Handan ESB og hnignun nýlenduveldanna
—

Jón Karl Stefánsson
27. jún, ’26

Í umræðunni um með eða á móti ESB er oftast horft fram hjá mjög mikilvægri efnahagslegri þróun á heimsvísu. Við erum vön því að leggja ofuráherslu á stöðu okkar gagnvart hinu vestur-evrópska hagkerfi, og svo ESB, hvort sem það er í gegnum samninga á borð við EES, eða tal um aðildarviðræður við sjálft bandalagið. Á þeim tíma höfum við sennilega ekki tekið nógu vel eftir því að efnahagslegt mikilvægi ESB fer hraðminnkandi á heimsvísu.

Árið 2004 stóð ESB fyrir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun heimsins, en árið 2023 hafði þessi hlutdeild lækkað niður í 14,7% (International Monetary Fund, 2026). Á sama tíma hafa önnur svæði heimsins, t.a.m. Kína, Indland, Brasilía, Nígería, Indónesía, Víetnam o.fl., vaxið umtalsvert meira og hraðar. Þessi fyrrum „þriðja-heims“ ríki eru smátt og smátt að verða mikilvægari drifkraftar alþjóðlegrar framleiðslu, fjárfestinga og neyslu. Flestar hagspár benda til þess að þessi þróun muni halda áfram. Hlutdeild ESB í verðmætasköpun heimsins mun minnka og minnka á öllum sviðum. Þetta kemur meir að segja fram í skýrslum frá sambandinu sjálfu (European Commission, 2024).

Þegar horft er á ástæðurnar fyrir þessari neikvæðu þróun þá hafa stofnanir á borð við OECD (2025) vísað til atriða á borð við almennt veikan framleiðnivöxt, sundurleitan innri markað, öldrun íbúa, takmarkaða fjárfestingu, of flókið regluverk og svo vaxandi orkukostnað, sérstaklega vegna viðskiptaþvingana gegn Rússlandi og Íran. En það sem ekki er minnst á, en ætti að vera, er í raun það orð sem ríki Evrópusambandsins hafa skapað sér í tímans rás. Ef eitthvert ætti að velja sem lýsir því best, þá er það þetta: Hroki. Og þennan hroka höfum við einnig tileinkað okkur.

Það voru gömlu nýlenduveldin: Belgía, Frakkland, Þýskaland o.s.frv. sem fóru fremst í flokki við myndun þessa sambands. Við gætum verið blind á það að erindrekar Evrópuríkjanna tala og haga sér enn eins og meistarar heimsins; skipa öðrum þjóðum fyrir, styðja hernað og efnahagsþvinganir gegn þeim sem þeir dæma sem óþæga og halda í efnahagslega ný-nýlendustefnu í gegnum stofnanir sínar. En restin af heiminum sér þetta vel.

Ríki á borð við Kína og Indland þekkja þessa ömurlegu hlið evrópskrar yfirburðahyggju vel á eigin skinni. Nú þegar þær mjakast hægt en sígandi fram úr Evrópu, þá vaknar spurningin kannski; munu íbúar þessara ríkja sýna okkur meiri samúð og virðingu en Evrópa sýndi þeim?

Kannski, bara kannski, ættum við að fara brjóta odd af oflæti okkar sem Evrópuherra og fara að stunda diplómatíu við þá hluta heimsins sem eru í örustum vexti. Þá dugar ekki að haga sér eins og við gerðum gagnvart Namibíu í Samherjamálinu. Og kannski við ættum að hugsa um meira en meintan „pakka“ sem hnignandi heimsveldi eru að dingla fyrir framan okkur. Í raun er ekki um annað að ræða en að við lærum að hugsa og haga okkur eins og það sem við erum: Æ ómerkilegri hluti af stórum heimi. Við verðum að láta af Evrópuhrokanum, hvort sem við bindum okkur við þennan deyjandi mann í heiminum eða ekki.

Heimildir

European Commission. (2024). The future of European competitiveness: A competitiveness strategy for Europe. https://commission.europa.eu/document/download/97e481fd-2dc3-412d-be4c-f152a8232961_en

International Monetary Fund. (2026). World Economic Outlook (April 2026): IMF DataMapper. https://www.imf.org/external/datamapper/NGDP_RPCH@WEO/OEMDC/ADVEC/WEOWORLD

Organisation for Economic Co-operation and Development. (2025). OECD Economic Surveys: European Union and Euro Area 2025. OECD Publishing. https://www.oecd.org/en/publications/oecd-economic-surveys-european-union-and-euro-area-2025_5ec8dcc2-en.html

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.