Sósíalisti skýrir afstöðu sína til aðildar að ESB og viðræðna um hana
—

Einar Ólafsson
20. jún, ’26

Hér eru í grófum dráttum helstu ástæður fyrir því að ég hyggst greiða atkvæði gegn því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið

ESB er upphaflega og í grunninn efnahagsbandalag en ólíkt öðrum efnahagsbandalögum, eins og t.d. EFTA, hefur það  verið að þróast í áttina að sambandsríki, þótt enn sé talsvert í það. Aðildarríkin halda enn fullveldi sínu (ég veit að þjóðréttarfræðingar telja þetta orð ekki eiga við hér) að töluverðu leyti, en smám saman hefur löggjöf þeirra komið æ meir frá ESB, þar sem þessi ríki hafa þó vissulega sín áhrif að einhverju marki. En ekkert eitt ríki getur breytt þessum lögum og reglum eða sagt sig frá þeim eftir að þau eru komin á.

Grundvöllur ESB er ákveðin efnahagsstefna. Í Sáttmálanum um Evrópusambandið (3. gr.), öðrum af tveim hlutum Lissabon-sáttmálans, sem er í raun óformleg stjórnarskrá ESB, segir að grundvöllur ESB sé „félagslegt markaðshagkerfi“. Þetta er hugmynd sem þróaðist í Þýskalandi á eftirstríðsárunum til mótvægis við hugmyndir sósíalista og krata, þetta „félagslega“ átti að slá vopnin úr höndum þeirra. Kristilegir demókratar voru helstu pólitísku talsmenn þessa. Þarna er reyndar líka vikið að ýmsu ágætu, svo sem félagslegum framförum og umhverfisvernd.

Hinn hluti Lissabon-sáttmálans, Sáttmálinn um starfshætti Evrópusambandsins, er miklu lengri (samtals eru þeir 185 síður í íslensku þýðingunni) og fjallar að verulegu leyti um efnahagsmál, um framkvæmd hins kapítalíska hagkerfis. Eftir því sem ég best veit fjalla flestar stjórnarskrár lítið um efnahagsmál og hagkerfi. Í íslensku stjórnarskránni, bæði núgildandi og tillögunum í skúffunni, er ákvæðið um eignarrétt það eina sem hugsanlega mætti tengja við efnahagsmál.

Þrátt fyrir þetta ákvæði um „félagslegt markaðshagkerfi“ hafa margir, þar á meðal margir fræðimenn, bent á að í reynd hafi hagkerfi ESB einkennst í æ meiri mæli af nýfrjálshyggju og það komi m.a. fram í dómaframkvæmd dómstóls ESB.

Fyrir mig sem sósíalista hlýtur því að þurfa mjög ríka ástæðu til að styðja aðild að ESB. Auðvitað er Ísland kapítalískt samfélag, en ég get þó barist fyrir lausnum í sósíalískum anda, get lagt mitt af mörkum til að á þingi verði flokkur sem vil breyta lögum í þá átt. En vissulega koma nú þegar lög frá ESB gegnum EES-samstarfið sem eru óbreytanleg meðan við erum í því.

Þetta er sem sagt mín grundvallarafstaða hvað sem kæmi út úr samningi. Staðreyndin er reyndar sú að við yrðum bara að gangast inn á ESB eins og það er. Kannski eru einhverjar undanþágur hugsanlegar varðandi einhver aukaatriði en fyrst og fremst snýst samningurinn bara um hversu hratt við aðlögum okkur í einhverjum málum.

Af þessu leiðir að ég hef enga ástæðu til að greiða atkvæði með aðildarumsókn eða viðræðum þar að lútandi.

En það má svo sem bæta við fáeinum orðum í mjög grófum dráttum um kosti og galla aðildar að ESB burtséð frá þessu:

Ég er ekki viss um að aðild fylgi einhver stórkostleg hætta sem kæmi fram í okkar daglega lífi. En vissulega fylgir henni viss skerðing á fullveldi og eflaust eru þar ýmis atriði, jafnvel nokkuð alvarleg, sem betra væri að við gætum haft stjórn á. Og þótt við fáum sæti við borðið er hætt við að við gætum lítil áhrif haft á þær reglugerðir sem við bætast í framtíðinni.

En ég sé ekki heldur neina þörf á aðild. Almennt eru lífskjör á Íslandi og lýðræðisfyrirkomulag með því besta sem gerist í heiminum, þótt margt megi bæta, en ég sé ekki að neitt mundi batna beinlínis með aðild að ESB sem við gætum ekki gert sjálf ef pólitískur vilji væri fyrir hendi. Vissulega hefur ESB staðið sig í ýmsu þrátt fyrir tilhneigingu til nýfrjálshyggju, svo sem í neytendavernd og umhverfisvernd, en það getum við tekið allt upp á eigin forsendum.

Einhver aumustu rök sem ég sé er að við þurfum að ganga í ESB af því að við getum ekki stjórnað okkur sjálf.

En almennt er mikið um ýkjur og sleggjudóma á báða bóga.

Og svo verð ég að bæta við að í mörgum aðildarríkjum ESB og í sambandinu sjálfu fer hernaðarhyggja vaxandi. Auk þess hafa stríðsglæpir Ísraels á Gasa ekki kallað á nein viðbrögð ESB önnur en innantóm orð þrátt fyrir mikil samskipti milli ESB og Ísraels. Samtímis því samþykkir ESB hvern refsipakkann af öðrum gagnvart Rússlandi. Með þessum skelfilega tvískinnungi birtist hjá talsmönnum og helstu stofnunum ESB rasísk hugmynd um „okkur og hin“. Og í reynd er ESB meira og minna samábyrgt vestrænni heimsvaldastefnu undir forystu Bandaríkjanna.

Þetta eru auðvitað grófir drættir og að ýmsu að hyggja, en látum þetta nægja að sinni.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Nýjustu greinar

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.