Sjálfstæðið er ekki fáni
—

24. ágú, ’26

Erindi Sólveigar Önnu Jónsdóttur flutt á fundi Áfram Ísland á Akureyri fimmtudaginn 20. ágúst síðastliðin.

Sjálfstæðisbaráttan og stéttabaráttan

Saga sjálfstæðis Íslands er iðulega sögð sem saga af baráttu við erlent vald, um draum Íslendinga um sjálfstæði, um að vera þjóð á meðal þjóða, um fullveldi, stjórnarskrá og þá merku ákvörðun sem fólk á meðal okkar man sumt sjálft eftir, um að stofna loks lýðveldi á Þingvöllum, meðan að seinni heimstyrjöldin geisaði enn um alla veröld. Við þekkjum öll þessa sögu, enda er hún sagan okkar; af smæð og fátækt og ótrúlega erfiðum aðstæðum – og saga af sterkum vilja sem lifir í hjörtum allskonar fólks – vegna umróts; byltinga og mannkynssögulegra breytinga á alþjóðavettvangi, en líka vegna þeirrar sammannlegu þrá að upplifa eitthvað sem við köllum frelsi; það að þurfa ekki að lúta valdi annara, þurfa ekki að þola að eigin vilji, eigin skilningur á eigin aðstæðum verði undirsettur skipunum og vilja annara. Í þessari stóru sögu sem við höfum sem þjóð sammælst um að segja er ekki pláss fyrir marga karaktera og marga vegi sem að gengnir eru af allskonar fólki. Konur sjást sjaldan, ég grína stundum með að hinir og þessir atburðir hafi átt sér stað áður en menn fundu upp konuna; embættismenn og alþingismenn eiga sviðið, menn sem nutu þeirra forréttinda að hafa aðgang að menntun og menningu og þurfa ekki að strita til að sjá fyrir sér og sínum. En saga sjálfstæðis landsins er líka saga af íslensku alþýðufólki, þeirra sem að hafa ávallt verið og eru enn, um ókomna tíð, undirstöður sjálfrar verðmætaframleiðslunnar. Þau sem unnu baki brotnu og þekktu ekki annað en strit; barátta þeirra og barátta þjóðarinnar fyrir sjálfstæði eru ekki tvær aðskildar frásagnir heldur tvær hliðar sömu sögu; hver það er sem að ræður og í þágu hverra valdinu er beitt. 

Á 19. öld snerist sjálfstæðisbaráttan fyrst og fremst um stöðu Íslands gagnvart Danmörku. Endurreisn Alþingis, stjórnarskráin, heimastjórn voru mikilvæg skref; með þeim kom aukið sjálfstæði á alþjóðavettvangi. En fyrir alþýðufólk höfðu þessi skref engin materíalísk áhrif; aukinn réttur landsins færði fátæku fólki ekkert. Raunveruleg völd til að knýja á um mannsæmandi tilveruskilyrði; barátta fyrir slíku er barátta sem þarf að eiga sér stað inn í sjálfu þjóðfélaginu. En þar líkt og í sjálfstæðisbaráttunni þurfti sterkan vilja og þrautseigju. Og sem betur var slíkt til staðar. Ný tegund pólitískrar baráttu, sem líkt og sjálfstæðisbaráttan var innblásin og mótuð af atburðum á alþjóðavettvangi, varð til á landinu. Verkamenn hér líkt og í öðrum löndum Evrópu, komu saman og stofnuðu félög, búnir að öðlast þann mikilvæga skilning að einstaklingurinn má sín lítils gegn valdi auðsins, en að sameinað getur alþýðufólk unnið stóra sigra. 

Þegar nútíminn hóf innreið sína með breytingu atvinnuháttanna fór af stað barátta verkamanna um fá að semja um verðið á vinnuaflinu, þeirri einstöku vöru, en einnig um virðingu, réttindi og viðurkenningu á því að verkafólk ætti að hafa áhrif á samfélagið allt. Stofnun fyrstu verkalýðsfélaganna og síðan Alþýðusambands Íslands fyrir 110 árum síðan, markaði stórkostleg tímamót. Um leið og unnið var að stjórnskipulegu fullveldi landsins, barðist fátækt fólk fyrir því að fá að lifa frjálst undan oki arðránsins. Þau voru innblásin af heimssögulegum atburðum en mögulega voru þau fyrst og fremst innblásin af þjóðlegum atburðum; Hvað er fullveldið?; já, það er fáni, landamæri, yfirráð yfir hafi, ám, fossum, stokkum og steinum en getur það líka verið efnahagslegt réttlæti, bræðralag og bjargföst trú á að allt fólk sé skapað jafnt, allir eigi að leggja til eftir getu og uppskera eftir þörfum? 

Þessi merka barátta stigmagnaðist á kreppuárunum. Þegar verkamenn komu saman við Góðtemplarahúsið til að mótmæla fyrirhuguðum launalækkunum á atvinnubótavinnu bæjarins og lögreglan réðst gegn þeim, snerust átökin um hvort svara ætti neyð alþýðufólks með meiri kúgun eða réttlæti. Hinn augljósi sannleikur er sá að barátta fyrir fullveldi þarf ekki að innihalda skilning á og stuðning við alþýðufólk – barátta fyrir sjálfstæði og fullveldi er ekki sjálfkrafa barátta um að útbúa réttlátt ríki. Þetta sá verkafólk og þess vegna þurfti það sjálft að berjast inn í sínu eigin landi. 

Með því að gefast aldrei upp gat verkafólk skapað pólitískan vilja til að reisa hér velferðarsamfélag. Þetta fólk var með skýra sýn á tvennt; sjálfstæði landsins og mótun samfélagsins; félagsleg úrræði, atvinnustefna, réttindabarátta, húsnæðismál. Þegar lýðveldið var stofnað náðist hið stóra stjórnskipulega markmið sjálfstæðisbaráttunnar. En fyrir verkafólk lauk baráttunni ekki þar – enn þurfti að spyrja að því fyrir hverja lýðveldið væri; var það samfélag þar sem alþýðufólk fékk tækifæri til að blómstra eða var það samfélag þar sem að stéttskipting ríkti og efnahagslegt vald fárra yfir afkomu fjöldans varð að óumdeilanlegu lögmáli? 

Eftirstríðsárin og uppbygging velferðar og félagslegra réttinda eru lykilþáttur í þessari sögu íslenskrar alþýðu. Atvinnuleysistryggingar, almannatryggingar og aukið félagslegt öryggi urðu smám saman hluti af samfélagsgerðinni, og stéttarfélög tóku sér miðlæga stöðu. Þetta var ekki aukaatriði við sjálfstæði þjóðarinnar; nei þvert á móti var sjálfstæðið meðal annars notað til að tryggja húsnæði, menntun, heilbrigðisþjónustu og afkomu fyrir Íslendinga. Við hljótum að vera stolt af þessari sögu, hún er merkileg og hún er ótrúleg.

Íslenska vinnumarkaðsmódelið

Kæru fundargestir. 

Þegar við horfum út í heim, til landa Evrópu og veltum fyrir okkur stöðu verkalýðshreyfingarinnar þar og stöðu vinnuaflsins, sjáum við að íslenska vinnumarkaðsmódelið stendur mjög sterkt. 

Á Íslandi er stéttarfélagsaðild mjög há, kjarasamningar ná til stórs hluta vinnumarkaðarins og verkalýðshreyfingin hefur raunverulegt pólitískt og samfélagslegt vægi. Í mörgum, raun í velflestum löndum Evrópu hefur þróunin verið önnur. Þar hefur stéttarfélagsaðild dalað, vinnumarkaður orðið sundraðri og samningsstaða verkafólks veikst. Kjarasamningsumgjörð nær illa til láglaunageira og innflytjenda. Sumstaðar hefur löggjöf ríkisins að hluta komið í stað skipulagðrar samningsstöðu, sem getur vissulega tryggt lágmarksréttindi en veikir óumdeilanlega getu verkafólks til að móta eigin kjör.

Það sem gerir íslenska vinnumarkaðsmódelið svo sterkt er einmitt þessi samsetning: öflug stéttarfélög, víðtæk kjarasamningsgerð, sterk hefð fyrir samstöðu og samfélagsleg viðurkenning á því að launafólk eigi að hafa skipulagt mótvægi gegn atvinnurekendum og fjármagni. Við erum ekki aðeins að ræða tæknilegt skipulag vinnumarkaðar – við erum að tala um lýðræðislegt fyrirkomulag. Kannski er þessi staða, einsök á heimsvísu, til komin vegna smæðarinnar; kannski er þetta ekki hægt nema í svo fámennu samfélagi, þar sem að verkafólk getur, þrátt fyrir alla stéttskiptinguna og misskiptinguna sem að henni fylgir, raunverulega verið svo sýnilegt, svo frekt að á endanum er ekki annað hægt en að hlusta á okkur og virða kröfur okkar. 

Ég held því fram, nei, ég fullyrði, að þegar litið er til hagsmuna verkafólks eigum við besta vinnumarkaðsmódel Evrópu. Kerfið okkar hvílir á mikilli lagalegri vernd. Það byggir á gríðar hárri aðild að stéttarfélögum, þeirra mestu á byggðu bóli. Við eigum kjarasamninga sem eru í raun lög í landinu. Módelið okkar byggir ekki á því að best sé að hafa vinnuaflið sem sveigjanlegast í þágu samkeppnishæfni atvinnulífsins, heldur viðurkenningu á mannréttindum og óumdeilanlegu mikilvægi vinnuaflsins. Ef við erum öflug getum við í gegnum kjarasamningagerð tryggt að afrakstur verðmætasköpunar þjóðfélagsins skili sér til þeirra sem vinna vinnuna. 

Þess vegna er svo mikilvægt fyrir verkafólk á Íslandi að halda í íslenska módelið. Þetta þýðir ekki að við höfnum alþjóðlegri samvinnu eða möguleikum fólks á að fara á milli landa til að vinna. Þetta þýðir að við setjum þá grundvallarkröfu að allir sem vinna á íslenskum vinnumarkaði njóti sömu réttindi og hafi sömu vernd. 

Það að verja íslenska vinnumarkaðsmódelið er í raun nútímaleg sjálfstæðisbarátta. Hún snýst ekki um að loka landinu heldur að halda í lýðræðislegt vald samfélagsins yfir grundvallarskilyrðum vinnunnar. Rétt eins og fyrri kynslóðir börðust fyrir stjórnskipulegu sjálfstæði, yfirráðum yfir auðlindum og félagslegum réttindum, stendur verkafólk nú frammi fyrir þeirri spurningu hvort vinnumarkaðurinn eigi að lúta reglum sem við sjálf setjum eða vera mótaður af samkeppni markaðarins niður á við.

Ég hef gagnrýnt íslenskan vinnumarkað harðlega. Ég hef gagnrýnt stofnanavæðingu verkalýðshreyfingarinnar og yfirtöku fagmenntastéttanna á allri vinnu félaganna og nálgun í kjarasamningagerð. Ég hef gagnrýnt áhugaleysi hreyfingarinnar á því að endurnýjast, og viljaleysið til að gæta í einu og öllu að gildum lýðræðisins í störfum félaganna. Ég hef gagnrýnt tilraunina til að jaðarsetja verkafólk innan hreyfingarinna. En staðreyndin er sú að vegna þess hvernig vinnumarkaðsmódelið okkar er uppbyggt og tilkomið, vegna þeirra ríkulegu lagalegu réttinda sem við eigum, getur fólk eins og ég og félagar mínir stjórnað stærsta félagi verkafólks á landinu. Vegna þess að reglur lýðræðisins og vinnubrögð eru skrifuð inn í lög og reglur er hægt ef að viljinn er fyrir hendi, að nota verkalýðsfélög til að gera það sem þau voru sköpuð til að gera. 

Í vinnumarkaðsmódeli okkar býr þessi saga og við eigum að varðveita það, eins og við viljum varðveita íslenska náttúru. Hana skóp mannfólk ekki en hún er þó okkar. Og sumt af því sem manneskjur hafa útbúið er líka þess virði að geyma og vernda. Ekki bara sú menning sem við köllum list heldur líka menning sú sem að varð til vegna þeirra stóru hugsjóna og þess mikla vilja sem að bjó í hjörtum og hugum fátæks fólks, sem að þrátt fyrir allt trúði á eigin virði, virði barnanna sinna, virði þess að lifa frjáls í eigin landi. 

Nei við ESB

Kæru fundargestir.

Þegar ég var lítil stelpa sagði mamma mín oft: Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Það tók mig langan tíma að skilja hvað hún átti við. Mér fannst þetta hljóma kalt og nánast grimmt, svo ólíkt henni. Ég hugsaði stundum: Er þetta ekki akkúrat andstæða samstöðunnar? Er það ekki andstæða alls þess sem við eigum að standa fyrir, við kommúnistarnir?

En lífið kennir manni ýmislegt. Þegar við verðum fullorðinn, þurfum að halda heimili, ala upp börn, mæta í vinnu og standa af okkur áföll, þá förum við að skilja þetta. Þá skiljum við að enginn gerir þetta fyrir mann. Við verðum sjálf að stíga fram. Við verðum sjálf að taka fyrsta skrefið. Þrautseigja, dugnaður og viljinn til að gefast ekki upp – aðeins það skilar árangri.

Og þetta á ekki bara við um einstaklinga. Þetta á líka við um þjóðir.

Þjóð sem vill vera sjálfstæð getur ekki beðið aðra um að hugsa fyrir sig. Hún getur ekki afhent öðrum valdið yfir landinu sínu, auðlindunum, vinnumarkaðnum, framtíðinni og látið eins og sjálfstæðið sé enn óskert. Það er ekki þannig sem þetta virkar. Sjálfstæði er ekki fáni sem er dreginn að húni einu sinni á ári. Sjálfstæði er vald. Sjálfstæði er ábyrgð. Sjálfstæði er rétturinn til að ráða sjálf.

Og þess vegna eigum við ekki að ganga í Evrópusambandið.

Ekki af því að við óttumst umheiminn. Ekki af því að við viljum að Íslendingar eigi að lifa í einhverri sjálfumglaðri þjóðernisþoku. Heldur af því að við vitum að réttindi vinnandi fólks, yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum sínum og möguleiki almennings til að hafa raunveruleg áhrif á samfélagið veikjast þegar valdið færist lengra frá fólkinu og nær kerfum sem almenningur getur ekki stjórnað.

Við vitum að það sem hefur verið byggt upp hér á landi – með harðri og langri baráttu verkafólks – varð ekki til af sjálfu sér. Það varð ekki til vegna þess að einhverjir embættismenn erlendis hugsuðu hlýlega til íslensks verkafólks. Það varð til vegna þess að fólk skipulagði sig. Fólk stóð saman. Fólk barðist. Fólk þorði að segja nei.

Og við eigum að þora að segja nei við aðild að Evrópusambandinu.

Það sem er einstakt við Ísland skiptir máli. Það skiptir máli að hér er hugmyndin um að samfélagið eigi að þjóna fólkinu, ekki aðeins markaðnum, enn lifandi.

Hið einstaka ver sig ekki sjálft.

Það lifir bara ef einhver er tilbúinn að standa vörð um það.

Sjálfstæði þjóðarinnar fékkst ekki gefins.

Réttindi verkafólks fengust ekki gefins.

Yfirráð yfir auðlindunum fengust ekki gefin.

Allt þetta kostaði baráttu.

Það er arfleifðin okkar. Og arfleifð er ekki eitthvað sem við geymum ofaní skúffu og tökum upp á tyllidögum. Arfleifð er lifandi – hún er skylda – um að skilja eftir samfélag sem er réttlátara, sterkara og frjálsara en það sem við tókum við.

Við eigum ekki að skammast okkar fyrir að vilja verja landið okkar, réttindin okkar og samfélagsgerðina okkar. Við eigum ekki að skammast okkar fyrir að vilja ráða okkur sjálf. Við eigum ekki að skammast okkar fyrir að segja að lýðræði verði að vera raunverulegt.

Þvert á móti.

Við eigum að vera stolt af því að standa vörð um sjálfstæðið.

Við eigum að vera stolt af því að verja rétt verkafólks.

Við eigum að vera stolt af því að skilja að þetta tvennt er samofið.

Réttindi verkafólks sem ekki eru varin af pólitískum vilja og samstöðu eru í hættu stödd. Þess vegna er þessi barátta sameiginleg barátta – fyrir sjálfstæði – fyrir réttlæti. Fyrir völdum og fyrir frelsi. 

Af þessum ástæðum ætla ég að segja nei 29. ágúst. 

Takk fyrir.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.