Stór-Ísrael
—

Hjálmtýr Heiðdal
30. jún, ’26

Skapað með landstuldi, þjóðernishreinsunum og þjóðarmorði

Með aðgerðaleysi sínu hafa Ríkisstjórnir Vesturlanda tekið þá pólitísku ákvörðun að fórna palestínsku þjóðinni á altari síonismans. Um leið taka þær þátt í að grafa undan því alþjóðlega réttarkerfi sem þjóðir heims reiða sig á. Ekki síst þær smærri.

Hjálmtýr Heiðdal

Ísrael sækir að nágrönnum sínum með fullkomnustu hertólum, rænir landi og myrðir. Stjórnmálamenn í Ísrael lýsa því yfir hver um annan þveran að þeir ætli ekki að draga herinn til baka. Þeir ætla ekki að yfirgefa Gaza, Vesturbakkann, suðurhluta Líbanon eða Sýrland.

Itamar Ben-Gvir, ráðherra í ríkisstjórn Ísraels, lýsti því yfir að hann væri „stoltur af eyðileggingu Gaza“ og að „fyrir hvert tár sem ísraelsk móðir fellir, ættu þúsund líbanskar mæður að gráta. Allt Líbanon ætti að brenna.“ Það þarf varla að taka það fram að ísraelskar mæður eru að gráta fallna dætur og syni, hermennina sem voru sendir til Gaza og Líbanon til að myrða fólk, þ.á.m. yfir 20.000 börn.

May Golan, ráðherra jafnréttismála í ríkisstjórn Ísraels, sagði: „Ég er persónulega stolt af rústunum á Gaza og að hvert einasta barn, jafnvel eftir 80 ár, muni segja barnabörnum sínum frá því hvað gyðingarnir gerðu.“ Yfirlýsingar og gjörðir ráðamanna í Ísrael sýna að þar fer fólk statt utan allra siðferðilegra marka.

Síonistar segjast starfa í nafni allra gyðinga, en sívaxandi fjöldi gyðinga í Bandaríkjunum og víðar afneitar síonismanum og berst gegn glæpum Ísraelsríkis með kjörorðunum „ekki í okkar nafni!“

Hugmyndin um Stór-Ísrael hefur verið á dagskrá síonista allt frá stofnun Ísraelsríkis árið 1948 þegar 750.000 Palestínumenn voru hraktir í útlegð og heimili þeirra annað hvort jöfnuð við jörðu eða afhent gyðingum sem flúið höfðu eigið þjóðarmorð í Evrópu. Ísraelsríki stal landi palestínskra fjölskyldna og flestum eigum þeirra og engar bætur greiddar.

Hugmyndir síonista um stórveldi sitt ná yfir alla Palestínu og Jórdaníu auk stórra landsvæða í öðrum nágrannaríkjum. Þessa stefnu þekkir heimurinn því miður frá tíð nasismans. Hún gekk þá undir heitinu Lebensraum!

Kannanir sýna ítrekað að meirihluti síonískra íbúa Ísraels styður þjóðarmorð, þjóðernishreinsanir og landrán. Helför gyðinga af hendi Evrópubúa er gjarnan notuð sem réttlæting fyrir þessari afstöðu, á meðan aldalöng friðsamleg sambúð gyðinga, múslima og kristinna í landinu helga fram að stofnun Ísraelsríkis er virt að vettugi.

Í munni lítilsigldra vestrænna ráðamanna verður kjarnastefna síonismans að slagorðinu „Ísrael hefur rétt til að verja sig.“ Svo lengi sem vestræn stjórnvöld styðja Ísrael með vopnum og pólitísku skjóli verða Palestínubúar áfram myrtir og landi þeirra rænt – því síonisminn er nýlendustefna.

Refsiaðgerðir gegn Ísrael fyrir brot á alþjóðalögum, brotum gegn Sáttmála gegn þjóðarmorði, brotum á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru engar.

Vesturlönd vörpuðu glæpum nasista gegn gyðingum á Palestínumenn sem áttu enga sök á gyðingaofsóknum Evrópubúa. Frá stofnun Ísraels hafa Palestínumenn greitt skuld Vesturlanda með eigin blóði og landi. Skuld Íslands og annarra Vesturlanda gagnvart palestínsku þjóðinni er löngu komin á gjalddaga!

Helförin verður aldrei skálkaskjól fyrir þá sem fremja þjóðarmorð.

Greinin birtist á Vísi 29. júní

Hjálmtýr Heiðdal er formaður Félagsins Ísland – Palestína og höfundur bókarinnar Íslandsstræti í Jerúsalem.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.