Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja
—

Ögmundur Jónasson
1. jún, ’26

Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti þjóðarinnar andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Jafnara er hins vegar á metunum þegar spurt er hvort eigi að kíkja í pakkann, sjá hvort Íslendingar geti fengið sérmeðferð, varanlegar undanþágur frá laga- og regluverki ESB umfram það sem önnur ríki fái. Varla getur þetta talist stórmannleg nálgun

En fordæmið hafði verið sett þótt á sinn hátt hafi verið gengið hreinna til verks í fyrri lotu með bréfi sem forsætisráðherra og utanríkisráðherra undirrituðu hinn 16. júlí árið 2009 en þar segir : “The Government of Iceland has the honour to present hereby … the application of the Republic of Iceland for membership of the European Union” ( Ríkisstjórn Íslands hefur þann heiður að sækja hér með … um aðild að Evrópusambandinu).

Þetta var gert og samþykkti Alþingi jafnframt fyri rvara til brúks fyrir “samningamenn” Íslands að ræða í Brussel í aðdraganda inngöngu Íslands. Þessum fyrirvörum hafnaði Evrópusambandið jafnharðan og þeir voru settir fram en lýsti sig reiðubúið að semja um aðlögunarhraða á ýmsum sviðum.

Sama staða er nú komin upp. Inngöngusinnar í ríkisstjórn og á Alþingi leggja áherslu á að hér sé um framhaldsviðræður að ræða frá 2009 og gildir framhaldið þá væntanlega í þeirra huga um aðildarumsóknina og þá einnig fyrirvarana sem settir voru á sínum tíma.

Af hálfu þeirra sem ginnkeyptir eru fyrir Evrópusambandsaðild hafa þær raddir heyrst að mikilvægt sé að samið verði um óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum sínum til lands og sjávar, að við ráðum í grundvallaratriðum landbúnaði og getum heft innflutning á lifandi búfénaði til að verja íslenska stofna fyrir sjúkdómum, að við höfum mótun utanríkisstefnu í eigin höndum, getum samlagað okkur stefnu Evrópusambandsins þegar til þess er vilji en greint okkur frá henni þegar þannig skipast mál, að við sitjum sjálf með eiginn fulltrúa við samningaborð gagnvart Bandaríkjunum um hernaðarmál en að ESB sé ekki málsvari okkar við slíkt borð, að við eigum sæti sjálf í alþjóðasamningum um viðskipti til dæmis hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, að við getum gert tvíhliða viðskiptasamninga við erlend ríki án aðkomu ESB en jafnframt haldið stöðu okkar innan innri markaðar Evrópusambandsins og notið þess sem sá markaður hefur upp á að bjóða.

Raunsæismenn segja margir hverjir á hinn bóginn að þessar kröfur verði ekki samþykktar nú fremur en fyrr og engan veginn í heild sinni. Gengjum við í ESB myndum við verða að hlíta auðlindastefnu sambandsins, sjávarútvegsstefnunni, sameiginlegri utanríkisstefnu, sameiginlegri viðskiptastefnu og tollapólitík. Um þetta snúist Evrópusambandið, hvorki meira né minna!

En ófáir eru þeir sem ekki láta segjast, vilja láta reyna á samninga og freista þess að fá undanþágur að hætti Dana árið 1973, fyrir rúmlega hálfri öld, varðandi sumarbústaði á Jótlandi eða Maltverja löngu síðar með fimm hundruð tonna túnfiskkvóta sinn. Að vísu ekki varanlegan kvóta en mikilvæga aðlögun engu að síður. Við eigum ekki að hræðast samninga er klykkt út með, það eigi að reyna að ná eins miklu fram og framast má. Verum galvösk, berum höfuðið hátt, hræðumst ekki sólarupprás, heyrðist ágætur maður segja í útvarpsþætti.

En hvernig væri að staldra ögn við, gæti verið að um allt þetta hefðum við þegar samið, náð öllu okkar fram og það varanlega? Er þarna ekki komin lýsingin á samningnum um Evrópska Efnahagssvæðið, EES, frá 1994? Að sjálfsögðu er þetta hann, sjávarútvegsstefnan, heimild til að banna innflutning á lifandi sýklaberum, mótun utanríkisstefnu á eigin forsendum, stóllinn við samningaborð hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, heimild til tvíhliða viðskiptasamninga og síðan fjórfrelsið á innri markaði.

Sjálfur var ég alltaf andvígur EES samningnum og er enn; vildi fara þá leið sem margir vildu á þeim tíma er um hann var samið að gera tvíhliða samning við Evrópusambandið eins og ýmis önnur ríki hafa gert í seinni tíð. EES samningurinn þrengir að mínu mati um of að lýðræðinu á Íslandi og dómsvaldinu einnig þrátt fyrir bókun 35.

En þegar Viðreisn, peningafrjálshyggjudeild stjórnmálanna, heimtar nú að gengið verði enn lengra og markaðslögmálin lögbundin með innlimum Íslands í Evrópusambandið þá er fokið í flest skjól. Með EES samningnum var gerð málamiðlun sem gekk of langt í fullveldisafsali að mínu mati. Nú þegar heimtað er að gengið verði enn þá lengra í þessa átt segi ég nei og vonast til þess að flestir geri slíkt hið sama.

Almennt leggjast vinstri menn gegn markaðsvæðingu innviða og alræði markaðshyggjunnar, ég er þar; almennt hafna hægri menn miðstýringu, þeir eru þar, og rökrétt væri fyrir miðjumenn að hafna lögþvingaðri miðstýrðri markaðshyggju.
Verkefnið er að gera þjóðfélag okkar samstæðara og réttlátara en verið hefur í stað þess að leggja upp í leiðangur sem gerir ekkert annað en að sundra þjóðinni. Hún þyrfti auk þess að borga með sér til að ná í meintan ávinning sem í meira lagi er umdeilanlegt að sé raunverulegur hvað þá að hann standist til frambúðar.

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 30/31. maí

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.