Arabískar nætur
—
Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins sem «misheppnuð ríki»).
Í hinu hnattræna norðri ganga nær öll börn í skóla, þar sem þau eru rækilega – verum hreinskilin – innrætt til að trúa á tiltekin gildi, hvort sem þau eru trúarleg, menningarleg eða pólitísk. Sem er – verum aftur hreinskilin – fullkomlega eðlilegt.
Því miður hafa þó ýmsar mikilvægar upplýsingar tilhneigingu til að vera kerfisbundið skildar út undan í námskránni. Á meðan nemendur læra um Shakespeare, Heródótos og frásögn Sesars af Gallastríðunum hafa þeir ekki einu sinni heyrt minnst á sígild verk frá hinni hliðinni.
Til dæmis:
- Franz Fanon, Les Damnés de la terre (Hinir fordæmdu á jörðu), um nýlendukúgun hugans í Afríku, nánar tiltekið í Alsír.
- Eduardo Galeano, Las venas abiertas de América Latina (Opnar æðar Rómönsku Ameríku), um nýlendurán á auðlindum, mannlegum sem öðrum, frá Rómönsku Ameríku.
- Edward Said, Orientalism (Austurlandafræði), um stýringu nýnýlendustefnunnar á hugmyndum fólks um hin svokölluðu Mið-Austurlönd.

Þið hafið væntanlega skilið að með „hinni hliðinni“ á ég við hið hnattræna suður, þann hluta heimsins sem háttsettur afrískur stjórnarerindreki sagði eitt sinn um: „Já, við skiljum: okkur má fórna.“
Arabíuskaginn kom okkur að gagni að því marki sem hann útvegaði okkur olíu. Nú stendur svæðið bókstaflega í ljósum logum. Sprengjum rignir út um allt; það sem knýr bílana okkar, dráttarvélar, flugvélar, skriðdreka o.s.frv. brennur. Búist er við að þetta bál hafi gríðarlegar neikvæðar og langvarandi afleiðingar fyrir loftslagið, en einnig fyrir matvælaframleiðslu heimsins, eldsneytisverð og „efnahaginn“.
Hverjum er um að kenna?
1) Hinn 28. febrúar á þessu ári gerði ísraelski flugherinn (með 50 flugvélum og yfir 100 sprengjum) fyrirvaralausa morðárás á hið friðsama Íran og drap meðal annarra æðsta leiðtogann, Ali Khamenei.
2) Sama dag, 28. febrúar á þessu ári, gerðu Bandaríkin í þrígang sprengjuárás á sama grunnskóla í Minab og drápu 156 óbreytta borgara, þar af 120 skólabörn.
3) Gestir frá Jemen við útför Ali Khameneis í júlí komust að því við heimkomuna að Sádi-Arabía var að gera sprengjuárásir á flugvöllinn í höfiuðborginni Sanaa, og tóku upp stríð sitt gegn AnsarAllah sem hafði legið niðri frá 2022.
Afleiðingarnar eru vel þekktar:
a) Íran gerði sprengjuárásir á bandarísk hernaðarmannvirki í nágrannalöndunum og lokaði Hormússundi
b) Jemen og Sádi-Arabía eiga enn á ný í stríði.
Ef marka má skeytingarleysi hinna ömurlegu meginstraumsmiðla gagnvart hneykslanlegri ræðu Marcos Rubio hjá Akrópólis [í Aþenu] um daginn hafa blaðamenn alls ekki lært mannkynssögu. Að sögn Rubio var vagga mannlegrar siðmenningar í Grikklandi og „við“ (Hinn vestræni maður, einkum Hinn bandaríski maður) skuldum heiminum það að vísa honum veginn. Rubio höfðar til Evrópu og hvetur okkur til að taka þátt í baráttunni: „Við viljum sigra saman. Við verðum að sigra saman.“
Þótt sífellt óþægilegri veruleiki efnahagslegrar, iðnaðarlegrar og siðferðilegrar stöðu okkar sé hulinn réttlætingum viðurkenna jafnvel hinir illgjörnu meginstraumsmiðlar að Bandaríkin hafi sem stendur ekki yfirhöndina gegn Íran og að Sádi-Arabía, langvarandi bandamaður Bandaríkjanna, hafi hingað til reynst ófær um að yfirbuga kvalara sína, „Hútana“. En þeir skilja ekki hvers vegna.
Eitt sinn var til stétt blaðamanna sem leitaðist óþreytandi við að skilja «hvernig og hvers vegna» átök verða. Svo gætt sé sanngirni skal þess getið að nú fer fjölgandi óhefðbundnum fjölmiðlum sem reyna að skilja og greina atburði líðandi stundar og miðla niðurstöðum sínum hver til annars, rétt eins og ég er í þann mund að miðla nýjustu þekkingu minni. En nú til dags eru heimildarmenn mínir sjaldnast blaðamenn. Þeir eru fyrrverandi leyniþjónustumenn, fyrrverandi diplómatar, markaðsgreinendur og verðbréfamiðlarar, í stuttu máli fólk sem ég hef jafnan borið djúpt vantraust til.
Þetta eru því undarlegir tímar á svo marga vegu. Þetta eru tímar þegar auðæfi standa á brauðfótum (sbr. „móðir allra bóla”), þegar jafnvel konungsríki riða til falls, nokkuð sem hin illgjarna meginstraumspressa segir okkur ekki frá. En staðreyndirnar eru dregnar upp mjög skýrt og hnitmiðað í þessari afar löngu inngangsgrein hér: The Fall of Saudi Arabia? Í greininni er vitnað talsvert í Alastair Crooke, fyrrverandi starfsmann MI6, en greiningum hans dáist ég mjög að, og einnig Chas Freeman, en samtölum hans við Glenn Diesen hef ég jafnan mikla ánægju af.
Eins og Edward Said heitinn varaði við árið 2003:
Það er munur á þekkingu á öðrum þjóðum og öðrum tímum sem sprottin er af skilningi, samkennd, vandlegum rannsóknum og greiningu þeirra sjálfra vegna, og hins vegar þekkingu sem er hluti af allsherjarherferð sjálfsupphafningar. Það er, þegar öllu er á botninn hvolft, djúpstæður munur á viljanum til að skilja í þágu sambúðar og víkkunar sjóndeildarhringsins og viljanum til að drottna í þágu yfirráða.
Mig grunar að Alastair Crooke þekki vel hugmyndir Edwards Said. Mig grunar að hann, líkt og ýmsir aðrir fyrrverandi leyniþjónustumenn, sbr. Veteran Intelligence Professionals for Sanity (VIPS), fordæmi stóran hluta þeirrar eyðileggingar sem fyrrverandi vinnuveitandi hans hefur valdið. Hann er að minnsta kosti ekki hrifinn af núverandi utanríkisstefnu hins pólitíska Vesturs:
Í dag … er stríðshættan enn fyrir hendi og hún eykst vegna þess að Vesturlönd neita að hlusta á – eða skilja – það sem fullvalda menningarríki eru að segja. Þessi vanhæfni til að hlusta af skilningi liggur að baki hörmulegum mistúlkunum vestrænna leyniþjónustustofnana á Íran og Rússlandi. Og því að Kína er gert að „hinum“ svo að það verði lokuð bók í augum Vesturlanda.
Heimild: A World Turned Upside Down.
Alastair Crooke veit meira um Vestur-Asíu en flestir. Hann skrifar:
Mohammed Bin Salman Is More at Risk Internally Than from AnsarAllah Attacks. Hvers vegna? Vegna þess að konungsríki hans er tilbúin smíð. Allt svæðið var leikfang hrokafullra nýlenduvelda og er nú lítið annað en nokkrir sandkastalar.
Mohammed bin Salman (MBS) hefur eignast marga óvini með því að umbreyta konungsríkinu, ekki í átt að þjóðríki, heldur fremur í átt að því að verða eign einnar fjölskyldu. Hann hefur safnað gífurlegum pólitískum, efnahagslegum og öryggislegum völdum í hendur sinnar nánustu fjölskyldugreinar og fer með alræðisvald.
Ný-nýlenduveldin, einkum Bandaríkin, hafa átt samskipti við sínar eigin pappaeftirmyndir, ekki við þjóðir; og flest okkar hin þekkjum ríkin á Arabíuskaganum aðeins í gegnum prisma ný-nýlendustefnunnar. Tökum Jemen sem dæmi. Okkur er sagt að «Hútar» séu leppar Írans. Svo er alls ekki, að sögn Alastairs Crooke:
AnsarAllah stendur ekki fyrir hugmyndaramma hinna tólf-ímama sjíatrúar, nokkuð sem Sádar í áróðri sínum gætu auðveldlega lýst sem „írönsku prósjekti“. Jemen undir stjórn AnsarAllah hefur sinn eigin hugmyndafræðilega ramma, guðfræðilegar hefðir, stjórnmálasögu og stjórnkerfi. Hvorki AnsarAllah né hinar víðtækari fylkingar sem styðja stjórnvöldin í Sana’a verða einfaldlega smættaðar niður í einn trúflokk eða eina samfélagsstétt.
Í jemensku landslagi AnsarAllah eru hanafí-súnnítar, zaydítar, jarúdítar, ismaílítar og aðrir íslamskir skólar, og jafnvel eru salafískir hópar að einhverju leyti til staðar innan hins víðtækara jemenska samfélags.
Svo mörg gjörsamlega óþekkt nöfn! Íbúar Jemens eiga sér raunverulega sjálfsmynd – ekki aðeins nýlendusjálfsmynd – og sögu sem flest okkar vita nákvæmlega ekkert um!
Önnur grein (höfundur óþekktur), sem Alastair Crooke vitnar í, leggur einnig áherslu á þá staðreynd að löndum Vestur-Asíu hafi ekki verið leyft að ráða eigin örlögum:
Hið hefðbundna einkenni Levantsins [löndin fyrir Miðjarðarhafsbotni] er sambúð fjölda þjóðernis- og trúarsamfélaga sem varðveittu sjálfsmynd sína undir hlífiskildi eins yfirburðavalds.
Það yfirburðavald var Tyrkjaveldi. Auðvitað sáu Bretar til þess að við teldum öll vald og ríki Ósmana vera frumstæða plágu. En ég spyr mig nú, í fullri alvöru: Var það nokkuð verra en breska nýlenduveldið? Mig er farið að gruna að hefðu Ungverjar verið undir stjórn Breta frekar en Ósmana hefðu þeir kosið hið síðarnefnda.
Ég hvet ykkur eindregið til að lesa umrædda grein hins nafnlausa höfundar. Titill hennar er langur en ætti að vekja forvitni ykkar:
Saudi Bleeding Out. Jordan on Life Support. Egypt’s Rupture of Being. Age of Resurgence Arrives. (Sádi-Arabíu blæðir út. Jórdanía í öndunarvél. Tilvistarrof Egyptalands. Öld endurreisnar gengur í garð)
Greinin sjálf er einstaklega hnitmiðuð. Auk þess vekur hún, að minnsta kosti hjá mér, fjarlægar minningar um eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Tökum til dæmis eftirfarandi efnisgrein:
Allt þetta afhjúpar blekkingu konungsríkisins. Það er ekki þjóðríki í neinum raunverulegum skilningi. Það er landsvæði í eigu einnar fjölskyldu, þröngvað upp á eyðimerkurættbálka sem halda enn í ættbundna sérhyggju sína. Nú hafa þessir ættbálkar hins vegar áttað sig á augljósum sannleika – Kóngahúsið Sád er byggt á sandi.
Á ögn þurrari nótum:
Endurskipulagning ættbálka er hafin. Á norður- og miðsvæðunum hafa eyðimerkurættbálkarnir Shammar og Anizzah að sögn lokað landamærunum að Jórdaníu og Írak. Í suðri eru fjallaættbálkar, sem hafa söguleg ættartengsl við AnsarAllah, líklegri til að hunsa landamærin að Jemen en að verja krúnuna.
Og brátt kemur í ljós hvort einhver fótur sé fyrir orðrómi um að fulltrúar meira en tug sádiarabískra ættbálka hafi setið með fulltrúum Byltingarvarðarins og viðrað nýjan pólitískan sáttmála – sambandsríki þar sem ættbálkar fengju hlutdeild í olíu- og gastekjum.
Það sem hann skrifar um Jórdaníu og Egyptaland er ekki síður heillandi. En ég ætla ekki að ljóstra upp fleiri af safaríkum smáatriðum hans.
Höfundurinn er vongóður, ef ekki beinlínis bjartsýnn. Ef ég hef skilið Alastair Crook, Chas Freeman og nafnlausa höfundinn rétt vonast þeir allir til þess að Sádi-Arabía biðji Íran um aðstoð við að miðla málum í samkomulagi við Jemen. Þeir efast allir um að Mohammed bin Salman muni lítillækka sig til að gera nokkuð slíkt. En ættbálkarnir eru enn til staðar. Hver veit?
Eins og stendur virðist endurreisn hinnar hefðbundnu skipanar Levantsins ómöguleg, þar sem stór hluti svæðisins hefur verið jafnaður við jörðu og sögulegri miðju þess – Sýrlandi – hefur verið steypt í ringulreið.
En hefðbundna leiðin, sem útilokar ekki önnur trúfélög né krefst sundrungar, er sátt við Íran sem endurreisir samfellu sjía frá Asíu til Miðjarðarhafs. Sú leið opnast á ný ef öryggiskerfi Bandaríkjanna á svæðinu hrynur.
Hver veit hvað fram undan er? Ef Bandaríkjunum verður í raun sparkað út af svæðinu munu kannski gervirríkin, sem sköpuð voru til að þjóna nýlenduveldum, endurskipuleggja sig og rísa upp úr öskunni. Verðum við, Evrópa og Bandaríkin, þá nægilega siðmenntuð til að taka á móti þeim?
Katjana Leifsdóttir Edwardsen er norskur áhugamaður um alþjóðamál. Hún bjó í áratug á Íslandi, á þar börn og skrifar greinar fyrir Neista.









