Ekki er allt sem sýnist – eru Danir í djúpum skít ?
—

4. okt, ’25

Mynd: Mette og Zelensky

Eru Danir komnir í stríð og Evrópa líka? Ja, það mætti halda það a.m.k. ef dæma má af yfirlýsingum Mette Frederiksen:

Der er en hybridkrig i Europa lige nu“ (TV2) — „Vi står overfor den største trussel siden Anden Verdenskrig“ (Extra bladet) — „Der er kun ét land der er en trussel mod Europa og det er Rusland“ (Berlinske Tidende) — „Rusland skal svækkes“ … o.s.frv.   

Í síðustu viku sveimuðu drónar yfir Kaupmannahöfn en nokkrum dögum fyrr auglýstu Danir kaup á langdrægum árásarvopnum og fyrir fáeinum vikum var tilkynnt um byggingu eldsneytisverksmiðju fyrir flaugar á vegum  úkraínsks vopnafyrirtækis, One Point,  í smábænum Vojens sem er rétt hjá Skrydstrup herflugvellinum.  Sett voru bráðabirgðarlög um  sniðgöngu á umhverfislögum, skipulagslögum, náttúruverndarlögum, vinnuverndarlögum  o.fl. og íbúar mega ekki leggja fram kærur, allt til að flýta fyrir framkvæmdunum. Ekkert grín að skjóta niður dróna ofan í púkkið!

Þetta olli skiljanlega uppnámi meðal íbúanna    Indbyggere skød med skarpe ord mod forsvarsministeren: Er det sikkert med ukrainsk våbenfabrik i vores by? | Indland | DR

Hlustendur TV4 spurðu Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra hvernig hann svæfi á nóttunni. „Ekki vel“ svaraði hann. Hvordan sover Troels Lund Poulsen for tiden? For lidt, svarer han | Indland | DR

Fleiri spurningar lágu hlustendum á hjarta: Af hverju er verið að mála skrattann á vegginn og hræða líftóruna úr börnum?…  Er Danmörk að undirbúa sig fyrir stríð? … Hvert fer maður ef það kemur stríð?

Öllu þessu svaraði Poulsen greiðlega og sagði að Danmörk stæði ekki frammi fyrir beinni  hernaðarógn en það væru margar aðrar ógnir sem þyrfti að taka afstöðu til. Svo kom ein frekar óþægileg spurning:  Hvaða fjölþátta ógnir erum við Danir sjálfir með?

– Ég ætla ekki að svara því hvað herinn er fær um að gera. Það segir sig sjálft að það er ekki opinbert og ég fer ekki að ræða það í útvarpinu.

– Og heldur ekki hvort við gerum það eða ekki?

– Nei ég er bundinn algjörri þagnarskyldu.

Hernaðarspekúlant var skíthræddur um að Danir yrðu teknir með buxurnar á hælunum  ef Evrópufundurinn klúðraðist og gestirnir fengju dróna í hausinn. Gigafiasko hvis EU-topmøde forpurres: ‘De har taget os med bukserne nede’ | B.T.

Jan Oberg,  danskur félagsfræðingur sem stundar friðarrannsóknir í Svíþjóð, skrifaði ágæta grein á Transnational:  Don’t be fooled: Others Could Have More Interest in Sending Drones to the Nordic Countries than Russia  Hann veltir upp ýmsum möguleikum, skoðar  Rússland, Danmörku, Bretland og Úkraínu en lítur svo yfir stóru myndina (lauslega þýtt):

… Drónaárásirnar líta grunsamlega mikið út fyrir að vera falskt flagg til að réttlæta frekari stigmögnun í stríðsrekstrinum.

… Þetta snýst ekki bara um dróna. Heldur um skynjun fólks.  Að skapa ótta og réttlæta meiri hernaðarútgjöld til að undirbúa jarðveginn fyrir að NATÓ blandi sér af meira krafti í Úkraínustríðið.

…  eða eins og danski forsætisráðherrann segir: „Við höfum ekki sannanir fyrir því að þetta séu Rússar en við vitum að Rússland er stærsta ógnin við Evrópu“.

… en látið ekki blekkjast. Einhver veit nákvæmlega hver setti drónaleiksýninguna á svið. Norrænu leiðtogarnir vita það líka og þeir vita nákvæmlega hvað þeir vilja að þú haldir eða haldir ekki.

… Elíturnar í MIMAC ­ – the Military-Industrial-Media-Academic Complex þekkja ekkert nema hernaðaraðgerðir. Þær  hafa löngu sagt skilið við diplómatíu, friðsamlegar lausnir á átökum og að byggja upp traust, að ekki sé minnst á frið [ath: MIMAC er hugtak frá Jan Oberg sjálfum, hann á við fyrirbærið Military-Industrial Complex sem Eisenhower forseti skilgreindi og varaði við 1961 eins og það er orðið nú á dögum].

… Þetta fólk getur ekki ímyndað sér annað en að það  hafi rétt fyrir sér en því gæti skjátlast hrapallega því það þjónar öðrum elítum fremur en sínum eigin borgurum. Þær hafa ekki næga vitsmuni  til að leysa vandamál – heldur beita sleggju þar sem hennar er ekki þörf.

… Í stuttu máli, fylgist vel með því hvað gerist á næstu tveimur til þremur vikum. Þá fáið þið að vita hvað drónaárásirnar snerust í raun um.

Jens Jørgen Nielsen, danskur sagnfræðingur og fyrirlesari um Rússland og Úkraínu skrifar grein í  Arbejderen: Droner, Trump og Europa – Arbejderen

Hann dregur í efa að Trump hafi meint í alvöru yfirlýsingu sína um að Úkraína geti unnið til baka allt það land sem hún hafi tapað, að Krímskaga meðtöldum, en telur hins vegar að yfirlýsingin hafi eflt von í brjósti Zelenskys og Evrópubúa um að það sé hægt að draga Bandaríkin aftur inn í stríðið. 

Hernaðarátök milli Nató og Rússlands séu í augum örvæntingarfullra Úkraínumanna og Evrópumanna eina raunhæfa lausnin til að fá Bandaríkin með í púkkið. Þeir lifi enn í hinni glaðbeittu tálsýn um frjálslynda heimsskipan með USA sem hina góðgjörnu og réttlátu alheimslögreglu.

Nielsen ráðleggur Dönum að byggja upp varnirnar frekar en að fara út í árásarvopn, að ástunda diplomatíu því það hjálpi engum að tala ekki við Rússa. Hann segir að það vanti raunsæja strategíu. Evrópa þurfi að bjarga sér sjálf – gömlu góðu tímarnir séu að baki.

Ólöf Benediktsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur á eftirlaunum, friðarsinni með áhuga á pólitík og náttúruvernd. Starfaði lengst af á Árnastofnun.  Frá Siglufirði en býr í Reykjavík.

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.