Frá velferð til vígvæðingar
—

20. ágú, ’26

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að skoða útgjöld ríkjanna, þ.m.t. Íslands, til hermála. Síðan eru skoðuð þau verkefni, aðgerðir og fjármagn sem Evrópusambandið hefur beitt til að stuðla að aukinni hervæðingu og stuðningi við hergagnaiðnaðinn í álfunni. 

Hervæðingin í Evrópu

Íslendingar eru herlaus þjóð og flestir Íslendingar vilja vera það áfram og forðast stríð og vopnaburð. Landið hefur verið útstöð Nató og Bandaríkjahers eftir síðustu heimsstyrjöld og þannig liður í hernaðarkerfi heimsins og vörnum Bandaríkjanna, án meiriháttar kostnaðar. 

Á Natóþingi 2025 voru Evrópusambandsríkin sem eru í Nató, hvött til að laga sig að nýju Nató markmiði með því að nota 5% af landsframleiðslu til hernaðar- og varnarmála (3.5 % í varnir en 1.5 % í borgaralega innviði sem tengjast vörnum). Bandaríkin kröfðust þess að Evrópuríkin hervæddust og tækju að sér eigin varnir og sæu auk þess um stríðsreksturinn í Úkraínu. Natólönd sem ekki eru í Evrópusambandinu hafa fylgt sömu stefnu. Ísland er þar á meðal. 

Hermálaútgjöld Evrópuríkja hafa þannig tekið heljarstökk. Útgjöld Evrópusambandsríkja til hermála hafa aukist úr €183 milljörðum 2021 í €408.1 milljarð 2025. Evrópusambandið hefur dyggilega stutt við þessa þróun með framlögum og styrkjum sem eru ætluð til að styrkja hermálaútgjöld ríkjanna og til stuðnings hergagnaiðnaðinum. 

Bein varnartengd útgjöld okkar Íslendinga hafa aukist úr 7 milljörðum kr. árið 2024 í 10 milljarða árið 2026. Ef svonefnd borgaraleg varnartengd útgjöld eru talin með yrðu þetta 44,9 milljarðar árið 2026 eða úr 0.14 % af landsframleiðslu í 0.92 %. Gert er ráð fyrir að bein og óbein varnartengd útgjöld Íslands verði komin í 1.5 % viðmiðið að kröfu Nató u.þ.b. árið 2032-35 og verði þá 73 milljarðar árlega. Stjórnvöld gera ráð fyrir 4ra milljarða hækkun árlega. Vegna fámennis og herleysis þarf Ísland aðeins að uppfylla 1.5 % viðmiðið og getur notað hluta þess til þess að efla varnartengda borgaralega innviði. 

Á síðustu árum hefur Ísland blandast inn í stríð í Evrópu með því að taka þátt í vopnakaupum og hernaðaraðstoð, sem meðlimur í Nató og samstarfsaðili Evrópusambandsins, að hluta í gegnum EES samstarfið. Framlag til þessa eru u.þ.b. 10,8 milljarðar króna í hernaðartengda aðstoð á árunum 2022-26 auk 7.7 milljarða í mannúðar og efnahagstengda aðstoð. Tvíhliða samningur milli Íslands og Úkraínu, um 4 milljarða króna árlega aðstoð 2024-2028 var samþykktur á Alþingi. 

Við inngöngu í Evrópusambandið tæki Ísland á sig samábyrgð á hervæðingarverkefnum Evrópusambandsins með þeim kostaði og skuldasöfnun sem því gæti fylgt. Margar Evrópusambandsþjóðir hafa nú miklar áhyggjur af stórfelldri hækkun á aðildargjöldum sem þessu fylgja. Auk þess mun sambandið halda áfram að draga fé úr hefðbundnum borgaralegum verkefnum yfir í stríðsmaskínuna. 

„Kúvending Evrópu úr velferðarhagkerfi yfir í stríðshagkerfi, byggir annaðhvort á vanþekkingu eða er meðvituð blekking“, segir friðarrannsakandinn Jan Øberg. Hann telur engin hagfræðileg rök fyrir því að hernaðarlegar fjárfestingar séu mikilvægari en borgaralegar fjárfestingar. Samt haldi margir Evrópusambands- og Natóleiðtogar því fram að hervæðing efli vöxt, atvinnutækifæri og nýsköpun. Engar rannsóknir styðji þetta. Þegar milljarðar séu notaðir til hervæðingar séu þeir ekki notaðir til samfélagslegrar velferðar og menntunar.

Øberg telur að Evrópa sé að fara blindandi í þessa sögulegu vegferð án þess að hugsa um afleiðingarnar. Þetta auki líkurnar á stríði og efli ekki frið.

Hernaðarútgjöld Evrópusambandsins til 2027

Transnational Institute (TNI) hefur birt yfirlit (Fact Sheet 1) um hernaðarútgjöld Evrópusambandsins á síðustu árum og áætluð fram til 2027, þar sem eftirfarandi kemur fram:

Löngum hefur verið litið á Evrópusambandið sem boðbera friðar, mannréttinda og diplómatíu. Fyrir 2014 veitti sambandið ekki umtalsverðum fjárhæðum til hermála. Sú heimsmynd er nú gjörbreytt. Í náinni samvinnu við Nató, þar sem Evrópa hefur tekið við hlutverki Bandaríkjanna í stríðinu gegn Rússum, hefur Evrópusambandið fundið leiðir til að beina framlögum í stórauknum mæli til hernaðarlegra markmiða og stofnað ný verkefni og sjóði til að ná þeim. 

Rótgróin eldri verkefni hafa líka í mörgum tilvikum fengið tvíþætt hlutverk. Með breytingum á úthlutunarreglum hefur verið skapað svigrúm til að fá þeim hernaðarlegan tilgang. Með því er fjármagni leynt og ljóst beint til hernaðarsamsteypunnar og vopnafyrirtækjanna. 

Upphafleg áætlun sambandsins til hermála, 2021-2027, hefur bólgnað út og peningar flæða til hinna ýmsu verkefna sem styðja við hervæðinguna. Upphafleg áætlun var €13.9 milljarðar en er komin í a.m.k. €31.9 milljarð. Í næstu 7 ára áætlun 2028-34 er gert ráð fyrir að útgjöld til þessara mála rúmlega fjórfaldist og verði €131 milljarður.

Ný verkefni:

Varnarsjóður Evrópu (European Defence Fund), 2021-2027. Veitir styrki til hernaðartækni og þróunar á vopnabúnaði. Stundum er um sameiginleg verkefni landanna að ræða (PESCO). Stofnaður með ráðgjöf nefndar sem var sett á fót af Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Flestir nefndarmenn voru fulltrúar stórra vopnafyrirtækja í Evrópu, sem nutu síðan velvildar í styrkveitingum. Styrkjum úr sjóðnum er einnig beint til annarra verkefna eins og STEP, EUDIS og AGILA. Hefur fengið €8 milljarða. Sjóðurinn hefur að hluta til verið notaður til hernaðaraðstoðar við Úkraínu, án þess að tengja Úkraínu við reglur Evrópusambandsins um vopnaútflutning. 

EUDIS verkefnið (EU Defence Innovation Scheme), 2022- . Styrkir vopnaiðnaðinn á margvíslegan hátt. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að Varnarsjóðnum, einkum fyrir lítil og meðalstór vopnafyrirtæki. Verkefnið innifelur Defence Equity Facility þar sem Evrópski fjárfestingarsjóðurinn (EIF) fjárfestir í þessu skini. Fær €2 milljarða. 

ASAP verkefnið til stuðnings skotfæraframleiðslu (Production Ammonition/Missiles), 2023-25. Aðstoðar ríki við að fylla á byrgðir og styðja við skotfæraafhendingar til Úkraínu. Stýrt af European Commission. Fékk €500 milljónir. Tekið upp í EES samninginn.

EDIRPA Joint Acquisition áætlunin (European Defence Industry Reinforcement through Common Procurement Act), 2024-2025. Byggist á reglugerð EU 2023/2418, til að stuðla að samvinnu og samræmingu vopnakerfa í Evrópu. Fékk €310 milljónir. Tekið upp í EES samninginn.

SAFE verkefnið (Security Action for Europe), mun útvega u.þ.b. €150 milljarða í langtímalán fyrir aðildarríkin til að fjárfesta í hernaðarframkvæmdum. Það er fyrsta skrefið í ReArm Europe/Readiness 2030 áætluninni. 

EDIP verkefnið (European Defence Industry Program), 2026-27. Nota á €1.5 milljarða til að auka hergagnaframleiðslu, og af því á að nota €300 milljónir til stuðnings Úkraínu. 

AGILE (Programme for agile and rapid defence innovation), 2027-. €115 milljónir til að koma tækninýjungum á methraða frá rannsóknarstofu á vígvöll. 

EPF, Evrópski friðarsjóðurinn (European Peace Facility), 2021- er sjóður utan við fjárlagaramma Evrópusambandsins. Hann var stofnaður til hliðar við fjárlagarammann til að komast framhjá reglugerð Evrópusambandsins sem bannar notkun sjóða til hernaðarlegra verkefna. Þessi sjóður hefur orðið eitt af mikilvægustu verkfærum Evrópusambandsins til stuðnings Úkraínu. Fjármögnun hefur aukist úr €5.7 milljörðum í yfir €17 milljarða.

ReArm Europe/Readiness 2030 áætlunin, 2025-2030. Markmið verkefnisins er að virkja €800 milljarða til að styrkja hernaðarlega innviði Evrópu í fimm skrefum:

Að skapa fjárhagslegt svigrúm fyrir Evrópusambandslönd til að auka hernaðarútgjöld sín án þess að þurfa að aðlagast reglum sambandsins um skuldaþak.

Að opna aðgang að nýju langtíma lánakerfi til hernaðarlegra fjárfestinga (SAFE).

Opna aðgang að einkafjárfestingum og hvetja almenning til fjárfestinga í hergagnaiðnaðinum.

Að aflétta lánaskilmálum Fjárfestingabankans vegna lána til hergagnaframleiðslu.

Að beina fé úr eldri sjóðum eins og Samheldnissjóðnum til hernaðartengdra verkefna.

Í mars 2025 kynnti Framkvæmdastjórnin Hvítbók fyrir varnir Evrópu og ReArm Europe/Readiness 2030 áætlunina. Þar eru stórkarlalegar áætlanir um vígvæðingu aðildarlandanna og hvernig að þeim verður staðið í samvinnu ríkjanna og Evrópusambandsins. 

Verkefni sem fá tvíþætt notagildi:

Ýmsir borgaralegir sjóðir sem tengjast landamæravörslu (ISF, IBMF, BMVI, Frontex o.fl.) hafa verið notaðir að hluta til í hernaðarlegum tilgangi. 

Connecting Europe Facility sjóðurinn hefur verið notaður að hluta til að fjármagna hernaðarleg verkefni. 

Cohesion Fund (Samheldnissjóðurinn). Rótgróinn sjóður sem hefur verið notaður til að veita styrki til fátækari ríkja en hefur nú verið opnaður fyrir hernaðarlegum verkefnum. €11.9 milljörðum hefur verið veitt úr honum til fjárfestinga í drónum o.fl.

Horizon Europe, kynnt sem borgaralegt verkefni eingöngu hefur verið opnað fyrir hernaðarlegum verkefnum með reglugerðarbreytingu 2025.

Defence Readiness Omnibus eða „mini-Omnibus for defence“, er reglugerð til að örva varnartengdar fjárfestingar 2025- . Opnar ýmsa sjóði ætlaða til borgaralegra verkefna sem fá tvíþætt hlutverk í hernaðarlegum tilgangi, t.d. Digital Europe Programme og Connecting Europe Facility.

Evrópski fjárfestingabankinn og aðgangur að einkafjárfestingum. Hergagnafyrirtæki og ríkisstjórnir hafa beitt þrýstingi á einkafjárfesta, banka og lífeyrissjóði að fjárfesta meira í vopnaframleiðslu. Evrópski fjárfestingabankinn hefur stofnað Security and Defence Industry Action Plan, 2024- þar sem milljarðar renna til hergagnaiðnaðarins.

———–

Hernaðar- og varnartengd fyrirtæki hafa þannig fengið drjúgan skerf úr sjóðum sambandsins. Eflaust er eitthvað vantalið í þessu yfirliti og er þess skemmst að minnast að Evrópuþingið samþykkti nýlega að ríkin skyldu sameiginlega veita €90 milljarða lán til Úkraínu með veði í skattfé borgara í sambandslöndum.

Samstarfsyfirlýsing Íslands og Evrópusambandsins um öryggis og varnarmál var undirrituð 18. mars 2026. Þar er m.a. kveðið á um náið samstarf Evrópusambandsins við NATO og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Einnig samstarf gegn fjölþáttaógnum, áframhaldandi stuðning Íslands við þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins o.fl. Til athugunar er hvort Ísland geti fengið aðild að EDIP og SAFE verkefnunum. Einnig hafa verið undirritaðir nokkrir samstarfssamningar um varnarmál við einstök ríki innan Evrópusambandsins.

Heimildir:

Björn MalmQuist: Tekist á um næstu fjárlög Evrópusambandsins. RÚV, Evrópuglugginn 1. maí 2026. https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-01-tekist-a-um-naestu-fjarlog-evropusambandsins-474009

Davíð Stefánsson: Varnarframlag Íslands nú áæltlað 0.9 % af landsframleiðslu. Varðberg 29. júní 2026. https://vardberg.is/frettir/varnarframlag-islands-nu-aaetlad-09-af-landsframleidslu/

European Commission. Introducing the White paper for European Defence and the European ReArm Europe Plan- Readiness 2030 https://defence-industry-space.ec.europa.eu/eu-defence-industry/white-paper-european-defence-readiness-2030_en

EU Military Spending until 2027. Factsheet 1. From „Peace Project“ to Arms Investor. TNI 9. June 2026. https://www.tni.org/en/publication/eu-military-spending-until-2027

Military and related spending in the MFF 2028-34 proposal. Factsheet 2. TNI 9. June 2026. https://www.tni.org/en/publication/military-and-related-spending-in-the-mff-2028-34-proposal

Milljarðar án sundurliðunar. Mbl. 14.07.2021. (Svar utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Mbl). https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/14/milljardar_an_sundurlidunar/

Security and Defence Partnership between Iceland and the European Union. https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Utanrikismal/oryggis–og-varnarmal/EU-Iceland%20Security%20and%20Defence%20Partnership%202026%20Signed.pdf

Utanríkisráðuneytið. Varnartengdur stuðningur Íslands við stríðið í Úkraínu https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/strid-i-ukrainu-vidbrogd-islenskra-stjornvalda/

Øberg, Jan: Europas omstilling til en krigsøkonomi bygger på uvidenhed eller bevidst bedrageri. Arbejderen 29. Juli 2026. (Blogg) https://arbejderen.dk/blog/europas-omstilling-til-en-krigsoekonomi-bygger-paa-uvidenhed-eller-bevidst-bedrageri/

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.