun máir það algjörlega út mörkin milli friðar og stríðs. Alþjóðasamskipti geta aðeins virkað ef skýr greinarmunur er gerður á friði og stríði. Ef menn eru ekki að varpa sprengjum hver á annan ríkir friður, en ef menn eru að varpa sprengjum hver á annan er stríð. Það þarf nokkuð skýran greinarmun til að hægt sé að fóta sig í alþjóðasamskiptum.
Við vitum að ríki njósna hvert um annað og reyna, í meira eða minna mæli, að hafa áhrif hvert á annað í eigin þágu. Enginn gerir það í ríkari mæli og víðar en Bandaríkin sjálf. Þannig að hugmyndin um að ríki reyni að hafa áhrif hvert á annað er auðvitað ekkert ný.
Hugsið um kalda stríðið. Auðvitað voru blokkirnar tvær stöðugt að reyna að hafa áhrif hvor á aðra, oft með leynilegum hætti. Það var ýmislegt ansi skrýtið í gangi, frá báðum hliðum, en maður heyrði ekki vestræna leiðtoga segja: „Við erum í fjölþáttastríði við Sovétríkin,“ Þvert á móti reyndu menn að halda slíku leyndu. Menn vildu ekki að almenningur vissi að Sovétmenn væru að bralla eitthvað grunsamlegt á eigin landsvæði, jafnvel þótt það væri auðvitað að gerast, og öfugt.
Raunar myndi ég segja að það hafi gerst í mun meira mæli á sovésku landsvæði af hálfu NATO-blokkarinnar en það sem við sjáum í dag er í raun hið gagnstæða. Linnulaus notkun á þessari orðræðu um fjölþáttastríð, þrátt fyrir að engar raunverulegar sannanir séu fyrir því að það eigi sér stað, ekki einu sinni í mæli sem er sambærilegur við það sem gekk á í kalda stríðinu.
… ég byrjaði reyndar að vinna að þessari grein síðla árs 2025, þegar móðursýkin vegna rússnesku drónanna stóð sem hæst. Þá hugsaði ég: allt í lagi, ég vil virkilega sjá hvaða sannanir eru fyrir hverju og einu af þessum meintu tilvikum þar sem rússneskir drónar fóru inn á yfirráðasvæði NATO. Fólk man að á þeim tíma gerðist þetta nánast daglega, ekki satt? Drónar sáust út um alla Evrópu og sökinni var umsvifalaust skellt á Rússa. Þannig að ég fór að fara rækilega yfir hvert einasta af þessum tilvikum. …
En ég hafði ekki undan. Áður en ég gat hrakið eitt tilvik höfðu þegar komið fram fimm aðrar fullyrðingar í fjölmiðlum um að meintir rússneskir drónar hefðu sést.
Hvernig áróðurinn virkar
Þetta fékk mig þó til að átta mig á því hvernig áróður virkar nú á dögum, eða að minnsta kosti einni af þeim leiðum sem hann virkar eftir: Hann býr ekki til eina stóra, úthugsaða lygi, heldur þúsundir lítilla lyga.
Það er mjög áhrifaríkt, því maður getur hrakið eina eða tvær, en þá eru þegar 50 aðrar tilbúnar svo þeir eru alltaf skrefi á undan. Raunar hafa margar þessara fullyrðinga verið hraktar hver fyrir sig. En í fyrsta lagi vita flestir ekkert af því, því leiðréttingar á upphaflegu fullyrðingunum fá aðeins brot af þeirri umfjöllun sem fullyrðingarnar fengu. Þannig að jafnvel þegar meint tilvik rússnesks fjölþáttahernaðar er að lokum hrakið að fullu, jafnvel af meginstraumsfjölmiðlum, heyra flestir ekki af því, því hrakningin fær nánast enga umfjöllun.
Mér fannst þörf á heildstæðri greiningu á öllum helstu tilvikunum. Að setja fram greiningu sem væri eins konar mótgagnagrunnur. Það eru til margir gagnagrunnar yfir meint tilvik rússnesks fjölþáttahernaðar. Ég vildi búa til mótgagnagrunn. Upprunalega greinin er því mjög löng, 15 blaðsíður, því ég vildi virkilega fara yfir nánast hverja einustu fullyrðingu.
Það sem er virkilega furðulegt er að nánast allar þessar fullyrðingar um meintan rússneskan fjölþáttahernað hrynja við einfalda skoðun. Í nánast öllum þessum tilvikum eru engar sannanir fyrir því að Rússland hafi staðið á bak þessi atvik. Í sumum tilvikum átti atvikið sjálft sér í raun aldrei stað. Sem sagt uppspuni.
Eystrasaltsstrengir, flugslys í Litháen og Heathrow
Þetta er nokkuð sem fór í raun að færast í aukana árið 2024. Hugtakið hefur auðvitað verið til í nokkurn tíma og hugmyndin um rússnesk afskipti hefur augljóslega verið til langalengi, að minnsta kosti frá Russiagate. Sjálft hugtakið „fjölþáttastríð“ fer í raun að birtast að marki í opinberri umræðu árið 2024.
Ein af fyrstu stóru fullyrðingunum um að Rússland væri að færa stríðið til Evrópu var fullyrðingin um sæstrengina í Eystrasalti, sem höfðu orðið fyrir skemmdarverkum. Þetta var í nóvember 2024. Á þeim tíma voru víðtækar vangaveltur um að Rússland stæði á bak við skemmdirnar á strengjunum. Það væri verið að nota eitt af skipum svonefnds „skuggaflota“ til að skemma strengina. Í ljós kom þó að lokum að strengirnir höfðu verið skemmdir af skipum sem sigldu undir fána Hong Kong og Kína. Ekkert rússneskt skip kom þar við sögu. Raunar var staðfest að skemmdirnar hefðu að mestu orðið af slysni af völdum þessara skipa. Engin aðkoma Rússa, hvorki meiri né minni, en gríðarleg umfjöllun um málið.
Ég sé enn fólk á netinu sem vísar enn og aftur í skemmdu strengina og fullyrðir að þar sé augljóst dæmi um rússnesk skemmdarverk, jafnvel þótt sú fullyrðing hafi verið hrakin að fullu. …
Þetta markar í raun mynstrið fyrir allar síðari fullyrðingar. Skömmu síðar hrapaði flutningavél DHL í Litháen. Gefið var í skyn eða beinlínis fullyrt af fólki á borð við Annalenu Baerbock, þá utanríkisráðherra Þýskalands, að Rússar stæðu að öllum líkindum á bak við atvikið, og að þetta væri í öllu falli „fjölþáttaárás“, sagði Baerbock, hvað sem það nú þýðir. Allavega fór fram rannsókn sem leiddi í ljós að slysið hefði í raun stafað af mistökum flugmanns.
Síðan, snemma árs 2025, kviknaði eldur á Heathrow-flugvelli. Aftur stigu nokkrir einstaklingar með tengsl við leyniþjónustur fram í breskum fjölmiðlum og fullyrtu að Rússar stæðu að öllum líkindum á bak við það. Það fór fram rannsókn og þá kom í ljós að þetta var einfaldlega vegna skorts á viðhaldi. Fyrirtækið sem átti að sjá um viðhald þessarar spennistöðvar hafði vanrækt það, og þess vegna kviknaði eldurinn.
Maður sér þetta mynstur endurtaka sig aftur og aftur, þessar fráleitu fullyrðingar um að Rússar standi á bak við öll þessi atvik. Það er alltaf eitthvað gefið í skyn. Maður getur nánast séð hvenær er verið að ljúga, jafnvel í fyrirsögnunum stendur að „talið sé“ að Rússar hafi gert þetta og hitt. Þá veit maður að jafnvel þeir sjálfir hafa alvarlegar efasemdir um það sem þeir segja. Með orðalaginu eru þeir auðvitað bara að tryggja sig fyrir þann dag þegar fullyrðingin verður loks hrakin.
Drónabylgjan haustið 2025 og niðurstöður rannsókna
Svo sér maður verða verulega stigmögnun: það er skrúfað upp í frásögninni um fjölþáttastríð seint á árinu 2025 með drónamóðursýkinni, sem ég nefndi áðan. Fólk man eftir því að varla leið sá dagur að ekki sæist dróni nálægt flugvelli eða herstöð, og nokkrum flugvöllum var meira að segja lokað tímabundið á þeim tíma. Á þessum tímapunkti voru evrópsku leiðtogarnir farnir að saka Rússa opinskátt um að standa á bak við þetta. … Merz sagði að Rússar stæðu á bak við flest þessi drónaflug, ekki satt? Þetta eru mjög sértækar og beinar ásakanir, ekki bara að evrópskir flugvellir væru umkringdir drónum, heldur að Rússar stæðu á bak við flesta þessa dróna. Við sáum fráleitar fullyrðingar frá öðrum evrópskum leiðtogum. Danskur stjórnmálamaður líkti þessu við okkar eigin 11. september…
Það fóru fram nokkrar óháðar rannsóknir, bæði af hálfu lögreglu og dagblaða, og svo óháðra fjölmiðla. Hollenskur miðill skoðaði um 60 tilvik um meint rússnesk drónafyrirbrigði (sýnir) og fann nánast engar vísbendingar um að Rússar stæðu á bak við nokkurt þeirra, og að í mörgum tilvikum hafi það sem fólk sá, ekki einu sinni verið drónar. Þeir skráðu tilvik þar sem fólk hafði ruglað þyrlum og flugvélum, og í sumum tilvikum jafnvel stjörnum, saman við dróna. Nýlega var litháísk orrustuþota send á loft til að skjóta niður meintan dróna, sem var þá fuglahópur. Þannig að nánast engar vísbendingar eru um að þessi mikla drónaherferð hafi nokkurn tíma átt sér stað og enn færri vísbendingar um að Rússar hafi staðið á bak við hana.
Þetta er mynstrið sem maður sér í nánast öllum þessum fullyrðingum. Ég hef skoðað þær allar mjög ítarlega, en ég þurfti í raun ekki að vinna mikið af rannsóknarvinnunni sjálfur, vegna þess að flestar þeirra höfðu þegar verið hraktar hver fyrir sig, eins og ég segi. Ég tek einfaldlega saman öll tilvikin þar sem upphaflega fullyrðingin um rússnesk afskipti, fjölþáttahernað eða hvað sem er, var á endanum hrakin. Ég held að þetta ætti að minnsta kosti að vera tilefni til ákveðinnar tortryggni gagnvart framtíðarfullyrðingum um hvað Rússar hafi staðið á bak við.
ESB- og NATO-valdakerfið hefur ekki mjög góðan feril þegar kemur að þessum fullyrðingum um fjölþáttahernað. Það eru fleiri dæmi. Ég held að við munum öll eftir því þegar, að sögn, truflað var GPS-merki flugvélar Ursulu von der Leyen yfir Búlgaríu. Innan fárra klukkustunda kom í ljós að sagan var í raun hreinn uppspuni. Politico greindi frá því að vélin hefði aldrei misst GPS-merkið eða flugmennirnir þurft að nota pappírskort til að lenda vélinni, eins og blöðin greindu frá.
Því var haldið fram að rússneskur dróni hefði reynt að granda flugvél sem Zelenskí var um borð í yfir Moldóvu. Síðan kom í ljós að moldóvsk yfirvöld sögðu: já, rússneskir drónar villtust inn í lofthelgi okkar, en það var 160 kílómetrum frá þeim stað sem flugvél Zelenskís var. Þannig að það þarf ekki alltaf að skálda sögu frá grunni. Rússneskir drónar villast vissulega inn á yfirráðasvæði NATO. Það er engin ástæða til að neita því. Það er staðreynd, en flest þau lofthelgisbrota eiga sér stað mjög nálægt landamærum Úkraínu og í löndum sem eiga landamæri að Úkraínu.
Í flestum tilvikum virðist nokkuð ljóst að þetta sé óviljandi afleiðing rússneskra drónaárása á Úkraínu. Sumir þessara dróna villast einfaldlega inn á yfirráðasvæði NATO. Raunar hafa vestrænir stjórnmálamenn stundum sagt, þegar slík tilvik hafa komið upp, að þessu hafi ekki verið beint að þeim og hafi ekki verið af ásetningi.
Það er alveg ótrúlegt að sjá hversu litlar sannanir eru fyrir einhverju sem öll pólitíska og fjölmiðlaelíta ESB og NATO fullyrðir nánast daglega að sé staðreynd.
Nord Stream afhjúpar innri mótsagnir
Glenn Diesen: Það er einmitt þetta sem er merkilegt, að allar þessar frásagnir, jafnvel eftir að sannað hefur verið að þær séu rangar, þá lifa frásagnirnar áfram, þær sitja eftir. Maður getur spurt hvort þetta sé ofsóknarbrjálæði eða vísvitandi lygar. Málin sem þú lýstir, þ.e. drónarnir sem sáust nálægt flugvöllum, þar sem síðar meir eru opnuð mál, lögreglan rannsakar og kemst að því að þetta hafi verið ferðamaður eða einhverjir heimamenn. Þannig að menn komast að því að engir Rússar komu við sögu. Samt höldum við áfram að tala um þetta, jafnvel þótt við vitum að það sé ekki satt. Þú nefndir málið um meinta truflun Rússa á GPS-leiðsögu okkar dýrðlega leiðtoga, það mætti segja að kannski hafi þetta verið misskilningur. Þeir lásu flugupplýsingarnar rangt eða eitthvað, en það voru samt ekki einu mistökin. Þeir fullyrtu að hún hefði þurft að hringsóla yfir flugvellinum í klukkutíma en sannað var að svo var ekki. Það gerðist aldrei.
Það er verið að búa til sögur af ásettu ráði. Það er verið að falsa fjölþáttastríð. Þetta veldur mér miklum áhyggjum, því ef maður heldur því fram að Rússland hafi gert eitthvað, þá felur það í sér að maður verði að bregðast við. Það hljómar nánast eins og verið sé að byggja upp rök fyrir stríði.
Ég var að velta því fyrir mér hvað þér hafi fundist um Nord Stream-málið, því það fylgdi sama mynstri. Því var haldið fram að þetta hafi augljóslega verið Rússland, beint úr rússnesku handbókinni. Þeir sprengja upp sína eigin leiðslu. Viðbrögð okkar voru að hervæða Eystrasaltið, setja þrýsting á Kalíníngrad og stigmagna stríðið í Úkraínu. Síðar er okkur svo sagt, allt í lagi, þetta var þá ekki Rússland eftir allt saman.
Þegar Bandaríkin, sem ég tel að hafi staðið á bak við þetta, fóru að reyna að varpa sökinni af sjálfum sér yfir á Úkraínu, þá var fullyrðingin í skýrslunum sú að CIA hefði vitað að Úkraínumenn væru að skipuleggja þetta. Þeir hefðu ætlað að reyna að stöðva það, en verið of seinir, sem er líka athyglisverð fölsk játning, því þá eru þeir að minnsta kosti að segjast hafa vitað fyrirfram að þetta hefði ekki verið Rússland. Hvers vegna notuðu þeir þá þennan atburð til að hervæða stjórnmálin, setja þrýsting á Kalíníngrad og stigmagna stríðið í Úkraínu? Þeir viðurkenndu sem sé að þetta væri falsað, að þeir hefðu logið að almenningi til að stigmagna stríðið gegn stærsta kjarnorkuveldi heims. Samt er enginn ábyrgur, er þetta ekki að byggja upp rök fyrir stríði?
Thomas Fazi: Jú, algjörlega. Ég held að Nord Stream-málið standi virkilega upp úr, sem kannski fáránlegasti þátturinn í allri þessari sögu, því okkur er sífellt sagt að Rússland heyi þetta fjölþáttastríð gegn innviðum Evrópu. Við heyrum þetta mikið. Rússland er að ráðast á innviði Evrópu.
Það er aldrei alveg ljóst hvað átt er við með þessu. Hverjir eru innviðir okkar? Hverjar eru þessar árásir nákvæmlega? Hvernig eiga þær sér stað? Þessar fullyrðingar eru í grundvallaratriðum settar fram án nokkurra sannana en í rauninni var ein mjög alvarleg árás gerð á innviði Evrópu. Það var auðvitað árásin á Nord Stream.
Reyndar mætti segja að það sé eina árásin sem Evrópa hefur orðið fyrir allan þann tíma sem staðgengilsstríðið hefur staðið yfir síðastliðin fjögur og hálft ár, það er í raun eina árásin sem við höfum orðið fyrir á innviði okkar. Reyndar er þetta alvarlegasta tilvik iðnaðarhryðjuverka sem Evrópa hefur nokkurn tíma orðið fyrir.
Við vitum að Rússland stóð ekki á bak við það, heldur, að minnsta kosti samkvæmt opinberu sögunni, gerði Úkraína það.
Nú vitum við auðvitað að það er mjög ólíklegt að Úkraína hafi gert þetta upp á eigin spýtur og hún naut líklega stuðnings Bandaríkjanna og NATO. Það er athyglisvert, að jafnvel samkvæmt opinberu frásögninni gerði Úkraína þetta, ekki satt? Jafnvel samkvæmt fréttum meginstraumsmiðla náði þetta ansi hátt upp í úkraínsku stjórnkeðjuna; að minnsta kosti vitum við, samkvæmt fréttum meginstraumsmiðla, að Zelensky vissi af þessu, en var sagður hafa verið andvígur því á einhverjum tímapunkti og/eða stutt það á einhverjum tímapunkti, kannski skipt um skoðun. Það skiptir reyndar ekki máli.
Ég held að þetta sé líklega stærsta gatið í allri þessari sögu og ástæðan fyrir því að við ættum ekki að taka þessar fullyrðingar alvarlega. Ef leiðtogum okkar væri alvara með árásir á innviði okkar, þá myndu þeir taka alvarlegustu árás sem orðið hefur í sögu Evrópu alvarlega.
Við vitum að þeir eru ekki aðeins að hylma yfir með raunverulegu gerendunum. Líklega höfðu þeir vitneskju um þetta fyrir fram, ef ekki beina aðild. Að minnsta kosti áttu mikilvægir hlutar NATO-elítunnar beina aðild að þessu. Þegar öllu er á botninn hvolft held ég að það sé mjög erfitt að afgreiða þetta einfaldlega sem tilvik um sameiginlegt ofsóknarbrjálæði, tilvik um evrópska leiðtoga sem trúa eigin frásögnum og blaðra langt fram úr sönnunargögnunum. Ég er viss um að það eru hlutar evrópsku elítunnar sem trúa því í alvöru að Rússland sé í þann mund að ráðast á Evrópu.
Þýðing viðvarandi ógnarfrásagna – og endurhervæðing
Það er ljóst að meðal almennings sér maður einhvers konar fjöldamóðursýki myndast vegna þessa linnulausa áróðurs. Þannig að ég er viss um að til eru mjög alvarlegir, virtir fræðimenn sem eru staðfastlega sannfærðir um að þetta fjölþáttastríð eigi sér í raun stað. Þegar maður fer ofar í goggunarröðina, upp á æðstu stig hernaðar-, leyniþjónustu- og stjórnmálavalds í Evrópu og innan NATO, held ég að erfitt sé að halda því fram að þeir láti einfaldlega ofsóknarbrjálæðið ná tökum á sér, ekki satt? Ég held að það sé nokkuð ljóst að þeir setja fram fullyrðingar sem þeir vita að eru rangar. Ég meina, þetta er í raun gamaldags áróður.
Þetta er elsta blaðsíðan í verkfærakistu áróðursins, ekki satt? Þegar maður stendur frammi fyrir kreppum innanlands, bendir maður á utanaðkomandi óvin. Þetta er bókstaflega elsta brellan í bókinni. Rússland hefur alltaf reynst fullkominn kandídat í það hlutverk, allt aftur til Sovétríkjanna og kalda stríðsins. Við vitum af gögnum sem hafa verið gerð opinber, að á meðan leiðtogar NATO héldu því fram opinberlega að Sovétmenn væru staðráðnir í að ráðast á Evrópu, vissu þeir í raun fullvel á bak við tjöldin að Sovétríkin höfðu engin áform um að ráðast á Evrópu. Maður sér mjög svipað gangverk fyrir 50, 60, 70 árum og það sem við sjáum í dag. Ég held að, að því marki sem fjölþáttastríð sé í gangi, þá líti þetta frekar út eins og fjölþáttastríð sem valdakerfi Evrópusambandsins og NATO sjálft heyr gegn eigin almenningi, í formi hugræns eða sálfræðilegs hernaðar til að fá fólk til að trúa því að Rússland sé í þann mund að ráðast á okkur eða hafi í rauninni þegar ráðist á okkur.
Rússland er semsé ekki aðeins að hugsa um að ráðast á okkur, heldur erum við þegar í stríði við Rússland, ekki satt? Vegna þess að þeir heyja fjölþáttastríð gegn okkur. Fullyrðingarnar um fjölþáttahernað Rússa eru sjálfar dæmi um fjölþáttahernað ESB og NATO, ef ég ætti að draga þetta saman í stuttu máli.
Pólitískur ávinningur af þessu er augljós, ekki satt? Við gætum eytt næstu tveimur, þremur klukkutímum í að ræða um það á hve margvíslegan hátt þeir hagnast á þessu. Þetta er auðvitað leið til að réttlæta, leið til að halda spennunni við Rússland eins mikilli og hægt er. Augljóslega er þetta leið til að koma í veg fyrir hvers kyns diplómatískt ferli við Rússland.
Hvernig geturðu tekið þátt í diplómatísku ferli við land sem bókstaflega er að ráðast á þig og á í stríði við þig? Á sama tíma og NATO gerir raunverulegar sprengjuárásir á rússneskt landsvæði mögulegar, um leið og við höldum því fram að það séu þeir sem heyja fjölþáttastríð. Þetta er algjör umsnúningur á veruleikanum.
Þetta réttlætir augljóslega hervæðinguna. Auðvitað þurfum við að vígbúast, því við erum ekki einfaldlega að vígbúast til að verja okkur gegn framtíðarógn, heldur erum við að verja okkur gegn ógn sem er til staðar núna. Það er greinilega pólitískur ávinningur að þessu leyti. Og það er augljóslega efnahagslegur ávinningur fyrir hergagnaiðnaðinn sem vill að þetta stríð haldi áfram og fjárfestir sérstaklega í búnaði og getu gegn drónum. Við fjárfestum sífellt meira í þessu. Það er gríðarlegt brask í gangi í tengslum við þessar fullyrðingar, í þeim skilningi að það eru fyrirtæki sem hagnast beint á þeim.
Annar áhugaverður fróðleiksmoli er að þegar maður skoðar helstu gagnagrunnana um fjölþáttahernað Rússa, þá eru þeir að mestu leyti teknir saman af hugveitum sem hafa bein tengsl við varnarmálakerfið, við vopnaiðnaðinn og í mörgum tilvikum við fyrirtæki sem hagnast einmitt á því að þróa getu gegn drónum.
Upplýsingahernaður, ritskoðun og kosningarnar í Rúmeníu
Hagsmunaárekstrarnir eru í raun alveg ótrúlegir þegar maður skoðar þetta. Gleymum því ekki að það er líka heil upplýsingavídd í þessum meinta fjölþáttahernaði? Fullyrðingarnar um Russiagate, ekki satt? Við höfum í raun lifað í einu stóru Russiagate-gabbi síðasta áratuginn. Í greininni einbeiti ég mér frekar að fullyrðingum um efnislegan fjölþáttahernað, en við vitum að okkur er líka sagt að Rússland stundi linnulausa upplýsingaóreiðu og upplýsingahernað gegn Evrópu. Sannanirnar fyrir þessu eru enn rýrari. Samt er þetta notað til að réttlæta alls kyns atlögur að borgaralegum réttindum fólks, mannréttindum og lýðræðinu sjálfu, í formi ritskoðunar gegn upplýsingaóreiðu eins og t.d. lögunum um stafræna þjónustu, DSA.
Tæki til afskipta af kosningum eins og Lýðræðisskjöldurinn og afskipti og stöðvun lýðræðislegra ferla, eins og við sáum í Rúmeníu árið 2024, þar sem heilar kosningar voru ógiltar á grundvelli meintra rússneskra afskipta sem aldrei voru sönnuð og engar sannanir hafa nokkurn tíma verið lagðar fram fyrir. Það er augljóst að ríkisstjórnir ESB og NATO hafa líka eins konar valdboðsábata af þessari orðræðu. Þær hagnast á þessu á svo mörgum sviðum að ég held að maður verði að velta fyrir sér hvort þær muni á einhverjum tímapunkti, einfaldlega láta sér nægja að mestu leyti að skálda sögur, eða hvort þær muni kannski bara reyna að sviðsetja verknað, efnislega árás og kenna svo Rússlandi um hana.
Gladio, atvikið á Leipzigflugvelli og tilbúnar ógnir
Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem NATO stundaði slíka starfsemi. Við vitum að á tímum hinnar svokölluðu spennuáætlunar (strategia della tensione) á Ítalíu, frá sjöunda til níunda áratugarins, stundaði leynilegur vopnaður her á vegum NATO, kallaður Gladio, hryðjuverk til að hræða almenning og fá hann til að kjósa valdaflokkana og hrekja hann frá lýðræðislegu vinstrinu. Í sumum tilvikum var öfgavinstrisinnuðum hryðjuverkasamtökum kennt um þessar árásir en það hefur meira að segja verið sannað fyrir dómstólum á Ítalíu, að á bak við sum þessara hryðjuverka stæðu ítalskar og bandarískar leyniþjónustur undir verndarvæng NATO. Það væri því ekki í fyrsta sinn sem NATO stundar hryðjuverk til að búa til ógn.
Alvarlegasta fullyrðingin hingað til, sem er atvikið á flugvellinum í Leipzig/Halle, þar sem Þýskaland sakaði Rússland í fyrsta sinn formlega, ekki bara með ásökunum eða vangaveltum um að hafa reynt að fremja hryðjuverk, að sprengja upp flugvél með dróna, búnum sprengiefni í Þýskalandi, sem mistókst að því er virðist. Ég meina, þetta er mjög, mjög alvarleg ásökun, ekki satt? Hér er ekki lengur um vangaveltur að ræða.
Hér eru þýsk yfirvöld að segja það opinberlega svart á hvítu að Rússland hafi reynt að fremja hryðjuverk á þýsku landsvæði. Mjög, mjög alvarleg fullyrðing sem varla nokkrar sannanir voru lagðar fram fyrir. Ég er ekki að fullyrða að þau hafi ekki sannanirnar, en þegar við erum að tala um svona alvarlegar ásakanir væri gott að fá í raun að sjá eitthvað af þeim sönnunum sem yfirvöld segjast hafa. Raunar hafa jafnvel flokkar sem eru andsnúnir ríkjandi valdhöfum, eins og AfD í Þýskalandi, vakið upp alvarlegar spurningar um allt atvikið. Þannig að allt málið er dálítið grunsamlegt, svo ekki sé meira sagt.
Þannig að já, ég held að við verðum að spyrja okkur hvort þeir muni á einhverjum tímapunkti ganga skrefinu lengra, eða hafa þeir nú þegar gengið skrefinu lengra? Ég held að þetta sé mjög alvarleg spurning. Hvað þýðir þetta? Skilurðu hvað ég meina?
Verið að undirbúa jarðveginn fyrir raunverulegt stríð?
Hvert leiðir þetta okkur? Stóra spurningin sem ekkert okkar hefur í raun svar við er sú, hvort verið sé að gera þetta einungis af innanlandsástæðum og efnahagslegum ástæðum? Halda menn að þeir geti haldið þessu á stigi sem þeir ráða við án þess að það fari úr böndunum og verði að allsherjarstríði?
Er kannski verið að undirbúa jarðveginn fyrir allsherjarstríð? Þetta er spurningin sem ekkert okkar getur í raun svarað. Það sem við getum sagt með vissu er að það er svo sannarlega verið að nota þessa frásögn til að réttlæta okkar eigin árásir frá Úkraínu á Rússland.
Reyndar held ég að það hafi verið NATO-náunginn, Ítalinn Dragone sem sagði að í ljósi þessara stigvaxandi fjölþáttaárása gætum við þurft að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn Rússlandi. Að ráðast á Rússland áður en Rússland stigmagnar átökin yfir í hefðbundinn hernað. Það er nú þegar verið að setja fram þessi rök. Að halda því fram að við verðum að vera reiðubúin að beita NATO. Að stigmagna árásir okkar á Rússland sem viðbrögð við þessum fjölþáttahernaði, sem í raun eru mjög litlar sannanir fyrir. Í besta falli er verið að leika ótrúlega hættulegan leik sem gæti algjörlega farið úr böndum hvenær sem er. Í versta falli er verið að undirbúa jarðveginn og undirbúa fólk sálfræðilega til að sætta sig við raunverulegt stríð við Rússland, eins brjálað og það hljómar, en ég held að við getum ekki útilokað það á þessum tímapunkti.
Glenn Diesen: Varðandi hryðjuverk NATO gegn eigin borgurum. Í eyrum margra mun þetta hljóma eins samsæriskenning eða mæta tortryggni, en það merkilega er að Evrópuþingið samþykkti meira að segja ályktun varðandi þetta í nóvember 1990. Þannig að menn vissu að þetta hefði átt sér stað í kalda stríðinu.
Það er að segja, að NATO hefði staðið fyrir hryðjuverkaárásum gegn eigin fólki, og hvöttu til þess að því yrði hætt. Þetta er staðreynd sem hefur samt nánast fallið í gleymsku vegna þess að enginn vill heyra um það. Við viljum láta eins og það gæti ekki staðist. Þú nefndir að þetta hefði í raun byrjað að magnast, fyrir fimm árum.
Russiagate og þrautseigja rangra fullyrðinga
En hvernig líturðu á sterkar rætur þessa fyrir áratug síðan með Russiagate? Fyrir mér var þetta með ólíkindum. Árum saman voru fyrirsagnir á hverjum degi með þessum brjáluðu fullyrðingum um að Trump væri þessi Manchurian-frambjóðandi, þessi útsendari Kremlar sem Pútín hefði komið þangað. Allar fullyrðingarnar reyndust rangar en þótt þær væru rangar virtist frásögnin sitja eftir. Í hverri þjóðaratkvæðagreiðslu og kosningum sem fóru á “ rangan veg“ þóttust menn sjá einhverja rússneska hönd á bak við það, jafnvel þótt það væri aldrei sannað.
Það er meira að segja til það sem kalla mætti Russiagate 2, það var árið 2020, þegar þeir óttuðust að Trump gæti unnið annað kjörtímabil þegar hann bauð sig fram gegn Biden. Hvað gerðu þeir? Upp kom þetta hneyksli um fartölvu Biden-fjölskyldunnar, sem ógnaði framboði Bidens, og þeir ritskoðuðu allt saman. Sagt var að þetta væri aðgerð rússnesku leyniþjónustunnar og allir miðlar voru ritskoðaðir, Facebook, Twitter, allt. Svo kom í ljós að þetta var víst ekki Rússland eftir allt saman.
Fyrir mér er þetta með ólíkindum því það sýndi að bandarískar leyniþjónustur höfðu afskipti af bandarísku kosningunum og þær gerðu það aftur, með því að benda á rússnesk afskipti, sem áttu sér aldrei stað, til þess svo að hafa sjálfar afskipti.
Það má líka nefna Afganistan, það var sagt að Rússland hefði lagt fé til höfuðs bandarískum hermönnum í Afganistan. Háttsettir bandarískir embættismenn fordæmdu Trump fyrir að svara Rússlandi ekki í sömu mynt. Susan Rice sagði að við ættum að svara strax. Trump yrði að fyrirskipa að rússneskir hershöfðingjar yrðu drepnir, en þetta reyndist uppspuni. Það gerðist aldrei. Það voru engar sannanir. Hvernig lítur þú á Russiagate?
Thomas Fazi: Við munum alltaf eiga mjög ljúfar minningar um Russiagate því það var hin upprunalega lygi, þegar þetta allt byrjaði, ekki satt? Maður hefði haldið að þegar FBI þurfti bókstaflega að stíga fram og segja að þetta hefði allt verið uppspuni, að það væru engar sannanir, þá myndu þeir breyta um aðferðir og segja, allt í lagi, kannski var þetta aðeins of langt gengið. Við megum ekki verða uppvísir að því að ljúga svona blygðunarlaust um eitthvað svona stórt. Við getum ekki bara snúið aftur til svona hluta. Við þurfum að taka okkur á og kannski koma með trúverðugri áróður.
En í raun gerðu þeir þveröfugt. Ég meina, þeir hafa verið að spinna afbrigði af Russiagate allar götur síðan, sérstaklega í Evrópu. Það er eiginlega vandræðalegt hvernig bókstaflega allt sem gerist nú til dags, allt sem valdinu líkar ekki, er Rússlandi kennt um. Hversu heimskt halda þeir að fólk sé?
Satt að segja skammast ég mín hálfpartinn fyrir hversu lágt áróðurinn hefur sokkið. Ég man þá tíð þegar áróður var í raun býsna áhrifaríkur, býsna fínlegur, býsna góður. En nú til dags, þegar maður sér Rússlandi kennt um niðurstöðu íslensku þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB, þegar Rússlandi er kennt um óeirðir á götum Evrópu, þegar Rússlandi er kennt um nánast allar kosninganiðurstöður sem þeim líkar ekki, þá er það í raun alveg ótrúlegt. Engar sannanir eru nokkurn tímann lagðar fram. Í sumum tilvikum eru þessar fullyrðingar þegar hraktar algjörlega.
Ein sem ég hef mikið dálæti á er stóra skúbbið hjá El Mundo fyrir um mánuði. Blaðamaður hjá El Mundo hélt því fram að heimildarmaður innan lettnesku leyniþjónustunnar hefði sagt honum að til væri mjög leynileg skýrsla frá CIA þar sem fram kæmi að Rússar væru að hlaða vopnuðum drónum um borð í kaupskip sín á Miðjarðarhafi svo þeir gætu ráðist á lönd sem liggja að Miðjarðarhafinu eða eru nálægt því. Og ég held að Ítalía og Spánn hafi verið nefnd, jafnvel Frakkland.
Innan fárra klukkustunda bergmálaði þessi fullyrðing um allt áróðurskerfi Vesturlanda, ef svo má segja. Innan nokkurra klukkustunda sögðu bæði varnarmálaráðherra Ítalíu og Macron sjálfur: Við höfum ekki séð neinar vísbendingar um þessa skýrslu. Enginn hefur varað okkur við því að Rússar séu að hlaða drónum á skip og séu við það að ráðast á okkur, en einhvern veginn veit einhver blaðamaður úti í bæ hjá El Mundo af þessari skýrslu sem hefur ekki verið sýnd neinni af ríkisstjórnum Evrópu, NATO-ríkjanna, sem áttu víst að vera skotmörk þessa illvíga rússneska samsæris. Enn og aftur kom samt engin leiðrétting, engin afsökunarbeiðni. Þeir halda bara áfram?
Ég held að þetta sé eins konar óvandaður en samt áhrifaríkur áróður í þeim skilningi að maður kemur ekki með eina stóra, útpælda lygi. Maður kemur bara með milljón litlar, frekar lélegar lygar. Það skapar bakgrunnshávaða, Rússland, Rússland! Ég er viss um að til eru sálfræðilegar rannsóknir á þessu, að ef maður heyrir alltaf Rússland, Rússland, Rússland … þá trúir maður kannski ekki hverri einustu sögu, en á endanum situr eftir að eitthvað hljóti að vera í gangi, ég heyri stöðugt um Rússa að gera okkur eitthvað illt, að ekki sé minnst á þá staðreynd að venjulegt fólk hefur augljóslega ekki tíma til að kynna sér málið, og leiðréttingar fá enga umfjöllun, þá virkar áróðurinn samt.
Ég er viss um að flestir halda enn að Russiagate hafi verið raunverulegt. Reyndar sé ég enn alvarlega blaðamenn og álitsgjafa halda því fram að það hafi aldrei verið hrakið, heldur hafi það í raun gerst. Enn þann dag í dag sér maður fólk ríghalda í þá frásögn. Ég held að við þurfum líka að efast um árangurinn. Við höfum auðvitað verið að tala um að það séu hópar í samfélaginu, sérstaklega myndi ég segja sérfræðinga- og stjórnendastéttir, fræðimenn, mjög alvörugefið fólk, sem hefur tilhneigingu til að trúa þessum áróðri, en venjulegt fólk trúir honum æ síður. Svo ég held að það sé jákvæði lærdómurinn af þessu öllu, að það virkar í raun ekki lengur. Líttu á skoðanakannanir á Ítalíu, þær hafa verið nánast óbreyttar síðan 2022. Enginn styður það að Ítalía dragist inn í staðgengilsstríðið gegn Rússlandi.
Ef áróðurinn bregst þeim grípa þeir til undirokunar
Ég held reyndar að varnarmálaráðherrann okkar hafi sagt um daginn að hann viðurkenni að meirihluti Ítala sé á móti því að senda vopn til Úkraínu. En hann sagði líka: Þegar fólkið hefur rangt fyrir sér verðum við samt að gera það sem er rétt! Ég býst við að þetta segi manni líka mikið um hugmyndir þeirra um lýðræði, hérna á okkar dásamlegu frjálslyndu lýðræðislegu Vesturlöndum. Jafnvel að viðurkenningu okkar eigin varnarmálaráðherra er meirihluti Ítala andvígur þessu staðgengilsstríði þrátt fyrir margra ára linnulausan áróður. Engin alvörugefin manneskja á Ítalíu trúir því að Rússland sé við það að ráðast á Ítalíu, né neitt annað Evrópuland reyndar. Kannski er það að þeir séu orðnir svona óvandaðir í áróðrinum líka merki um örvæntingu, sem gefur vissa von.
En það þýðir líka að inngrip þeirra eru að verða meira kúgandi í þeim skilningi að þegar áróðurinn bregst og hættir að virka þurfa þeir að draga fram þungavopnin. Þungavopnin eru hin pólitíska undirokun gagnrýnisradda eins og er að gerast í Evrópu, afskipti af kosningum, bönn við flokkum, bönn við gagnrýni o.s.frv.
Glenn Diesen: Það sem þú lýstir hér er lykilþáttur í pólitískum áróðri, hann nýtir sér veikleika í mannlegu eðli. Það er að segja, að manneskjur hafa tilhneigingu til að rugla saman því sem hljómar kunnuglega og sannleikanum.
Ef maður segir einhver þúsund smályga, skiptir engu máli þótt þær séu allar hraktar. Ef maður heyrir þær nógu oft … hljóma þær svo kunnuglega að fólk trúir þeim.










