Stóra núllið
—

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör og réttindi verkafólks sitja á hakanum.

Kosningasigur AfD kemur varla á óvart. Eldveggurinn svokallaði hefur engum árangri skilað – þvert á móti. Mótsagnir og mistök hefðbundinna stjórnmála hafa skapað þær ógöngur sem nú blasa við.

Það eru ekki aðeins kjósendur í Þýskalandi sem leita lausna á vandamálum samfélagsins hjá þjóðernissinnum. Kjósendur um alla Evrópu gera það sama. Ástæðurnar eru ekki utanaðkomandi upplýsingaóreiða eða umturnun á innræti almennings, heldur algjört áhugaleysi og getuleysi stjórnmálafólks á því að bæta tilveru alþýðufólks. Boðið er upp á hentistefnu og pólitískar leiksýningar, ásamt áköfum yfirlýsingum um eigið ágæti, á meðan efnahagsleg vandamál eru látin óáreitt.

Þegar enginn flokkur á þingi talar skýrt fyrir hagsmunum verkafólks verður til tómarúm, sem fyllist svo af röddum sem segja að vandann sé ekki að finna í kerfinu heldur hjá „hinum“ — fyrst og fremst innflytjendum og flóttafólki. Í Þýskalandi fyllti AfD tómarúmið, Meloni á Ítalíu og Le Pen í Frakklandi. Árangur þessara flokka skýrist fyrst og fremst af því að þeir verða farvegur réttmætrar reiði alþýðufólks í garð stjórnmála sem starfa í þágu hinna vel settu, en meirihluti kjósenda AfD er verkafólk og þau sem telja efnahagsstöðu sína slæma.

Miðjan ber ábyrgð á eigin hruni. Samvinna við auðvaldið um innleiðingu nýfrjálshyggjunnar, sem hefur getið af sér efnahagslega og félagslega hnignun, ásamt sjálfhverfri upphafningu og sýndarmennskustjórnmálum, sköpuðu ástandið og reiðina sem ysta hægrið bregst nú við.

Á Alþingi Íslendinga er enginn flokkur sem stendur fyrst og fremst með verkafólki, enginn flokkur sem setur kjör þeirra sem með vinnu sinni skapa verðmætin ofar kreddum. Þess í stað er boðið upp á flutning þráhyggjustefsins um hallalausu fjárlögin, stóra núllið. Í stað samstöðu eru skilaboðin til verkafólks hótun um aga á vinnumarkaði, um árás á réttindi okkar og getu til að berjast fyrir betra lífi.

Verkafólk á Íslandi hefur ekkert að gera við flokka sem endurtaka gamlar sósíaldemókratískar klisjur á meðan unnið er gegn hagsmunum okkar. Við þurfum viðurkenningu á því að stéttabarátta og baráttan fyrir lýðræði fara fram hlið við hlið. Önnur getur ekki án hinnar verið. Við þurfum stjórnmálamenn sem tala skýrt, standa með vinnuaflinu gegn auðvaldinu – stjórnmálamenn sem eru tilbúnir til að láta verkin tala.

Ísland þarf pólitíska forystu sem stendur með vinnandi fólki. Við eigum að hafna stóra núllinu – það er yfirlýsing um að áfram skuli haldið á vegferð sem á þessari stundu sogar hvert Evrópulandið á fætur öðru inn í hringiðu sístækkandi vandamála, þar sem möguleikarnir á raunverulegum lausnum á grafalvarlegum vandamálum færast sífellt fjær.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Nýjustu greinar

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.