Inn­rás og forsetarán í Venesúela – hvað tekur við?
—

Gylfi Páll Hersir
16. feb, ’26

Liðinn er rúmur mánuður frá árás Bandaríkjanna á Venesúela og ráninu á Nicolás Maduro, forseta landsins. Árás sem kostaði yfir 100 Venesúelabúa lífið og 32 kúbanska ríkisborgara. Áður höfðu þeir drepið yfir 100 manns utan við strendur Venesúela.

Gylfi Páll Hersir

Nokkru síðar kom John Ratcliffe yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) til Caracas til fundar við Delcy Rodríguez, varaforsetann sem þá hafði svarið eið sem forseti landsins, í þeim tilgangi að tryggja óheftan aðgang bandarískra fyrirtækja að hinum geysimiklu olíu- og gasauðlindum landsins: framleiðslu, olíuhreinsun og dreifingu. Ekki er gott að segja hvað fram fór á þeirra fundi en í kjölfarið kvaðst Trump hættur við “seinni árásarbylgjuna, það lítur út fyrir að hennar sé ekki lengur þörf”. Kvaðst hann “vinna með” ríkisstjórn Venesúela í þeim tilgangi að koma á jafnvægi og stuðla að umskiptum.

Það veitir mér sérstaka ánægju að tilkynna að bráðabirgðastjórn Venesúela mun afhenda Bandaríkjastjórn milli 30 og 50 milljón tunnur af “haldlagðri [sanctioned] olíu”

var haft eftir Trump um það leyti. Tekjum af sölu olíunnar “verður stýrt af mér” sagði hann. Þetta jafngildir eins til tveggja mánaða olíuvinnslu Venesúela, eða 2.8 milljörðum dala til Bandaríkjanna. Þá hélt Trump fund í Hvíta húsinu með yfirframkvæmdastjórum Chevron, ExxonMobil, ConocoPhillips og fleirum af stærstu olíufyrirtækjunum og hvatti þá til þess að vinna að 100 milljarða dollara fjárfestingaráætlun í olíuiðnaðinum í Venesúela, og lofaði því að þeir myndu “fá peningana sína til baka eins fljótt og auðið er” og þá “munum við skipta þessu öllu upp.”

Olíukóngarnir tóku tilboðinu með opnum huga en kröfðu Bandaríkjastjórn jafnframt um að gera Venesúela “fjárfestingarvænna”. Það “verður að vera ábótasamt fyrir fyrirtæki og hlutafjáreigendur.” Darren Woods forstjóri ExxonMobil, orðaði það svo að breytinga væri þörf varðandi lagabókstafinn í Venesúela:

Eignir okkar voru teknar þarna í tvígang og þið getið rétt ímyndað ykkur ef við reynum í þriðja sinn, hvort ekki þurfi verulegar breytingar að koma til.

Hér voru olíukóngarnir að vitna til þjóðnýtingar olíuiðnaðarins árið1976 þegar Venesúela lýsti endurheimtu fullveldi yfir náttúruauðlindum sínum. Nálægt aldamótum reyndi ríkisstjórn Venesúela að ná meiri stjórn yfir iðnaðinum sem var að mestu í höndum bandarískra fyrirtækja. Þá breytti ríkisstjórn Hugo Chávez skilmálum erlendra fyrirtækja þannig að hluti olíutekna skyldi renna til félagslegra úrbóta sem ekki var vanþörf á. Þessar aðgerðir nutu mikilla vinsælda meðal vinnandi fólks í Venesúela eins og nærri má geta.

Allar götur síðan hafa ríkisstjórnir í Bandaríkjunum viðhaft þvingunaraðgerðir af ýmsu tagi á olíu- og gasiðnaðinn í Venesúela og stuðlað þar með að hnignun hans og versnandi efnahag lands og lýðs. Til þess að tryggja að þeir fái ríkulegan gróða af fjárfestingum sínum krefjast olíukóngarnir þess nú að Venesúelabúar gefi eftir fullveldisrétt yfir auðlindinni og viðurkenni yfirráð bandaríska heimsveldisins.

Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna komu í veg fyrir að flest lönd gætu keypt olíu af Venesúela, Kína varð stærsti kaupandinn og er stærsti fjárfestirinn í landinu. Lán í formi dollara streymdu inn í landið og skuldirnar voru komnar í 44 milljarða 2017. Venesúela borgaði til baka með olíuviðskiptum. Töluverðar fjárfestingar komu einnig frá Rússlandi.

“Ef við hefðum ekki gert þetta (þ.e. ráðist á landið), hefði Kína komið og Rússland hefði komið,” sagði Trump. “Með því að leggja Venesúela og Bandaríkin saman, ráðum við yfir 55% olíunnar í heiminum,” bætti hann við.

Áhrifin á Kúbu

Bandaríkjastjórn hefur nú tekist að koma í veg fyrir allan innflutning olíu til Kúbu undir hótunum um refsiaðgerðir í formi frekari tolla gagnvart þeim ríkjum sem fara ekki að þeirra vilja. Nýlega tókst þeim að þvinga ríkisstjórn Mexíkó með hótunum til þess að hætta að selja og flytja hráolíu til Kúbu. Þessar aðgerðir bætast við hertar aðgerðir ríkisstjórna Trump og Joseph Biden sem þrengja aðgengi Kúbu að heimsmarkaðnum og bankaviðskiptum; matvælum, lyfjum og lækningavörum. Bandaríkin geta gengið enn lengra. Þau gætu takmarkað eða stöðvað allt flug til Kúbu. Þau gætu ráðist á kúbanska lækna og aðra hjálparstarfsmenn í öðrum löndum. Fyrir því eru fordæmi. Þau gætu stöðvað eða takmarkað enn frekar peningasendingar til kúbanskra fjölskyldna frá ættmennum í Bandaríkjunum. Slíkar ráðstafanir eru ekki líklegar til vinsælda því mikill meirihluti Bandaríkjamanna vill eðlileg samskipti þessara ríkja. Ólíklegt er að þau geri tilraun til hernaðarinnrásar í landið, slíkt mundi hafa mikið mannfall í för með sér. Þó hefur löngum sýnt sig að heimsvaldasinnar hafa takmarkaðan skilning á þeim styrk og samstöðu sem þjóðfélagsbyltingar skapa.

“Það munu ekki berast fleiri peningar eða olía til Kúbu – núll!” segir Trump þegar hann útleggur stefnu sína. “Ég mæli eindregið með því að þeir semji áður en það verður um seinan.” Ég fjallaði um þetta í skoðanagrein minni á visir.is í lok síðustu viku (https://www.visir.is/…/kuba-og-sviftingar-i-heimsmalunum).

Það er helst í fréttum að Kúba hefur aukið innlenda olíuframleiðslu en hún stendur undir þriðjungi orkuþarfa þjóðarinnar. Eins er verið að koma upp fleiri sólarsellugörðum. “Kúbu er frjálst, óháð og sjálfstæð þjóð. Enginn skipar okkur fyrir verkum. Kúba ræðst ekki á önnur lönd, Bandaríkin hafa ráðist á okkur samfellt í 66 ár” segir forseti Kúbu. “Við hótum engum. Við undirbúum okkur, erum reiðubúin til að verja land okkar til síðasta blóðdropa.“

Að lokum þetta: Um helgina var fjallað um ástand mála á Kúbu í hérlendum fjölmiðlum. Morgunblaðið tók viðtal við íslenska eiginkonu sendiherra Bandaríkjanna á Kúbu, fulltrúa þess ríkis sem ber mesta ábyrgð á því hvernig efnahagnum er nú fyrirkomið í landinu. Annar andstæðingur byltingarinnar, Tómas R. Einarsson var í Speglinum á Rúv tvo daga í röð. Tómas spáði falli Kúbustjórnar innan næstu mánaða. Ég er að mestu ósammála Tómasi enda var ýmislegt rangt með farið í þættinum. Það eru haldnar kosningar á Kúbu á 6 ára fresti – þar eru einmenningskjördæmi eins og t.d. í Bretlandi. Kommúnistaflokkurinn hefur engan beinan aðgang að þeim og stór hluti þingmanna er ekki í flokknum. Hann er hins vegar eini flokkurinn í landinu þar sem linnulaust

stríðsástand og vel fjármagnaður áróður af hálfu Bandaríkjanna hefur ríkt allar götur frá byltingunni 1959, þar með taldar tilraunir til þess að ráða forystu landsins af dögum. Á þessu hef ég skilning. Uppreisnin 2021 sem Tómas nefnir svo, var ekki hvað síst skipulögð og fjármögnuðu af Bandaríkjunum, það hefur ekki verið borið til baka. Dóma hlutu þeir sem reyndust sekir um ofbeldi og eignatjón. Ekki er pláss hér til að fara nánar út í þetta.

Bandaríkjastjórn hefur nú snúið sér beint að efninu. Áherslan hefur hingað til verið á mannréttindi eins og þeim hefur verið tamt áður en ráðist er inn í lönd eða þau rægð. Nú telja þau þjóðarörygginu stafa hætta af Kúbu! Það er með ólíkindum. Samtímis er aðdáunarvert hvernig Kúba hefur getað staðið af sér þetta stanslausa stríð. Hvaða land þolir að skrúfað sé fyrir olíuna ofan á allt annnað? Hvaða þjóð á það skilið? Hvers lags heimur er það sem horfir upp á slíkt athugasemdalaust og hvaða speki er að horfa framhjá þessu þegar reynt er að átta sig á þróun mála í Kúbu?

Höfundur situr í stjórn VÍK (Vináttufélagi Íslands og Kúbu) og hefur margsinnis sótt Kúbu heim. Hann er líka áhugasamur um það sem er á seyði í heiminum.

Greinin birtist á visir.is 15. febrúar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Nýjustu greinar

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Rannsókn Thomas Fazi á meintu fjölþáttastríði Rússa

Ólöf Benediktsdóttir, Glenn Diesen

Ítalski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Thomas Fazi tók sér nýlega fyrir hendur að rannsaka sannleiksgildi fullyrðinga um meintar fjölþáttaógnir Rússa. Hann uppgötvaði að flestar fullyrðingar …

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Standa Rússar á bak við árásir á frystiskápa?

Andri Sigurðsson

Aðfaranótt 2. nóvember var gerð árás á frystiskápa og kæla matvöruverslana í sjö Evrópulöndum. Að minnsta kosti tveir kælar hér á landi urðu fyrir …

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Heimir Már, Þorgerður Katrín og Ólafur Ragnar

Einar Ólafsson

Þann 29. október síðastliðinn gerði framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Heimir Már Pétursson, athugasemd við færslu Macrons forseta Frakklands á samfélagsmiðlinum X varðandi Rússland og Úkraínu …

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Hver á þetta stríð í Úkraínu?

Þórarinn Hjartarson

Pútín og Rússlandsstjórn bera ein og einhliða ábyrgð á stríðinu í Úkraínu. Það er afstaða íslenskrar stjórnmálastéttar í heild sem og opinber afstaða vestrænna …

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Atkvæðagreiðsla SÞ um Kúbu – hvað segir hún um heimsástandið?

Einar Ólafsson

28. október 2026 voru greidd atkvæði á allsherjarþingi SÞ um tillögu um að binda endi á viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu. Sambærilegar tillögur hafa verið …

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

„Hræddu líftóruna úr bandarískum almenningi“

Jökull Ari Haraldsson

Þetta voru ráð Arthurs Vandenbergs, formanns utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, til Harry S. Trumans forseta. Á árunum eftir endalok seinni heimsstyrjaldar var uppgangur kommúnista mikill í …

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.