Við erum pakkinn

Ögmundur Jónasson
13. júní, 2026


Í vikunni sat ég fund í Þýskalandi þar sem þess var minnst hvernig friðarhreyfingum hefði tekist að skapa jarðveg fyrir afvopnunarsamninga undir lok síðustu aldar. Krafan sem milljónirnar á fjöldafundunum höfðu sameinast um var að í stað þess að færa vopnin nær hugsanlegum átakalínum yrðu þau fjarlægð þaðan og þeim fækkað. Nú væri öldin önnur, alið væri á stríðsótta og að lausnin væri fleiri vopn en ekki færri, stigmögnun í stað slökunar, “óvinurinn“ skyldi gersigraður!

En eins og Hemingway sagði forðum vinnast stríð aldrei með vopnum, þau vinnist ekki einu sinni með sigri. Friður fengist með öðum hætti.

Mér var bent á að í kauphöllunum birtist veruleikinn. Hlutabréf í Volkswagen, áður tryggust fjárfesting í Þýskalandi, hröpuðu í verði en bréfin í Rheinmetall vopnaverksmiðjunum næðu háum hæðum. Vopnaiðnaðurinn væri orðinn ráðandi. Fjármunir sem áður var varið til velferðar færu nú í vígbúnað. Telji einhver að innan Evrópusambandsins sé lítil spilling ætti sá hinn sami að kynna sér hagsmunatengsl stjórnmálanna við vopnaiðnaðinn.

En hvers vegna Evrópusambandsaðild Íslands? Þið búið við mestu hagsæld á byggðu bóli, eruð tengd mörkuðum Evrópu en getið jafnframt gert tvíhliða samninga við hvert það ríki sem þið viljið en ætlið að láta Evrópusambandið taka undan ykkur stólinn við samningaborð heimsins og lokast inni í glórulausri hervæðingu. Þið eigið að vera í stöðu friðflytjandans sem heiminn sárlega vantar.

Ég sagði marga vilja „kíkja í pakkann“ og auk þess þætti meira öryggi að heyra til stórri efnahagssamsteypu með sameiginlegan gjaldmiðil.

Þið viljið með öðrum orðum athuga hvort þið komist upp með að halda sjálfstæði umfram okkur hin, yfirráðum auðlinda og fullveldi fram yfir það sem þið fenguð með EES samningnum? Það eruð þið sem eruð pakkinn og eruð það þá ekki þið sjálf sem þurfið að rýna í hvað þið eruð að gera og það óafturkræft?

Allt þetta var sagt í vinsemd en forundran og klykkt út með einfaldri en umhugsunarverðri ábendingu: “Stór skip geta sokkið ekkert síður en smá“.

Þarna var samhljómur við bréf sem mér barst : “Það er enginn pakki að kíkja í. Ísland er pakkinn sem sumir vilja afhenda öðrum á kostnað íslensku þjóðarinnar með glæfralegum líkindareikningum sem byggja á breytilegum aðstæðum eftir inngönguna, umsækjanda í óhag! Leyfum sjálfstæði þjóðarinnar að ná einnar aldar afmæli áður en við látum það frá okkur.”

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 13/14.06.26.

Myndin er frá EEAS, utanríkisþjónustu ESB

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

ESB nei takk

ESB nei takk

Karl Héðinn Kristjánsson

Ég kýs nei við ESB 29. ágúst. Fólk talar mikið um að við eigum einfaldlega að „kíkja í pakkann“. En pakkinn er ekki lokaður …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Nýjustu greinar

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Fólkið á myndunum

Fólkið á myndunum

Guðmundur Brynjólfsson

Á dögunum var mikið úr því gert hérlendis að forsætisráðherra Íslands hefði talað við tvo breska uppgjafar stjórnmálamenn sem halda úti hlaðvarpi, svo málefnalega …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.