Hvað ef það væri páfinn?

Tjörvi Schiöth
2. mars, 2026

Ali Khamenei (1939 – 2026) var trúarlegur leiðtogi Sjía-múslíma vítt um lönd, og naut svipaðar virðingar meðal þeirra eins og páfinn gerir meðal kaþólskra manna. Hvernig hefði það verið ef Bandaríkin/Ísrael hefðu varpað sprengjum á Róm og drepið páfann? Hvernig myndi fólk líta á það og bregðast við? Þetta er einhver fyrirlitlegasta og viðurstyggilega laumuárás í allri mannkynssögunni. Gerð í miðjum svokölluðum samningaviðræðum. Hún er á svipuðu stigi og árásin á Perluhöfn 1941, „a day which will live on infamy“ (dagur sem lifir á vansæmd).

Svo er hann líka alveg óþolandi þessi yfirgengilegi hroki, fyrirlitning og vanvirðing sem ákveðnir aðilar á Vesturlöndum (og í Ísrael) hafa gagnvart öðrum menningarheimum. Þeir eru gjörsamlega ófærir um að setja sig í spor annarra eða sjá hlutina frá þeirra sjónarhorni. Eins og þetta með að líta á Khamenei sem einhvern réttdræpan hryðjuverkaleiðtoga, þegar raunin er sú að hann er einhver virtasti trúarleiðtogi í heimi. Fyrir þessu liði er ekkert heilagt. Siðferðisstigið er a.m.k. ekki hærra en hjá skriðdýrum.

Hér fylgir myndband Al Jazeera af mannsöfnuði í Íran að syrgja fráfall Ali Khamenei:

Þúsundir syrgjenda safnast saman í borginni Isfahan á sunnudag eftir fréttina um morðið á æðsta leiðtoganum Ayatollah Ali Khamenei í árás Bandaríkjanna og Ísraels.