Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september
—
Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir undantekningarlaust er – af nauðsyn – heiðarleiki.
Stjórnmál eru blanda af íshokkíi og póker: Þú brýtur bein andstæðinga þinna og þú svíkur eigin bandamenn. Sjáið Trump forseta: Honum tókst – ekki satt? – að komast á toppinn og hann hefur enn ekki verið ákærður fyrir embættisbrot. Þeir segja að hann skáldi í eyðurnar og hann er vissulega – hvernig skal orða það? – minna „fágaður“ en flestir forverar hans í starfi. En þeir hafa allir – undantekningarlaust – logið linnulaust, af mikilli einurð og blákalt framan í þjóð sína og heiminn.
Verðandi forseti eða forsætisráðherra kann jafnvel að hafa göfugan ásetning. Ég efast til dæmis ekki um að sumir þeirra, jafnvel í Bandaríkjunum, hafi verið knúnir áfram af löngun til að bæta líf samlanda sinna. Þegar þeir eru komnir í embætti læra þeir hins vegar fljótt að „þjóðarhagsmunir“ snúast ekki um velferð venjulegra karla, kvenna og barna, heldur um hagsmuni fyrirtækja, hergagnaiðnaðarins og hagsmuni fjármálastofnana. Hvers vegna? Það er löng saga. Ég býst við að það mætti kalla það „hugmyndasögu“. Til að hafa það á hreinu, leyfið mér þó að minna ykkur á að „þjóðarhagsmunir“, eins og þeir hafa verið skilgreindir af yfirstéttum Evrópu undanfarnar fimm aldir, stjórnuðust ekki eins mikið af „fáfræði“ (til dæmis vangetu til að skilja að fólk með dökkt hörund eða smábændur sé fólk) eins og af einföldum (eigin)hagsmunum.
Hagsmunir stórfyrirtækja krefjast reglulega nýrra auðlinda – olíu, jarðefna, ódýrs vinnuafls o.s.frv. – sem aftur krefst nýlendustefnu með góðu eða illu, t.d. með „valdaskiptaaðgerðum“ eða beinu efnahagslegu eða hernaðarlegu stríði. (Munið þið hvernig Trump forseti daðraði við „samninga í Úkraínu“ kosningabaráttunni og upphafi kjörtímabils síns?) Fjármálahagsmunir (t.d. bankar) krefjast veðsetninga. „Her-iðnaðarsamsteypan“ krefst stríðs. Og einhver verður að halda áfram að kaupa og nota dótið sem stríðsfólkið lætur framleiða.
Frá 1945 hefur Evrópa misst mikið af stolnum erlendum eignum sínum, en hún er enn hluti af hinu pólitíska Vestrið og fagnar ákaft þeim ævintýrum sem yngri stóri bróðirinn vill taka þátt í – sem stjórnast að vanda af eiginhagsmunum yfirstéttarinnar. Kjósendur hafa nákvæmlega ekkert að segja, því enginn forseti eða forsætisráðherra getur breytt leiknum án þess að breyta sjálfu kerfinu.
Mín fyrstu kynni af óteljandi tilraunum Bandaríkjanna til að skaffa sér aukið lebensraum [lífsrými] var sagan af hluteign Dullesbræðra í – og vinnu þeirra fyrir – United Fruit í Gvatemala og valdaráninu gegn Arbenz, forseta landsins, árið 1954. Nú er sannleikurinn í þessu máli viðurkenndur jafnvel af meginstraums fjölmiðlum.
Tíu árum síðar var annar þeirra, Allen Dulles, hins vegar valdamikill andstæðingur Kennedy forseta (sem yfirmaður CIA). Kennedy tókst loksins að reka hann. Hvers vegna var Allen Dulles samt með í Warren-nefndinni sem rannsakaði morðið á Kennedy forseta 1963 ?!!! Rannsókn Warren-nefndarinnar var mín fyrstu kynni af klassískri yfirhylmingu bandaríska „djúpríkisins“.
Það leikur enginn vafi á því að Kennedy átti sér marga óvini: J. Edgar Hoover, svo einn sé nefndur [fyrsti forstjóri FBI og holdgervingur McCartyismans]. Kúbverjar voru sennilega minnsta vandamál hans: Árið 1963 kann að hafa dregið úr verstu öfgum McCarthyismans, en allt til þessa dags eru kröfur um almenna heilbrigðisþjónustu lastaðar sem kommúnismi, og „kommúnismi“ er verst allra skammaryrða í bandarískri tungu.
Með frægri friðarræðu sinni 10. júní 1963, útskriftarræðunni [Commencement Address] kann Kennedy að hafa undirritað sinn eigin dauðadóm. Og frá sjónarhóli lastara hans var yngri bróðir hans, Bobby, sannarlega engu betri, svo þeir sóuðu engum tíma heldur gengu frá honum líka.
Á síðasta ári voru gefin út mikið ritskoðuð skjöl um morðið á JFK. Við fengum að vita að yfirmaður gagnnjósna CIA, James Angleton, framkvæmdi aðgerðir fyrir Ísrael. Það sem einnig kom í ljós, og nú í fyrsta sinn, var að sami Angleton hafði fylgst náið með meintum skotmanni Lee Harvey Oswald allt frá 1959. CIA hafði áður neitað allri vitneskju um þann mann fyrir morðið. Restin mun aðeins koma í ljós þegar þeir sem í hlut eiga, samstarfsmenn þeirra og afkomendur eru löngu horfnir á braut, en eins og Jefferson Morley skrifar í áhugaverðri grein um Angleton og Oswald: „Það sem við sjáum í nýju [2025] JFK-skjölunum er uppskrift að misferli.“
Mín önnur kynni af stórfelldri yfirhylmingu í Bandaríkjunum voru – rétt til getið! – 11. september. Frá útlendu sjónarhorni virtist það raunar algjörlega fáránlegt að fjórum rændum flugvélum væri leyft að fara óáreittar og óhindraðar yfir bandarískt landsvæði. Fáir bandarískir borgarar þora að véfengja hina opinberu frásögn af ótta við að vera stimplaðir „samsæriskenningasmiðir“ (í gamla daga hefðu þeir verið sakaðir um villutrú. Sem var ekkert grín, á Spáni voru villutrúarmenn til dæmis brenndir á báli).
Þann 11. september 2026 skrifaði Kit Klarenberg:
Þótt breskir rannsóknarlögreglumenn hafi að því er virðist talið sig hafa „meira en næg sönnunargögn“ til að fá Bayoumi [sádi-arabískur stjórnrerindreki, í nánu sambandi við a.m.k. tvo flugræningjanna] framseldan til réttarhalda, fyrirskipuðu stjórnvöld í Washington að honum yrði sleppt og hann sneri aftur til Sádi-Arabíu. Andstaða bandarískra yfirvalda er skiljanleg í ljósi yfirgnæfandi magns sönnunargagna sem benda óhjákvæmilega til þess að CIA hafi að minnsta kosti á virkan hátt greitt fyrir árásunum 11. september, ef ekki framkvæmt þær, og notað Sádi-Araba sem blóraböggla.
Ég mæli eindregið með greininni og sterkri rannsóknarblaðamennsku Klarenbergs!
„11. september“ varð hin „nýja Pearl Harbor“ sem nýíhalds-hugveitan Project for a New American Century (PNAC) vísaði til í stefnuskjali sínu, Rebuilding America’s Defences, í september 2000. Í fyrstu málsgrein inngangs þess skjals lesum við að „markmið“ PNAC sé „að stuðla að forystu Bandaríkjanna á heimsvísu“. Skýrslan sagði að endurnýjun Bandaríkjahers og hernaðarandans eftir Kalda stríði væri hins vegar erfið „nema til kæmi hvetjandi hamfaraatburður – í líkingu við Pearl Harbor“. Meðal helstu meðlima PNAC voru Robert Kagan, Dick Cheney og Paul Wolfowitz.
Þetta fólk og samstarfsmenn þeirra og bandamenn áttu síðan eftir að snúa 11. september yfir í „stríðið gegn hryðjuverkum“.
Niðurstaða: Um það bil 4400 bandarískir hermenn létu lífið og 32.000 særðust og um það bil ein milljón ekki-Bandaríkjamanna lét lífið í Íraksstríðinu einu saman. Vaxandi grunur er svo um að sömu aðilar muni einnig bera ábyrgð á dauða þeirra um 3000 sem létust í árásunum 11. september, og þeim þúsundum annarra sem hafa þjáðst af langvinnum heilsufarslegum afleiðingum þess atburðar vegna eitraðra lofttegunda o.s.frv.
Var það þess virði? Það hlýtur að hafa verið það, úr því sömu aðilar hafa háð árásarstríð til hægri og vinstri allt til þessa dags. Nú komumst við að því að olíuútflutningstekjur Íraks hafa verið undir stjórn Bandaríkjanna allt frá hinu ólöglega stríði árið 2003, og að Bandaríkin halda þar af leiðandi Írak í heljargreipum,
Var þá 11. september „árás undir fölsku flaggi“? Í nútíma hernaði, sem byggir á því að vinna stuðning almennings („hjörtu og huga“), eru falsflaggárásir ómissandi hluti af vopnabúrinu. Eftir árásina 11. september samþykkti bandaríska þjóðin „stríðið gegn hryðjuverkum“ og alvarlegar skerðingar á Mannréttindaskránni (Bill of Rights).
Annað dæmi um „árás undir fölsku flaggi“ er líklega „Bucha-fjöldamorðin“ í Úkraínu. Þau hristu Evrópubúa upp úr sínu vanalega ákveðna, óskuldbindandi sinnuleysi. Eftir Bucha hafa hneykslaðir Evrópubúar og Bandaríkjamenn samþykkt hinn gríðarlega hernaðarstuðning við Úkraínu, greiddan af skattfé (Bucha-fjöldamorðin voru næstum örugglega sviðsett, sjá hér).
Ég mun ekki hér ræða hin árásarstríð Bandaríkjanna sem fylgdu í kjölfar hins ofurheppilega „Nýja Pearl Harbour“ þann 11. september, stríð sem voru hluti af „stríðinu gegn hryðjuverkum“. Né mun ég ræða hér 11. september 1973 [Chíle] sem – einnig að undirlagi CIA og Bandaríkjanna – leiddi til 3000 aftaka án dóms og laga, fyrir utan þær um 40.000 manns sem voru pyntaðar og geymdar í fangabúðum Chíle á árunum sem fylgdu.
Né mun ég ræða evrópska „þjóðarhagsmuni“, sannarlega flókið þema, þar sem enginn veit lengur alveg hvað „Evrópa“ þýðir. Fyrir nokkrum dögum sagði hinn vinsæli skoski sjónvarpsmaður og rithöfundur, Neil Oliver, á Duran: „Ef þú byrjar á lygi, þá er það eina sem þú getur gert að halda áfram að ljúga en lygarnar verða sífellt flóknari“. Hlustið á sýn Neil Oliver á ferðalag Evrópu í hliðarheimi.
Leikendurnir sem plotta stríð á fölskum forsendum og falsflaggárásir eru af öllum gerðum, allt frá ungum, metnaðarfullum sérfræðingum sem þrá að komast á toppinn, meðlimum „FIRE-geirans“ (fjármál, tryggingar, fasteignir), olíubarónum, tæknisósíópötum til venjulegra sníkjudýra. Og auðvitað leyniþjónustan og stríðsfólkið.
Sumar af metnaðarfyllstu persónunum eru nógu snjallar til að forðast fyrirsagnirnar. Þessa dagana er sagt að vafasamur karakter að nafni Steven Miller stjórni Trump forseta. Hvað veit ég? Svo mikið er falið fyrir okkur, en hagsmunirnir í veði eru tröllauknir.
Leikmennirnir leika sinn illkvittna leik í kringum hliðarstangir og milli markstanga, staldra við á taktískum augnablikum til að útbýta góðgæti úr áætluninni sem þeir nefna „baráttu fyrir lýðræði“ … „réttlæti fyrir alla“ … í seinni tíð einnig „jafnrétti“ … klikka jafnvel út með „svo hjálpi okkur Guð“. Engu skiptir þótt milljónir hafi dáið og deyi áfram, t.d. undir byggingum sem „okkar strákar“ eða zíonista-vinir jafna við jörðu. Við syngjum vögguvísur fyrir börnin okkar og hvíslum, „sofðu væran vinur, allt er það til varnar lýðræðinu“.









