Ortega boðaði ekki endalok allra kosninga í Níkaragva
—

Andri Sigurðsson
22. júl, ’26

Fjöldi vestrænna fjölmiðla auk Vísir.is hafa undanfarna daga haldið því fram að Daniel Ortega, foresti Níkaragva, hafi tilkynnt að engar kosningar yrðu framar haldnar í landinu. Sú túlkun byggist á einni setningu sem tekin hefur verið úr samhengi úr langri ræðu sem Ortega hélt í tilefni þess að 47 ár eru liðin frá byltingu Sandínista-hreyfingunnir 1979. 

Í opinberri endurritun ræðunnar frá 19. júlí segir Ortega fyrst að tiltekin stjórnmálaöfl tengd Bandaríkjunum leggi stöðugt á ráðin um að stofna flokka sem geti komist til valda:

„Nú er þeirri sögu lokið að flokkar sem Bandaríkjamenn og Somoza-öflin koma á fót komist aftur til valda. Aldrei! Aldrei! Aldrei!“

Ortega tengir þetta við atburðina 2018, sem ríkisstjórn Níkaragva skilgreinir sem valdaránstilraun fjármagnaða af Bandaríkjunum. Síðan koma ummælin sem fjölmiðlar hafa birt án samhengisins:

„Þeir mega gleyma því. Hér verða ekki aftur haldnar kosningar sem þeir geta notað til að ná tökum á ríkisstjórninni, til að ná völdunum.“

Fornafnið „þeir“ vísar ekki til stjórnarandstöðunnar eða kjósenda almennt. Það vísar til flokkanna sem Ortega hafði rétt áður lýst sem studdum af Bandaríkjunum, tengdum Somoza-öflunum og ábyrgum fyrir valdaránstilrauninni 2018. Forseti þjóðþings Níkaragva, Gustavo Porras, túlkaði ummæli Ortega síðar með sama hætti:

„Í þessu landi verða ekki aftur haldnar kosningar sem gera heimsvaldasinnum og óvinum þjóðarinnar kleift að komast til valda.“

Meðforseti Ortega, Rosario Murillo, hélt líka ræðu þar sem hún undirstrikaði sömu skilaboð að kosningar yrðu haldnar: „Kosningar, já, en okkar eigin kosningar. Og þegar við segjum okkar eigin eigum við við kosningar okkar blessuðu þjóðar, mótaðar og skipulagðar á grundvelli fullveldis landsins.“

Umfjöllin Vísir.is og The Guardian.

Vísir og The Guardian fullyrða hins vegar að Ortega hafi verið að beina orðum sínum gegn allri stjórnarandstöðu landsins en það er augljóslega rangt eins og sýnt hefur verið fram á hér að ofan. Fjöldi stjórnarandstöðu flokka eru starfandi í landinu sem falla ekki undir skilgreinignu Ortega.

Til að bíta höfuðið af skömminni eru svo samtökin sem The Guardian byggir umfjöllunina á með djúp tengsl við Bandarísk yfirvöld. ACLED (Armed Conflict Location & Event Data) er bandarísk stofnun sem hefur þegið milljónir dala frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og USAID. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins á jafnframt sæti í stjórn ACLED og annar stjórnarmaður, Keith E. Noble, er háttsettur embættismaður ráðuneytisins sem starfaði í áratug hjá CIA.

Tiziano Breda, sérfræðingurinn sem Guardian vitnar í, starfaði til skamms tíma sem ráðgjafi utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um málefni Níkaragva. Bæði The Guardian og Vísir nota orð Tiziano til þess að halda þessu fram og spyrða Ortega og stjórnina í Nígaragva við einræði.

Ortega boðaði lög sem eiga að koma í veg fyrir að tiltekin öfl sem studd eru af Bandaríkjunum geti komist til valda. Hann lýsti ekki einfaldlega yfir endalokum allra kosninga í Níkaragva.

Bandarískar íhlutanir og yfirgangur hafa lengi þjakað Rómnsku Ameríku og aldrei meira en nú um stundir, og skiljanlegt að ríki sem vernda vilja sjálfstæði sitt reyni að koma vörnum við.

Það má gagnrýna þessa stefnu og spyrja hvort útilokun þessara flokka sé réttlætanlega eða ekki. En sú umræða verður að byggjast á því sem Ortega sagði í raun. Fullyrðingin „Ortega afnemur allar kosningar“ fæst aðeins með því að fjarlægja allt samhengi. 

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.