Bólívía: Frumbyggjar og verkalýðssamtök mótmæla nýrri stjórn
—

Jón Karl Stefánsson
24. maí, ’26

Þúsundir frumbyggja, félagsmanna verkalýðssamtaka og aðgerðarsinnar lokuðu í vikunni vegum víðs vegar um Bólivíu í mótmælum gegn fyrirhugaðri einkavæðingu frumbyggjalanda. Stjórnvöld hafa brugðist við með táragasi, gúmmíkúlum og kylfuhöggum á yfir 100 mótmælendum og blaðamönnum, og lýst mótmælendum sem hryðjuverkamönnum og fíkniefnasmyglurum.

Í kosningum í október 2025 vann Rodrigo Paz forsetakosningar og lauk þar með 20 ára stjórn Hreyfingarinnar í átt að sósíalisma, MAS (AS/COA, 2025). Sigur Paz skýrist að hluta af stuðningsyfirlýsingu þriðja frambjóðandans, Samuel Doria Medina, og af miðjustefnu hans sem höfðaði til vinstrisinnaðra kjósenda sem voru óánægðir með klofning innan MAS-hreyfingariunnar (Americas Quarterly, 2025a). Paz tók við forsetaembættinu þann 8. nóvember 2025 með kosningaloforði um „kapítalisma fyrir alla“, valddreifingu, lægri skatta og ríkisfjárhagslegt aðhald (Al Jazeera, 2025a).

Tengsl við Washington

Áður en Paz tók við embætti fór hann til Washington og hitti embættismenn bandaríska utanríkisráðuneytisins og tryggði sér 3,1 milljarð dala lán frá Þróunarbanka Ameríkuálfanna (Americas Quarterly, 2025b). Bandaríska utanríkisráðuneytið hrósaði opinberlega Paz fyrir sigurinn og sagðist hlakka til að vinna með Bólívíu að því að „endurheimta efnahagslegan stöðugleika, auka vöxt einkageirans og efla öryggi“ (PBS NewsHour, 2025).

Þetta nána samstarf við Washington er ekki einskorðað við Paz-stjórnina. Stofnanirnar NED og IRI í Bandaríkjunum, sem eru beinlínis hannaðar til þess að hafa áhrif á stjórnmálaumhverfi í öðrum löndum, dældu fé í stjórnarandstöðuflokka og hægrisinnaða grasrótarhópa á á meðan MAS var við stjórnvölinn (Jacobin, 2019). Morales, fyrrum forseti, rak bandarísku „þróunarstofnunina“ USAID úr landinu árið 2013, einmitt á þeim forsendum að stofnunin reyndi að hafa áhrif á pólitík landsins (Al Jazeera, 2025b).

Afskipti Bandarískjanna af Bólivíu

Aðkoma Bandaríkjanna að innri málum Bólívíu á sér langa sögu. Milli 1963 og 1964 notuðu Bandaríkjaríkin leynilegt fjármagn, að mestu í gegnum CIA, til að hafa áhrif á stjórnmálaumhverfi Bólívíu og stuðla að valdaráni gegn kjörnum forseta landsins. Faðir Rodrigo Paz, Jaime Paz Zamora, sem stjórnaði 1989 til 1993, var með náin tengsl við stjórnvöld í Washington og innleiddi einkavæðingar- og fríverslunarstefnu sem voru áður óþekktar í sögu landsins (Responsible Statecraft, 2025). Þetta er kunnuglegt mynstur í rómönsku Ameríku: stjórn sem lokar landinu fyrir bandarískum hagsmunum er skipt út fyrir stjórn sem opnar landið, leitar sér lánafjár til Washington og býður aftur til landsins þeim stofnunum sem fyrri stjórn rak á dyr.

Mótmælin sem nú geisa benda til þess að stuðningurinn við MAS og stefnu hennar sé enn til staðar og að fylgjendur þessarar stefnu séu meira en fúsir til að berjast gegn stjórnmálum sem ógnað geta réttindum frumbyggja og réttindum alþýðunnar. Varaforseti Edmand Lara, sem áður naut trausts alþýðuhreyfingarinnar, hefur þegar slitið tengsl við Paz og fordæmt ofbeldi lögreglu (Bouchard, 2026).

Þessir atburðir í Bólivíu eru hluti af stærri herferð sem miðar að því að kremja pólitíska andstöðu alþýðunnar í rómönsku Ameríku við auðvaldsöflin og bandaríska hagsmuni. Venesúela, Mexíkó, Kúba, Níkaragva og nú Bólivía hafa í raun verið helstu skotmörk Trump-stjórnarinnar sem lítur greinilega á þessi lönd sem hluta af sínum bakgarði. Því miður hefur fréttaflutningurinn frá þessum atburðum nánast alfarið fylgt þeirri línu sem lögð er í Washington. Meira er sjálfstæði fjölmiðlanna nú ekki. Þess vegna er sérlega mikilvægt að bæði horfa gagnrýnum augum á það sem fram fer í þessum heimshluta um þessar mundir og leita upplýsinga frá fólkinu sjálfu. Alþýða þessara landa þarf sárlega á stuðningi að halda.

Heimildir og ítarefni

Al Jazeera. (2025a, 20. október). Bolivia elects centre-right Rodrigo Paz as president. https://www.aljazeera.com/news/2025/10/20/bolivia-elects-centre-right-rodrigo-paz-as-president

Al Jazeera. (2025b, 17. október). A right-wing run-off: What to know about Bolivia’s presidential election. https://www.aljazeera.com/news/2025/10/17/a-right-wing-run-off-what-to-know-about-bolivias-presidential-election

Al Jazeera. (2025c, 26. nóvember). A timeline of CIA operations in Latin America. https://www.aljazeera.com/news/2025/11/26/a-timeline-of-cia-operations-in-latin-america

Americas Quarterly. (2025a, 18. nóvember). Reaction: Paz wins Bolivia’s presidency. https://americasquarterly.org/article/reaction-paz-wins-bolivias-presidency

Americas Quarterly. (2025b, 13. nóvember). Bolivia’s foreign policy reset. https://www.americasquarterly.org/article/bolivias-foreign-policy-reset

AS/COA. (2025, 20. október). Rodrigo Paz wins: Bolivia’s electoral context in five charts. https://www.as-coa.org/articles/rodrigo-paz-wins-bolivias-electoral-context-five-charts

Bouchard, J. (2026, 20. maí). Bolivia: Paz government using lawfare against protesters, „Terrorists“ and „Drug Traffickers“. CounterPunch. https://www.counterpunch.org/2026/05/20/bolivia-paz-government-using-lawfare-against-protesters-terrorists-and-drug-traffickers

Jacobin. (2019, 18. nóvember). A coup in Bolivia, yet again. https://jacobin.com/2019/11/coup-bolivia-history-evo-morales-jeanine-anez

PBS NewsHour. (2025, 20. október). Rodrigo Paz wins presidential runoff, becoming Bolivia’s first conservative leader in decades. https://www.pbs.org/newshour/world/rodrigo-paz-wins-presidential-runoff-becoming-bolivias-first-conservative-leader-in-decades

Responsible Statecraft. (2025, 23. október). Bolivia shocker: Dark horse comes out of nowhere to win presidency. https://responsiblestatecraft.org/bolivia-election-paz

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.