Ísland í kjörstöðu

Ögmundur Jónasson
10. janúar, 2026

Ekki er um það að villast að stórveldapólitíkin er komin upp í flæðarmálið til okkar Íslendinga. Ekki svo að skilja að Íslendingar hafi ekki fundið fyrir henni áður því ekki fórum við varhluta af næðingsvindum kaldastríðsáranna. Þjóðin klofnaði í afstöðunni til erlendrar hersetu og lengi vel einkenndu heift og heitingar umræðu um utanríkismál.

Það sem ég hygg að menn eigi hins vegar sameiginlegt þessa dagana er undrun; menn spyrja í forundran hvort það geti verið að nýlenduvargur sé farinn að láta á sér kræla á okkar slóðum? Afskipti og íhlutun Bandaríkamanna í Rómönsku Ameríku er síður en svo ný af nálinni – nánast daglegt brauð alla síðustu öld og gott betur. En þegar Trump segist vilja Grænland vegna hernaðarhagsmuna og auðlinda glenna menn upp augun. Og þau sem talin eru vera kunnáttufólk eru kölluð til viðtals í fjölmiðlum og spurð hvort röðin kunni að koma að Íslandi.


Já, hvað með Ísland er einnig spurt suður í Brussel þessa dagana. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins mætir hingað til lands, fundar með forsætisráðherra og utanríkisráðherra í herstöðinni í Keflavík og viti menn, yfirhershöfðingi Þýskalands mætir einnig til fundar að ræða «varnarmál» uppáklæddur að hermannasið með alla tilheyrandi borða og medalíur. Á þetta að vera táknrænt? Spyr sá sem ekki veit.

Hitt þykist ég vita að nú hafi sú áherslubreyting orðið í Brussel að þar á bæ sé ekki bara horft til auðlinda Íslands sem eru ekki litlar í fiski og orkugjöfum heldur einnig til þeirra tugþúsunda ferkílómetra sem innlimun landsins i ESB myndi stækka yfirráðsvæði sambandsins norður á bóginn. Og til þess horfa samningamenn við alþjóðataflborðið. Gengju Íslendingar í Evrópusambandið yrði ekki lengur um það að ræða að við gerðum samning við önnur ríki þar á meðal við Bandaríki Norður-Ameríku. Frá öllu slíku yrði gengið við borð í Brussel og við þar hvergi nærri.

Spekingarnir sem spurðir eru út í Trump og þær yfirlýsingar hans um að hann vilji ráða vesturhveli jarðarinnar – í það minnsta – komast sumir hverjir að þeirri niðurstöðu að Íslendingum beri nú að halla sér að Evrópusambandinu, banka þar upp á og öðlast þannig öryggi innadyra.

Vissulega yrði sjálfstæði okkar og fullveldi þá farið fyrir bí því að Evrópusambandið talar einni röddu á alþjóðavettvangi og leyfir engin frávik hvort sem er í samningum við Alþjóðaviðskiptastofnunina eða aðrar þær alþjóðastofnanir, sem við eigum nú beina og milliliðalausa aðkomu að, og hreyfanleiki okkar innan ESB yrði enn minni en hann er nú í EES samstarfinu og hefur þó þrengst mikið síðan frá þeim sáttmála var gengið með lögum árið 1994.

Einhverjir kunna að segja að það séu órar að trúa því að smáþjóð geti haldið fullveldi sínu og sjálfstæði í grimmum heimi þar sem harðvítug hagsmunapólitík er rekin og vopnin eru iðulega látin tala.

En þá þarf líka að spyrja í ljósi þess að ógnin sem nú er til umæðru gæti komið að vestan, hvort einhver trúi því í alvöru að Evrópusambandsher yrði undir einhverjum þeim kringumstæðum sem nú eru fyrirsjáanlegar, beitt gegn Bandaríkjum Norður-Ameríku? Gæti ekki verið að friðartónn frá Íslandi væri til þess fallinn að stuðla að friði og þar með öryggi Íslands?

Það er þess virði að rifja upp orð stjórnmálamannsins Eysteins Jónssonar á Þingvöllum hinn 17. júní árið1944 þegar Ísland var lýst sjálfstætt lýðveldi. Hann varpaði fram þessari spurningu:
« Fáum vér starfsfrið og tækifæri til þess að sýna, hverju lítil, frjáls þjóð fær áorkað? Getur 125 þúsund manna þjóð stofnað lýðveldi á þessum tímum, þegar margfalt stærri þjóðir hafa verið lagðar undir okið og er haldið í áþján?» Og Eysteinn svaraði eigin spurningu:
« Vér Íslendingar munum kappkosta að koma þannig fram við aðrar þjóðir, að vér öðlumst vináttu þeirra og traust. Vér munum unna öðrum réttar og sannmælis, en halda á rétti vorum. Slíkar verða landvarnir þjóðarinnar og aðrar eigi.»

Falleg hugsun. En er hún raunhæf? Ég leyfi mér að fullyrða að aldrei hafi hún verið raunhæfari en einmitt nú. Þetta er röddin sem almenningur í heiminum vill heyra. Og hver veit nema að í Washington og Brussel finnist ýmsum gott að slegið skuli á slíka strengi á Atlantshafshryggnum miðjum þegar úfar rísa beggja vegna hans.
Gæti það verið að Ísland sé nú í kjörstöðu til að verða sú rödd sem kallað var eftir á Þingvöllum fyrir rúmum áttatíu árum?

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 10/11.01.26.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Auð­valdinu best borgið í Brussel – ekki þjóðinni

Ögmundur Jónasson

Mörgum kom sjálfsagt nokkuð spánskt fyrir sjónir þegar Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ýmist stærstu eða næst stærstu útgerðar landsins miðað við úthlutaðar aflaheimildir, mætti …

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Afturhaldið fær fyrir ferðina – Nørrebro 18. maí 1993

Árni Daníel Júlíusson

Þann 18. maí 1993 lagðist ég til svefns í Kaupmannahöfn með fjölskyldu minni. Við bjuggum við Lergravsparken á Amager. Þegar ég vaknaði morguninn eftir …

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Vinstrið er ekki vinstri lengur

Andri Sigurðsson

Eitt við hið svokallaða frjálslynda „vinstri“ er þessi blanda af vanþekkingu á sögunni, stjórnmálum, og hugmyndafræði, og í raun andúð á þekkingu. Í það …

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Hugmyndin um að breyta ESB að innan er horfin

Sólveig Anna Jónsdóttir

Árið 2015 kom út bók eftir Tariq Ali, The Extreme Center. Ég eignaðist af henni tvö eintök og las þau bæði. Ég var sammála …

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Óðaheimsvaldastefna og fæðingarhríðar fjölpóla heims  2008-2026  (IV. tímabil)

Þórarinn Hjartarson

Heimsvaldastefnan: kaflaskipting hennar, styrjaldir hennar  4 Um þennan ofanskráða titil og efni er hér fjallað í fjögurra greina flokki á Neistum. Á tíma stríðs …

Nýjustu greinar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Stóra núllið hennar Kristrúnar

Jökull Sólberg Auðunsson

Ég tók saman tölur um afkomu ríkissjóðs og landsframleiðslu síðustu 17 ár, frá 2009 til 2025. Meðalhallinn var um 1,9% af landsframleiðslu á ári. …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úrslitin stéttgreind

Úrslitin stéttgreind

Þórarinn Hjartarson

Línurnar sem teiknuðu sig upp í atkvæðagreiðslunni á laugardag eru um margt býsna skýrar, og það væri heillaráð að reyna að átta sig á …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.