Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn
—

Chris Hedges
13. ágú, ’26

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla starfsreynslu frá Miðausturlöndum, m.a. sem sáttasemjari. Umræðuefnið er Íransstríðið og harðnandi átök á öllu svæðinu. Útskrift viðtalsins og þýðing er birt hér að neðan.

Vopnaþurrð og orkuskortur í Bandaríkjunum

Chris Hedges: Donald Trump hefur aflýst fyrirhugaðri, stórfelldri hernaðarárás á Íran. Þessi viðsnúningur kemur í kjölfar frétta um að Bandaríkin hafi notað mikið magn af mikilvægum skotfærum frá því stríðið hófst 28. febrúar. Sú ofeyðsla nær til Tomahawk-langdrægra flugskeyta sem skotið er af sjó á skotmörk í landi. Af þeim um 3.000 Tomahawk-flugskeytum sem talið var að væru í vopnabúri Bandaríkjanna eru 1.000 að því er virðist notuð og búin. Um 1.100 Jasam-langdrægum flugskeytum, sem skotið er úr lofti, af alls 4.000, hefur verið beitt í stríðinu. Um 40 til 70 PRSM-langdrægum flugskeytum, sem skotið er af landi – Bandaríkin áttu aðeins 90 í birgðum sínum – hefur verið skotið á Íran, sem þýðir að nánast allar birgðirnar eru uppurnar. Af SM3-flugskeytum, sem skotið er af skipum og kosta 28 milljónir dala stykkið, voru um 410 fyrir stríðið, en Bandaríkin kunna að hafa notað allt að 250 þeirra. SM6, sem einnig er skotið af skipum, er notað til að granda flugvélum og stýriflaugum, og hafa einhvers staðar á bilinu 190 til 370 verið notuð af alls 1.160 flaugum í birgðum. Af um 360 THAAD-flugskeytavarnarkerfum hefur allt að 290 verið skotið á Íran. Og að lokum, af þeim um 2.300 Patriot-flugskeytum sem talið er að hafi verið til, hafa á bilinu 1.060 til 1.430 verið notuð.

Eyðsla á mikilvægum vopnakerfum er ekki eina vandamálið sem Trump-stjórnin stendur frammi fyrir, heldur einnig eyðsla á strategískum olíubirgðum. Alþjóðlegar rannsóknir Bank of America sýna að magn strategískra olíubirgða Bandaríkjanna er í lægsta punkti frá árinu 1983, sem þýðir að landið á birgðir af hráolíu sem duga í 43 daga. Bætið við þessa eyðslu vanhæfni Bandaríkjanna til að ná yfirráðum yfir Hormússundi frá Íran og þá er komið stríð sem Bandaríkin hafa á engan mælikvarða efni á að halda áfram. FAR-fréttastofa Írans greinir frá því að írönsk þingnefnd sé að fara yfir frumvarpsdrög sem myndu banna bandarískum, ísraelskum og öðrum „óvinveittum skipum“ að fara um sundið. Íran og Óman, sem nú stjórna sundinu í sameiningu, sögðust hafa formfest siglingaleiðir um sundið en lokun þess hefur hrint af stað alþjóðlegri orkukreppu.

Bjartsýnt mat Trumps á stríðinu er ekki nýtt, né heldur það að hann dragi til baka heimsendahótanir og hótanir um að gjöreyða Íran. Til dæmis hótaði hann 7. apríl að „heil siðmenning muni deyja í nótt, og aldrei verða endurvakin“ ef Íran opni ekki sundið þegar í stað. Og svo, tveimur klukkustundum síðar, áður en fresturinn sem hann setti rann út, bakkaði hann og tilkynnti þess í stað tveggja vikna vopnahlé. Þetta mynstur hótana og eftirgjafa hefur grafið undan trúverðugleika Trumps. Það hefur bundið enda á vonir um að Íran, sem var efins fyrir, mu i standa í samningaviðræðum á næstunni. Íran gerir réttilega ráð fyrir að það geti ekki treyst neinu sem forsetinn segir. Íran veit líka að Bandaríkin hafa ekki efni á að draga átökin á langinn, verða þá enda fyrir gríðarlegum hernaðarlegum og efnahagslegum kostnaði.

Með mér til að ræða stöðu núverandi stríðs er Alastair Crooke, fyrrverandi breskur erindreki sem starfaði í mörg ár í Miðausturlöndum, sem öryggisráðgjafi sérstaks sendifulltrúa ESB í Miðausturlöndum, auk þess að hjálpa til við að koma á samningaviðræðum og vopnahléi milli Hamas, Íslamska jíhad og annarra palestínskra andspyrnuhópa. Hann átti stóran þátt í að koma á vopnahléi milli Hamas og Ísraels árið 2002. Hann er einnig höfundur bókarinnar Resistance: The Essence of the Islamist Revolution, sem greinir uppgang íslamskra hreyfinga í Miðausturlöndum.

Svo, Alastair, byrjum á því hvar við erum stödd núna. Eins og ég nefndi í innganginum hafði Trump hótað stórfelldri sprengjuherferð. Enn og aftur hörfar hann. Svo er það þessi samningur milli Ómans og Írans. Geturðu gefið okkur grófa mynd af því hvernig landið liggur nú?

Ódýr vopn og allt niðurgrafið

Alastair Crooke: Vissulega, en mér fannst eitt af því sem þú last upp vera nokkuð sláandi: þessi langi listi yfir flugskeyti og vopn sem hefur verið eytt í stríðinu, og það sem er nokkuð merkilegt er hversu litlum árangri það hefur skilað . Það hefur ekki rýrt flugskeytagetu Írans að neinu marki. Það hefur gjörsamlega mistekist að hafa veruleg áhrif á gang stríðsins. Og í raun táknar það endalok á stríðsaðferð sem við höfum séð allt tímabilið frá seinni heimsstyrjöldinni. Vesturlönd hafa haldið fast við hugmyndina um yfirráð í lofti, getuna til að teppasprengja óvinina, og töldu sig hafa fullkomið frelsi til að fara hvert sem þau vildu, hvenær sem þau vildu, hvernig sem þau vildu. En því er nú lokið. Og það sem batt enda á það eru í grundvallaratriðum ódýrir íhlutir, rafeindaíhlutir sem hafa gert ríkjum kleift að framleiða flugskeyti.

Svo Íran hefur í raun fundið svörin við þessu. Þú grefur flugskeytin þín niður. Þú grefur framleiðslukerfin. Þú grefur herforustuna. Það var kallað mósaík-kerfi. Það hefur verið mjög áhrifaríkt og ég held að upplestur þinn á þessum lista undirstriki hversu mikið það er. Bæði Ísrael og Bandaríkin segja að Íran hafi sömu getu hvað varðar flugskeytin. Og þau hafa yfirráð í lofti á þessu stigi yfir Persaflóa. Öfugt við þau yfirráð í lofti sem Bandaríkjunum hefur ekki tekist að ná að fullu.

Samningaviðræður Írans og Ómans

Þú spyrð hvar við erum stödd í þessum viðræðum. Til að hafa það alveg á hreinu: Það fara bara fram tæknilegar viðræður, í augnablikinu eru tækniteymi að ræða um sundið milli Írans og Ómans. Bandaríkin koma ekki að því, þótt eflaust séu ákveðnir sáttasemjarar í símanum allan tímann við Ómana. En frá mínum sjónarhóli horfa málin svona við: Það er enginn vilji af hálfu Írans að opna Hormússund í þeim skilningi að opna það fyrir allri umferð án kostnaðar. Hægt væri að opna það mjög varlega fyrir til dæmis kínversk tankskip en það verður ekki opnað í þeim skilningi sem það var áður. Í öðru lagi ætla Íranar að innheimta gjöld, 7% er nefnt og þeir ætla einnig að innheimta 20% sektir fyrir öll skip sem halda sig ekki við reglurnar sem nýja stjórnin setur fyrir Hormússund.

Umræðurnar snúast um hvort það séu tvær siglingaleiðir eða bara ein: ein út og önnur inn. Og í augnablikinu er bara ein siglingaleið því Íranar hafa lokað leiðinni sem liggur meðfram strönd Óman og út þá leið með því að leggja þar dufl. Þannig að sú leið er í raun lokuð. Í morgun reyndi tankskip frá Abu Dhabi að nota þá útgönguleið og varð fyrir eldflaugaárás og skemmdist, og hefur snúið við. Svo hún er ekki í notkun sem stendur. Norðurleiðin er undir stjórn IRGC (Byltingarvörurinn). Ég held að nokkur skip séu að sigla til Kína, en ferðirnar eru mjög fáar. Þannig að ég held að það sem Trump muni standa frammi fyrir sé að Íran stjórni Hormússundi, að það muni stjórna ferðunum inn og út. Þótt ferðir inn kunni að vera undir stjórn Ómana er það undir yfirstjórn IRGC. Með öðrum orðum, allar upplýsingar um skip verða að berast IRGC áður en þeim er leyft að fara inn á þessa leið og að ferlið verði áfram algjörlega stjórnað og lokað. Og þetta er ekki hluti af umboði samninganefndarinnar, en í Teheran segja þeir að þeir ætli að setja lög sem myndu banna skipum frá Bandaríkjunum eða Ísrael að sigla um Hormússund í framtíðinni. Eftir því sem ég best veit munu engar af þessum reglum taka gildi að sögn Írana fyrr en eftir samkomulag, eftir að stríðinu er lokið, eftir að það hefur verið staðfest að vopnahlé sé í gildi, að hafnarbanni Bandaríkjanna sé aflétt, eftir að viðskiptaþvingunum á útflutningi á jarðolíu og olíuafurðum frá Íran hefur verið aflétt – aðeins þá munu þessar nýju reglugerðir taka gildi að fullu.

Sættir Trump sig við að vera ekki sigurvegari?

Þeir eru enn að ræða þetta á tæknilegum grundvelli og því gæti liðið nokkur tími þar til viðræðum lýkur. En ég held að þetta muni setja herra Trump í mjög augljósan vanda. Annaðhvort sættir hann sig við að þetta sé tap. Kannski getur hann sætt sig við það. Við heyrðum herra Bessent segja fyrir örfáum klukkustundum: „Jæja, Hormússund, það skiptir í raun engu máli. Eftir nokkur ár munum við hvort eð er ekki þurfa Hormússund.“ Hann minntist ekki á Rauðahafið og hann minntist ekki á Bab al Mandeb. Er þetta undirbúningur fyrir eftirgjöf?“ Hver veit?

En spurningin er: Er Trump fær, eftir allan sinn feril, eftir þjálfun sína hjá Roy Cohen, að tapa aldrei? „Þú verður alltaf að vera sigurvegari.“ Og er hann fær um að þola þetta eða mun hann reyna aðra hernaðaraðgerð, jafnvel þótt, eins og þú bentir réttilega á, það virðist í raun ekki vera mikill tilgangur með annarri hernaðaratlögu því hún mun ekki breyta afstöðu Írans eða ákveðni þeirra í að stjórna Hormússundi og þeir eru ekki á leiðinni að opna það og jafnvel ekki hefja samningaviðræður. Íran myndi krefjast þess af Bandaríkjunum að þau gæfu loforð fyrirfram og aðeins þá væru samningaviðræður mögulegar.

En í heildina, eins og þú sagðir réttilega í innganginum, trúir Íran einfaldlega ekki að það sé hægt að ná raunverulegri sátt við herra Trump og stjórn hans. Það hafnar viljayfirlýsingunni. Það sér að Bandaríkin eru bara að nota þetta mynstur hótana og svo tala þau um samning. Þetta snýst allt um markaðina. Þetta snýst allt um að stjórna olíuverði. Og Íranar hlæja að þessu núna. Nú eru þeir að sýna skjöl sem sýna hversu margar framtíðir voru seldar rétt fyrir mánudaginn.

Viljayfirlýsingin er orðin miklu minna virði vegna þess að Íranar sjá að hún er í raun ekki hugsuð sem skjal sem samningaviðræður gætu þróast út frá, því í raun snýst hún bara um að stjórna mörkuðum, því helsta áhyggjuefni Trumps núna eru markaðirnir og olíuverðið og verðbólgan og umfram allt skuldabréfamarkaðurinn.

Chris Hedges: Það eru miklar ásakanir um innherjaviðskipti innan Trump-stjórnarinnar. Hugsanlega er þetta hliðstætt síðrómverska keisaradæminu, þá fóru rómversku keisararnir upp til Gallíu og germönsku ættbálkarnir hröktu rómversku hersveitirnar til baka, en þá héldu keisararnir bara sigurgöngu um Rómaborg þótt þeir hefðu beðið afhroð. Það er mjög í anda Trumps. Svo raunveruleikinn um töp og ósigra kunna að vera staðreyndir, en eru ekki endilega staðreyndir sem Trump mun viðurkenna. Ég vil tala aðeins um viljayfirlýsinguna [Memorandum of Understanding, MOU] sem upphaflega átti að vera framkvæmd í áföngum. Ég held að það sé nokkuð ljóst að Íran mun ekki undirrita neitt slíkt aftur. Þetta var tilefnislaust stríð, glæpsamlegt árásarstríð samkvæmt alþjóðalögum, eins  staðfest var af yfirmanni Sameinuðu þjóðanna og fleirum. Og Íran vill stríðsskaðabætur, vill fá frystar eignir sínar, um hundrað milljarða dollara, leystar út. Og svo vill það auðvitað tryggingu fyrir því að ekki verði ráðist á landið aftur.

Og á hinum endanum stendur Trump frammi fyrir miðkjörtímabilskosningum Fylgi hans í skoðanakönnunum er mjög lágt. Og ég held að það sé ljóst að Hvíta húsið vill sárlega einhvers konar samkomulag, jafnvel þótt það sé til bráðabirgða, svo það geti haltrað á næstu mánuði, að minnsta kosti fram í nóvember. Og ég velti fyrir mér hvort þú getir fjallað um þessi tvö andstæðu sjónarmið.

Alastair Crooke: Já. Ég held að það sem þú lýstir sé eiginlega stig átakanna sem nú er liðin tíð, í sama skilningi og viljayfirlýsingin er nú almennt talin vera það. Í Íran er það lítill hópur sem lítur ekki þannig á málin, en í heildina lítur forystan á viljayfirlýsinguna sem blekkingu. Hún var blekking sem var gerð af ásettu ráði, tilgangurinn með henni var einfaldlega að opna Hormúzsund eins fljótt og auðið væri og því var hún undirrituð án nokkurs raunverulegs ásetnings um að leiða hana til lykta.

Hormússund: þrýstingur á Trump aukinn

Svo að í engum raunverulegum skilningi er þessi viljayfirlýsing grunnur að samkomulagi sem Trump mun virða. Þetta var blekking og því erum við nú komin á annan áfanga, með auknum þrýstingi á Trump, fyrst og fremst á mörkuðum, með því að Rauðahafið er nú lokað. Hútar hafa aftur ráðist á sádi-arabísk tankskip sem reyna að komast inn í Yanbu-höfn í Rauðahafinu. Svo ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem Sádi-Arabar hafa ekki flutt út neina olíu á þessu tímabili.

Chris Hedges: Bara til að grípa fram í, Alastair, ég held að Sádi-Arabar hafi verið að flytja út um sex milljónir tunna á dag um Rauðahafið. Er það rétt?

Alastair Crooke: Það er rétt, og nú er það komið niður í núll. Og Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa heldur ekki flutt út olíu á þessu tímabili. Þannig að aðalatriðið er að Íran sér að þeir hafa vogarafl vegna þess að þú nefndir áhrifin á olíumarkaðina og það sem er svo mikilvægt er í raun sú tegund olíu sem vantar og er lykilatriði í jöfnunni, því það sem Íran og Hormúzsund sköffuðu var miðlungseimuð olíu, ekki léttolía. Ameríka hefur léttolíu frá sprungusvæðunum og Palmyian og svo framvegis. Venesúela á hinn bóginn hefur þyngstu olíuna, næstum eins og tjöru. En miðlungseimingarnar eru þær sem gefa dísilolíu og steinolíu fyrir flugvélar og þær er verulegur skortur á þeim. Markaðirnir eru í „backwardation“. Kreppan er í dísilolíu og steinolíu. Og það er ein af ástæðunum fyrir því að ég er ekki viss um að við munum sjá stórárás á Íran, því flugvélar, ef þú ætlar að fara í mikla flugaðgerð, þá þarf mikið af flugvélaeldsneyti til að framkvæma þá aðgerð. F-15 og F-35 vélar drekka það í gallonum og þarf að fylla á þær eftir um 250 mílur. Það er hluti af því sem gefur Íran vogarafl.

Sóknarviðbrögð Írans og undirbúningur fyrir langvinnt stríð

Seinni hlutinn sem við munum sjá breytast er hugmyndin um að skipta yfir í sókndjarfari afstöðu. Íranir ætla ekki einfaldlega að bíða þangað til Bandaríkin ráðast á þá og íhuga þá fyrst og raða upp skotmörkunum sem þeir ætla að ráðast á í hefndarskyni. Þeir halda uppi lágstemmdum, sókndjörfum árásum á Bandaríkin, á Persaflóaríkin, í augnablikinu nær það ekki til Ísraels, en þeir halda uppi ákveðnu stigi hernaðarlegrar sóknar. Með öðrum orðum, þeir víkka út stríðið, gera það afar erfitt fyrir Trump að lýsa yfir sigri, til að setja þrýsting á hann, og á sama tíma ekki ganga svo langt að það sprengi alla stöðuna upp í stórstyrjöld, heldur halda áfram að ráðast á skip. Eins og ég segi, þá var ráðist á olíuflutningaskip frá Abu Dhabi, ADNO olíufyrirtækinu, fyrir örfáum klukkustundum á meðan þessar viðræður fara fram í Óman. Íran hefur ekkert hætt. Og þetta var ekki svar við árás Bandaríkjamanna.

Sem sagt sóknarárásir, og tilfinningin er í auknum mæli sú að Trump sé undir þrýstingi og að Írönum finnist þeir hafa, með orðum Trumps, „trompin á hendi“, að þeir séu í betri stöðu, og að þeir horfi fram á langt stríð við Bandaríkin, þá hafi þeir getu og yfirráð yfir Hormúzsundi, sem er lykilatriði því þeir geta fjármagnað langt stríð ef þeir hafa gjöldin og flutningsgjöldin fyrir Hormússund. Það er áætlað um 100 milljarðar á ári, þú getur fjármagnað stríð á þann hátt.

Svo hugsunin í Íran er dálítið að breytast í átt að því að setja meiri þrýsting á Trump og ekki horfa til samkomulags. Íran hefur raunar haft þá tilfinningu um nokkurt skeið að þetta verði ekki leyst með samningi. Íranar hafa lengi talið stríð við Bandaríkin vera óumflýjanlegt, og að það væri eina leiðin út úr þeim vanda sem Íran hefur verið fast í síðustu 47 ár. Að stríðið muni koma og ég held að ef það kemur þá finnist þeim þeir vera tilbúnir fyrir það. Og þeir eru í mun betri stöðu en herra Trump í Washington þegar þrýstingurinn á olíumörkuðum bítur, og einnig þegar hernaðarlegur veruleiki Washington verður augljós, vanhæfnin til að skjóta langdrægum vopnum, vanhæfnin til að valda raunverulegum skaða á neðanjarðar-flugskeytaborgunum. Svo á hvað ætlar hann að ráðast? Pickaxe-fjall? Það er granítfjall með mannvirkjum sem grafin hafa verið þúsund metra undir graníti. Ég meina, allt sem myndi gerast er að hann myndi láta sprengjur skoppa af því. Það myndi ekki hitta. Ein af flugskeytaborgum þeirra hefur nú verið sprengd 45 sinnum af bandarískum sprengjuárásum á þessu ferli, og samt var hún að skjóta flugskeytum frá sama stað á hálftíma fresti eftir það.

Svo ég held að við séum í öðrum áfanga til að auka þrýstinginn á Bandaríkin, af því löngunin í skjótan samning er ekki til staðar hjá Íran, og það endurspeglast mjög skýrt á vettvangi. Við sáum þetta kringum útförina. Hugarfar Írana hefur breyst töluvert. Það hefur kveikt eitthvað mun dýpra, kveikt minningu um Íran sem stórt siðmenningar-veldi, sem eitthvað sem hefur haft ráðandi áhrif á svæðinu í þúsundir ára, og það er komið fram við það af virðingarleysi og ókurteisi og það kallað „úrhrak“. Þetta hefur skapað mjög harðan hugarfarsheim, held ég, meðal unga fólksins. Svo, það sem þú sást var ekki fólk á götunum að kalla „Svona nú, gerum samning!“ Við viljum aftur fá samning. Kallið er „Við viljum hefnd!“ Það er það sem unga fólkið hrópar eftir. Það er það sem við sáum í þessum risastóru samkomum kringum útförina. Í Íran og í Írak líka. Þrjár borgir, hver um sig með fjórar til fimm milljónir manna á götunum til að minnast útfarar hins látna æðsta leiðtoga.

Áhrifin á heimshagkerfið

Chris Hedges: Ég vil spyrja um áhrif þessa stríðs innan svæðisins, en áður en ég geri það, velti ég fyrir mér hvort þú gætir fjallað um hugsanlegar afleiðingar langvarandi lokunar bæði Bab-el-Mandeb og Hormúzsunds, ekki bara endilega á olíumarkaðina heldur á heimshagkerfið.

Alastair Crooke: Það er erfitt að gefna þér megindlegt svar við því, því svo mikið er óþekkt. En til dæmis eru Bandaríkin að reyna að takast á við mikla kreppu í Japan, þar sem japanska jenið fellur hratt, og Ameríka reynir að bjarga Japan frá hruni gjaldmiðilsins og þarf að grípa til þess að selja evrur til að kaupa jen, til að reyna að styðja við það. Jæja, af hverju er Japan mikilvægt fyrir Bandaríkin? Vegna þess að það Japan á 1,2 billjónir í bandarískum ríkisskuldabréfum, en einnig vegna sérkennilegrar stöðu sinnar. Í áratugi hefur það haft svo lága vexti að það hefur verið uppsveifla, auðvitað, fyrir Wall Street vegna þess að þeir gátu fengið ódýr lán í Japan og lánað dýrt í Bandaríkjunum og það var áreynslulaus hagnaður, en skyndilega eru vextir að hækka og stór hluti japanska hagkerfisins, um 14%, er nú þegar þegar „uppvakningahagkerfi“ [zombie economy]. Í öðrum heimshlutum gætirðu sagt að þau séu gjaldþrota en þau eru kölluð „uppvakningafyrirtæki“ í Japan. Það eru 14% af hagkerfinu. Og því eru Bandaríkin nú í flóknum aðgerðum þar sem við segjumst ætla að fá japönsk ríkisskuldabréf að láni gegn endurgreiðslu þegar fram líða stundir, en við ætlum að láta ykkur fá peningana fyrir þessu núna svo þið getið keypt meira jen og reynt að styðja við það.

En í stuttu máli, það sem ég er að segja er að skuldabréfamarkaðurinn er í krísu og þess vegna eru markaðirnir í krísu. Netanyahu sleppti kettinum úr sekknum þegar hann kom heim frá Washington. Hann sagði: „Sko, þetta var besti fundur allra tíma, allt var dásamlegt.“ Netanyahu er í kosningabaráttu, það er það sem þetta snýst allt um. En svo bætti hann við: „Trump forseti er að reyna að koma í veg fyrir efnahagshrun.“ Það var það sem þetta snerist um. Og ég held að hann hafi hitt naglann á höfuðið, að áherslan sé nú aðallega á að vernda efnahagskerfið, vernda yfirráð Bandaríkjadals, vernda olíudollarinn, á að vernda allt þetta fjármála- og lánakerfi sem styður við hernaðarviðveru Bandaríkjanna um allan heim, sem fjármagnar stríðin þeirra og vopnin sem notuð eru í stríðunum. Og Íran ógnar einmitt þessu ferli, olíudollaranum. Ógnar allri þessari uppbyggingu við Persaflóa sem er í raun hluti af þessum fjármálavædda heimi Wall Street sem settur er niður við  Persaflóa, rétt við hliðina á Íran. Það er einmitt sú ógn sem Íranar vilja sjá hverfa. Fjármálaógnin, fjármálakerfin þar.

Nýi efnahagur Persaflóaríkjanna eru gagnaver. Þau vilja gagnaverin, og auðvitað veit Íran hvers vegna. Vegna ódýrrar orku, og líka leið til að fylgjast með öllu í Mið-Austurlöndum fyrir hönd Ísraels og Bandaríkjanna. Það vilja Íranir ekki og þess vegna eyðilögðu þeir nýlega stóra gagnaverið, Amazon-gagnaverið í Barein.

Stríð milli Húta og Sádi-Arabíu

Chris Hedges: Tölum þá um svæðið [Miðausturlönd]. Þetta hefur augljóslega skekið undirstöður hernaðarlegra yfirráða Bandaríkjanna um öll Persaflóaríkin. Það var ekki haft samráð við bandamenn við Persaflóa um að hefja þetta stríð. Samt hafa þeir goldið dýru verði, ekki síst vegna nákvæmnisárása sem Íran hefur getað gert, væntanlega með hjálp rússneskra og kínverskra gervihnatta og leyniþjónustuupplýsinga. Áður en við fórum í loftið lýstir þú svæðinu sem viðkvæmu. Talaðu aðeins um áhrifin stríðsins á Persaflóaríkin.

Alastair Crooke: Fyrst myndi ég segja að lykilþættir óvissunnar séu endurtekin stríðsátök milli Húta og Sádi-Arabíu. Það er orðið að heitu stríði. Síðasta sólarhring skutu Hútar flugskeytum niður til Mindat í Hadhramaut-héraði í Jemen á hersveitir og málaliða sem suður-ríkisstjórnin hafði safnað þar saman til að ráðast á Húta. Það birtust myndir af því þegar málaliðarnir flúðu einfaldlega. Þeim hefur verið eytt af flugskeytum Húta.

Chris Hedges: Alastair, leyfðu mér að grípa fram í, þessir málaliðar eru bæði vopnaðir og fjármagnaðir af Sádi-Arabíu. Er það rétt?

Alastair Crooke: Já, það er rétt. Þeir eru staðgengilsherir fyrir hönd Sádi-Arabíu. Þeir voru staðgengilsherir fyrir hönd Óman, en nú staðgengilsherir fyrir hönd Sádi-Arabíu. Og því hafa Hútar rekið þá á flótta. Talið er að Hútar hafi eyðilagt stóru Aramco-olíuhreinsunarstöðina sem er rétt við hliðina á Yanbu, hafnarborg Sáda við Rauðahaf. Þetta var ekki bara einhver olíuhreinsistöð. Við erum vön að heyra um olíuhreinsistöðvar sem verða fyrir árásum, t.d. í Rússlandi, sem er fljótt gert við. En þessi stöð var upphafið og endirinn á öllum olíuhreinsunarstöðvum. Þetta var nýjasta olíuhreinsunarstöð í heimi og hún hefur nú verið eyðilögð. Og þar endaði olíuleiðslan sem lá frá austri til vesturs að Rauðahafi og á sama tíma voru Aramco-mannvirkin, dælustöðin austan megin við Hormússund, einnig eyðilögð. Þannig að olíuleiðslan sem flytur sádi-arabíska olíu frá aðalolíusvæðum þeirra til Rauðahafs var algjörlega eyðilögð.

Anspyrnan í Írak að virkjast

[Crooke áfram] Sádar sögðu ekki að það hefðu verið Hútar sem gerðu þetta, heldur sögðu þeir að það væri írakska andspyrnuhreyfingin, Hashd al-Shaabi, sem bæri ábyrgð á þessu. Hashd al-Shaabi neitaði því alfarið og sagði, nei, það vorum ekki við – og það er líklegt að svo hafi ekki verið, því það er Arba’in í Írak, 40 daga tímabil sem markar dánarafmæli Imams Husseins í Karbala og það er trúarlegt tímabil, ekki tími stríðs. En Sádar og Bandaríkjamenn réðust samt á írösku andspyrnuhreyfinguna, drápu marga og drápu líka nokkra hermenn úr Íranska byltingarverðinum.

Og þá hefur Írak-stjórn hafið tilraun til að hreinsa út hluta andspyrnunnar undir yfirskini baráttu gegn spillingu. En það sjást merki um að andspyrnuhreyfingin í Írak hafi verið að færa sig upp að landamærum Sádi-Arabíu, og írakska ríkisstjórnin er að reyna að stöðva það og reyna að halda því í skefjum og hóta andspyrnuhópunum. Í Írak eru um það bil 60% sjía-múslimar, 40% hinna skiptast milli súnní-múslima og Kúrda. Þannig að súnní-múslimar eru frekar lítill hluti. Sjía-múslimar eru stærsti hlutinn. Það er alltaf talað um þá í vestrænum fjölmiðlum og sagt: „En þetta eru bara staðgenglar Írans!“ Eins og það að setja þrýsting á þá myndi setja þrýsting á Íran í deilunni um Hormúzsund. En þeir eru ekki staðgenglar. Ég þekki þá. Ég hef hitt Hashd-hersveitirnar. Þeir eru sterkir íraskir þjóðernissinnar. Já, vissulega sjía-múslimar. Og já, Íran er móðurskip sjía-trúar, en þetta eru írakskir þjóðernissinnar. Meirihluti þeirra tignaði og viðurkenndi æðsta leiðtoganum sem var myrtur 29. febrúar sem fyrirmynd sína. Þannig að þeir eru mjög reiðir yfir dauða hans. Hann var trúarleiðtogi þeirra, ekki bara Írans. Og því hafa þeir sagt að hefndar verði leitað. Þeir hafa gefið íröksku ríkisstjórninni lítið svigrúm.

Þannig að það er mikið að hitna í kolunum milli Sádi-Arabíu og Íraks og Bandaríkjanna og Íraks. Hashd-sveitirnar eru greinilega að virkjast en hafa ekki enn tekið ákvörðun um aðgerðir. Á sama tíma í Írak hafa Íranir farið inn í það sem er kúrdíski hluti Íraks, Kúrdistan ef þú vilt, og ráðist á kúrdískar hersveitir þar, myrt suma af leiðtogum þeirra, ráðist á birgðalínur þeirra, eldsneyti og skotfæri vegna þess að fregnir bárust af því að Bandaríkin væru að reyna að sjá hvort hægt væri að endurvekja áætlun sem hefur þegar mistekist, um að Kúrdar réðust inn í Íran og stofnuðu smáríki, til að setja meiri þrýsting á Íran, þannig að þeir eru að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða þar til að stöðva slíkt.

Árásir í Egyptalandi og á Kaspíahafi

Við höfum líka séð drónaárás á gasflutningaskip í höfn í Egyptalandi undanfarna daga. Ekki er ljóst hver ber ábyrgð á því, en stríðið milli Sádi-Arabíu og Jemen er að harðna til muna. Og ég held að ástæðan fyrir því að Sádi-Arabar kenndu Hashad í Írak um árásirnar á Aramco-mannvirkin hafi líklega verið sú að þeir vildu ekki magna upp stríðið við Húta. En þetta er til marks um að Sádi-Arabía er ekki áköf í að lenda í þessu stríði við Jemen, en á sama tíma eru Sádar nú peningalausir. Þeir fá engar tekjur. Þeir voru hvort eð er peningalitlir. Það er ekki komið svo langt með Abu Dhabi en Persaflóaríkin eru líka peningalítil. Þannig að allt þetta er að verða mjög heitt, hitinn á hellunni er að aukast. Og það er misreikningur hér eins og misreikningur Úkraínumanna sem reyndu að ráðast á íranskt skip í Kaspíahafi. Slíkt getur auðveldlega breytt öllu gangverki þessa stríðs og dýpkað það. Aðalatriðið er þetta: Trump talar um að reyna að finna lausn á Írans-vandanum. Sjáið hvað gerist, það breytist í klasa annarra átaka.

Net staðbundinna átaka sem er samtengt – og stigmagnast

Ég hef ekki einu sinni minnst á Líbanon í þessu ferli. En Washington hefur reynt að hvetja Al-Sharaa í Sýrlandi [forseta, áður nefndur Jolani] til að koma og taka þátt í afvopnun Hezbollah eða ráðast á sjía-þorpin á landamærum Líbanons og Sýrlands. Og Tyrkland, sem hefur töluvert vald yfir herliðinu í Damaskus, segist ekki vera á móti því að Sýrland taki þátt í Líbanonstríði. En um leið og það gerðist fengum við sterk viðbrögð frá Írak, frá írösku andspyrnuhreyfingunni sem sagði við Al-Sharaa: ef þið komið nálægt Líbanon þá komum við inn í Sýrland og við munum ráðast á ykkur frá þeirri hlið.

Þannig að allt saman verður þetta meira og meira blandað og við höfum möguleikann á að svartur svanur fljúgi yfir og ég held að við verðum að taka það alvarlega. Nefnilega að messíasar-hægrið í Ísrael, Ben-Gvir og Smotrich, sérstaklega Ben-Gvir, segja að þeir vilji sjá kreppu á Vesturbakkanum, stóra kreppu kannski á Musterishæðinni, kannski stríð á Vesturbakkanum. Þeir vilja fá fram kreppu sem mun neyða Palestínumenn til að flýja frá Vesturbakkanum og það mun hjálpa þeim að vinna kosningarnar í Ísrael. Þetta snýst um kosningarnar, en það er líka tvíþættur hvati til að ögra fram annars 1948-ástands með Palestínumenn á flótta frá Vesturbakkanum undan lífsháska. Svo þeir eru að undirbúa það. Það á að eiga sér stað í október og það er ekki ljóst hvað mun gerast og það er ekki ljóst að það muni ekki enda með ofbeldisbylgju í Ísrael, og framtíð Netanyahu er engan veginn örugg, en að kveikja í Vesturbakkanum um þetta leyti hefur verið langvarandi markmið. Ég man eftir því að Smotrich talaði um þetta fyrir nokkrum árum í ræðu sem hann hélt fyrir LIKUD þegar hann sagði: „Hlustið, þetta er áætlun okkar og Arabarnir munu fara.“ Og hann sagði: „En það sem við þurfum virkilega til að framkvæma þessa áætlun er stór kreppa eða stórstríð. Og í því stríði verður áætlunin loksins framkvæmanleg.“

Svo allt þetta gerir ástandið mjög óstöðugt en það er ekki punkturinn minn, það er enginn hreinn tvíhliða samningur í boði fyrir Washington, þetta er nú orðið að klasa smærri stríða sem eiga sér stað um allt svæðið, sem öll eru samtengd en eiga sér ólíkan málstað. Líbanonstríðið, stríðið við Jemen, aðstæðurnar í Sýrlandi, allt þetta hefur gjörólíkar dagskrár. Möguleikinn á að Washington nái heildstæðri lausn virðist mér nú vera nálægt núlli. Egyptar og Jórdaníumenn hafa fært heri sína framar. Egyptar á Sínaí, Jórdaníumenn meðfram landamærunum að Vesturbakkanum til að koma í veg fyrir þess konar þjóðernishreinsanir sem Smotrich og aðrir hafa opinskátt mælt með – held þeir kalli það „sjálfviljugan flutning“ eða eitthvað slíkt. Svo ef þeir reyna að ýta Palestínumönnum út af Vesturbakkanum eða þeir ákveða loksins að þeir vilji gera slíka atlögu á Gaza þar sem um 2 milljónir Palestínumanna eru nú samþjappaðar og innilokaðar, í yfirfullum, spennuþrungnum borgum á þriðjungi ræmunnar (Ísrael hefur þegar lagt undir sig 70% af Gaza). Hvernig spilast það út? Skapar það ekki hernaðarátök milli Ísraels og annaðhvort Jórdaníu eða Egyptalands? Það gæti brotist út á marga mismunandi vegu. Þetta er nákvæmlega það sem ég er að reyna að segja, þetta er íkveikja. Allt svæðið gæti verið ein eldspýta hér, önnur eldspýta þar, annað morð í Líbanon, fjöldamorð annars staðar, það er mjög óstöðugt, en sérstaklega gætu palestínsku málin blossað upp með afleiðingum sem gætu dregið Íran aftur inn í átökin beint við Ísrael. Það gæti til dæmis leitt til þess að Íran geri beinar árásir á Ísrael á norðursvæðunum. Það eru svæðin frá suðurhluta Líbanons niður að Galíleu. Íran býst við átökum við Bandaríkin, en ég held að þeir búist við því að þau muni fela í sér Ísrael á einhverjum tímapunkti og þeir eru undir það búnir.

Ísrael og Persaflóafurstadæmin viðkvæmari en Íran

Fólk segir oft að Ísrael sé svo sterkt hvað varðar innviði, sem þeir segjast vilja ráðast á í Íran. En þeir hafa í raun aðeins tvær olíuhreinsunarstöðvar, bara tvær, og þeir hafa lítið land og því eru orkuver þeirra miðlæg og samþjöppuð á meðan Íran er stórt land og orkumannvirki þess og allir innviðir eru dreifðir. Þeim hefur verið dreift, eins og ég segi, í 20 ár einmitt vegna komandi stríðs við Bandaríkin.

Vill Ísrael stríð við Íran? Nei. Það vill að Trump heyji stríð við Íran og eyðileggi Íran, eyðileggi innviði þess svo ríkið geti ekki lengur veitt borgurunum þjónustu. Þetta er krafa um að ríkið skuli vera svo eyðilagt að það sé ófært um að veita fólki sínu nokkra þjónustu, það jafngildir í raun hægfara taktískri kjarnorkuvopnaárás í stað einnar stórrar því það þýðir að vera án vatns, án rafmagns á þessum árstíma, án eldsneytis. Það ómögulegt að lifa slíkt af, en ef þetta gerist munu Íranar svara fyrir sig með árásum á vatnshreinsistöðvar Sádi-Arabíu og Persaflóaríkjanna og þau eru mjög viðkvæm fyrir því. Íran er minna viðkvæmt hvað varðar vatnshreinsun. Aðeins 3% af vatni þeirra kemur frá hreinsun.

Chris Hedges: Leyfið mér bara að skjóta því inn að 70% af afsöltunarstöðvum sjá fyrir vatni í Sádi-Arabíu. Ég held að hjá Sameinuðu arabísku furstadæmunum sé það yfir 80%. Ef Íran slægi út þessar afsöltunarstöðvar, ég held að öll Ríad, til dæmis, sé háð afsöltun, það myndi skapa mannúðarkrísu um allt svæðið.

Alistair Crooke: Algjörlega. En er það tekið með í reikninginn í Washington? Auðvitað er það skilið í sumum kreðsum í Washington, en að hve miklu leyti er þetta lagt fyrir Trump þegar hann er í réttu hugarástandi til að heyra eitthvað og skilja það, svo hann haldi ekki bera að segja: „Ó, Íran er sigrað. Það er brotið. Við höfum unnið stríðið.“ Þetta er óvissuþátturinn í þessu, hvað sem er gæti gerst hvar sem er á svæðinu, en röng ákvörðun gæti sprengt allt upp því allir þessir hlutir eru samtengdir. Og þú veist að Íran mun ekki standa aðgerðalaust hjá ef Palestínumönnum væri hent út af Gaza eða hent út af Vesturbakkanum. Þetta er allt samtengt: það sem gerist í Sýrlandi, það sem gerist með Hashad, Hashad gæti komið inn í Sýrland, allt er í lausu lofti. Að hve miklu leyti er þetta raunverulega ígrundað í Washington og skilið?

Og maður verður að segja í lokin: þetta er það sem þeir kölluðu yfir sig. Þeir hugsuðu: við getum ekki beitt Íran nægilegum hernaðarlegum þrýstingi, svo við munum beita þrýstingi frá Írak, við munum afvopna, hóta að afvopna vígasveitirnar í Írak, við munum hóta að afvopna Hizbollah. Það eina tekist hefur með þessu er að gera málið 10 sinnum flóknara að leysa.

Chris Hedges: Frábært. Takk fyrir, Alastair.

Viðtalið birtist á The Chris Hedges YouTube Channel þann 9. ágúst.

[Þýðing: Þórarinn Hjartarson]

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.