Um samræmi í siðferðilegri afstöðu

23. apríl, 2026

Ákvörðun Loga Einarssonar og annarra evrópskra ráðherra um að þrýsta á útilokun Rússlands frá Feneyjatvíæringnum er sett fram sem siðferðileg afstaða gegn innrásinni í Úkraínu. Slík afstaða á að byggjast á grundvallarreglum um ábyrgð og réttlæti. En án samræmis er hún lítils virði.

Á sama tíma og þessi krafa er sett fram eru aðgerðir Ísraels á Gaza ekki aðeins harðlega gagnrýndar á alþjóðavettvangi heldur til rannsóknar hjá alþjóðlega sakamáladómstólnum vegna meintra stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyni. Saksóknari dómstólsins hefur farið fram á handtökuheimildir, meðal annars á hendur Benjamín Netanjahú.

Jafnframt hefur alþjóðadómstóllinn talið að trúverðugar vísbendingar séu fyrir hendi um aðgerðir sem kunna að falla undir bann við þjóðarmorði, og hefur krafist tafarlausra úrbóta. Þetta eru þyngstu ásakanir sem alþjóðakerfið getur sett fram. Samt ríkir þögn um menningarlega útilokun.

Það sama gildir um Bandaríkin, sem hafa ítrekað beitt hervaldi, meðal annars gagnvart Íran, án þess að það hafi haft sambærilegar afleiðingar á alþjóðlegum menningarvettvangi. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er mynstur.

Reglurnar sem vísað er til virðast ekki vera algildar siðferðisreglur heldur sveigjanleg viðmið sem beitt er eftir pólitískum hagsmunum. Sum ríki eru dæmd og útilokuð. Önnur njóta þagnar og áframhaldandi þátttöku.

Ef útilokun á Feneyjatvíæringnum er réttlætanleg vegna stríðs, mannréttindabrota eða jafnvel gruns um þjóðarmorð, þá hlýtur sú regla að gilda jafnt um alla. Ef hún gerir það ekki er ekki um siðferðilega afstöðu að ræða heldur valkvæða réttlætingu.

Slík tvöföldni grefur undan trúverðugleika Evrópu þegar hún talar um gildi, réttarríki og mannréttindi. Hún sendir þau skilaboð að þessi gildi séu ekki algild, heldur bundin við það hver brýtur þau.

Menningin á ekki að vera vettvangur fyrir slíkt tvöfalt siðgæði. Ef hún á að bera siðferðilegt vægi verða allir að lúta sömu reglum. Annars er hún ekki lengur tjáning frelsis og sannleika heldur tæki valds.

Höfundur er myndlistarmaður.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.