Hvað þýðir 1,5% af landsframleiðslu fyrir samfélagið okkar?
—

Hvað þýðir 1,5% af landsframleiðslu fyrir samfélagið okkar?

Á blaðamannafundi í tilefni heimsóknar Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, til Íslands segir í frétt RÚV að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi látið eftirfarandi orð falla:

„Kristrún þakkaði Rutte fyrir styrka stjórn hans á óvissutímum í Evrópu. Hún sagði heimsóknina undirstrika mikilvægi Íslands í samstarfi Atlantshafsbandalagsins. Ísland legði mikla áherslu á að auka framlög sín til öryggis- og varnarmála upp í 1,5% af landsframleiðslu.“

Þessum orðum fylgdi engin greining frá fjölmiðlum hverju var eiginlega verið að lofa fyrir hönd Íslands og hvað það myndi þýða fyrir samfélag okkar.

Svona háar tölur eru erfiðar að setja í samhengi stundum. Pælum aðeins í því.

Verg landsframleiðsla á Íslandi árið 2024 var 4616 milljarðar. 1,5% af þeirri tölu eru 69 milljarðar.

Í fjárlögum árið 2025 (sem rekin voru í mínus nota bene) var:

14 milljörðum varið í menningar, lista, íþrótta og æskulýðsmál (af menningar- og viðskiptaráðuneytinu).

18 milljörðum varið í umhverfismál (af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu).

4,2 milljörðum varið í húsnæðis og skipulagsmál (af innviðaráðuneytinu).

17,5 milljörðum varið í samgöngu og fjarskiptamál (af innviðaráðuneytinu).

4,8 milljörðum varið í landbúnað (af matvælaráðuneytinu).

6,5 milljörðum varið í sjávarútveg og fiskeldi (af matvælaráðuneytinu).

3,9 milljörðum varið í dómstóla (af dómsmálaráðuneytinu).

Samtals nemur þetta 68,9 milljörðum. Samtals! Sama tala og ríkisstjónin stefnir á að verja til öryggis- og varnarmála.

Í hvaða veruleika stenst þetta loforð um aukreitis 69 milljarða til NATO skoðun? Þegar að húsnæðiskreppa ríkir, þegar að börnin okkar bíða á endalausum biðlistum eftir úrræðum í geðheilbrigði, þegar að skólarnir eru fjársveltir og innviðaskuldin í nær öllum málaflokkum rýrir þjónustu og lífskilyrði okkar allra.

Hvað gætum við gert með því að tvöfalda framlögin í alla þessa málaflokka? Ef við höfum efni á 69 milljörðum (sem mun fara vaxandi með vaxandi landsframleiðslu) í aukinn vígbúnað og NATO-hítina þá höfum við væntanlega efni á því að verja þessum fjármunum frekar í eitthvað sem bætir líf og tilveru okkar allra?

Eða á að skera niður til að dekka þennan reikning stríðsherranna?

Þeirri spurningu er aldrei svarað og dýpri umræða um þessar gífurlegu fjárskuldbindingar er aldrei tekin. Hvað þá hvort framlag okkar sem herlaus örþjóð geti nokkurn tímann haft nein áhrif önnur en að fóðra arðgreiðslur erlendra vopnaframleiðenda á kostnað velferðar í samfélagi okkar.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.