Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?
—

Tjörvi Schiöth
24. okt, ’26

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin og loforðin—voru allt saman lygar og blekkingar. Þeir vísuðu oft í (misvísandi) könnun sem átti að segja að ánægja væri gríðarmikil meðal fólks í Evrópusambandinu (hátt í 90% í ákveðnum löndum). En núna hafa mikil mótmæli og óeirðir brotist út í eftirfarandi ESB-ríkjum: Frakklandi, Ítalíu, Belgíu, Þýskalandi, Austurríki, Írlandi, Spáni og Portúgal. Svona sýður ekki upp úr nema gríðarmikil óánægja kraumi undir meðal almennings, um lífsskilyrði og/eða stefnu stjórnvalda. 

Það er talað um að lífskjarakrísa (affordability crisis) hafi verið kveikjan að þessu. Það eru auðvitað lélegar stefnur stjórnvalda (nýfrjálshyggja Emmanuel Macron og öfga-miðjunnar) sem hefur leitt til þessarar lífskjarakrísu.

Gult og brúnt merkja lönd mótmæla. Í gulum löndum rísa mótmælaöldurnar hærra.

Hluti af þessu er auðvitað sú stefna að dæla peningum til Úkraínu árum saman (ótaldra milljarða evra) og að vígvæðast í staðinn fyrir að fjárfesta í innviðum og hagkerfinu heima fyrir: heilbrigðiskerfinu, skólakerfinu, félagslega kerfinu o.s.frv. þar sem vantar nauðsynlega fjárfestingu. Efnahagsþvinganirnar gegn Rússlandi hafa leitt til snarhækkaðs orkuverðs (og þar með til aukinnar verðbólgu). Og loks krísan í Persaflóa og lokun Hormússundsins—stríðið gegn Íran sem ESB-ríki tóku ekki afstöðu gegn, þvert á móti fordæmdi Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, Íran fyrir að verja sig—sem hefur leitt til hækkaðs olíuverðs (og þar með aukinnar verðbólgu) á heimsvísu.

Tengist krísan ESB eða ekki?

Fyrir kosninguna í ágúst voru ESB-sinnar stöðugt að segja okkur að þakka mætti ESB fyrir svo mikla efnahagslega velmegun í Evrópu. Þess vegna ættum við að ganga í ESB! Af því það myndi bæta efnahagsástandið hér á landi. En núna, þegar bent er á lífskjarakrísuna í Evrópu, sem hefur leitt til mótmæla og óeirða vítt og breitt um álfuna, þá segja ESB-sinnar: „Þetta kemur ESB ekkert við, þessi mótmæli beinast ekki gegn ESB.“ Nú, ber þá ESB ekki lengur neina ábyrgð á efnahagsástandinu í aðildarríkjunum? Hvort ber það ábyrgð eða ekki ábyrgð?

Ef 1) ESB ber ábyrgð á efnahagsmálum í aðildarríkjunum, þá voru ESB-sinnar að ljúga fyrir kosningarnar þegar þeir sögðu að ESB hefði skapað svona mikla velmegun og ánægju. Það er greinilega ekki rétt þar sem nú ríkja gríðarmikil mótmæli og óeirðir út af lífskjarakrísu.

Ef 2) ESB ber enga ábyrgð á efnahagsmálum í aðildarríkjunum, þá voru ESB-sinnar einnig að ljúga fyrir kosningarnar, vegna þess að þetta stangast á við málflutninginn um að ESB ætti heiðurinn af velmeguninni og ánægjunni. 

Hvor sem niðurstaðan er, þá hafa ESB-sinnar rangt fyrir sér og það sem þeir sögðu fyrir atkvæðagreiðsluna í ágúst var lygar og blekkingar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.