Yfirlýsing Félagsins Ísland – Palestína vegna tillögu Trumps Bandaríkjaforseta

Ritstjórn
2. október, 2025
Donald Trump og Benjamin Netanyahu í Jerúsalem 2017

Félagið Ísland – Palestína sendi út eftirfarandi yfirlýsingu 30. september um friðartillögur Bandaríkjaforseta fyrir Gaza.

*** ***

Trump Bandaríkjaforseti kynnti þ. 29. september á blaðamannafundi með Netanyahu forsætisráðherra Ísraels, áætlun sem skv. yfirlýsingu Trumps á að leiða til friðar á Gaza.

Augljóst er, að þegar helsti fjármögnunaraðili þjóðarmorðsins stendur við hlið gerandans og kynnir friðartillögur til að stöðva þjóðarmorðið, þá er engin von til þess að hér búi heilindi að baki.

Samningurinn felur í sér að aðkoma Palestínumanna er öll á forsendum Ísraels og Bandaríkjanna og þannig endurtekning á sömu sögu allt frá árinu 1917 þegar Breska ríkisstjórnin lagði fram hina alræmdu Balfouryfirlýsingu. Það er nýlenduhyggjan sem ræður gerð þessa samnings. Það eru Palestínumenn sem eiga að laga sig að veruleika sem aðrir stjórna. Samkvæmt samningnum á að veita Hamasliðum og öðrum andspyrnumönnum „sakaruppgjöf“ fyrir að berjast fyrir þjóð sína. Hvergi er minnst á glæpi síonistanna sem hafa stjórnað ofsóknum, landstuldi og drápum gegn Palestínumönnum í áratugi. Þeir skulu vera friðhelgir sem fyrr.

Samningurinn inniheldur engin orð um Vesturbakkann þar sem þjóðernishreinsanir eru í fullum gangi. Samkvæmt samningnum á að „afradikalisera“ Palestínumenn. Á mannamáli þýðir það að þeir mega ekki berjast fyrir rétti sínum. Yfirgangur og árásir Ísraela munu halda áfram samkvæmt stefnu ríkisstjórnar Netanyahu og flestra stjórnmálaflokka í Ísrael. Það er lagt til í samningnum að svokölluð „Friðarnefnd“ stjórni aðgerðum tímabundinnar bráðabirgðastjórnar. Það er enginn annar er Trump sjálfur, maðurinn sem er að rústa því sem eftir stendur af lýðræði í eigin landi og hefur fjármagnað þjóðarmorðið, sem verður þar í forsæti. Honum til aðstoðar verður Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Maðurinn sem ásamt þáverandi Bandaríkjaforseta ber ábyrgð á dauða milljón Íraka.

Samningurinn felur í sér örlitla von um að aðgerðir sem gætu bætt hag Gazabúa. Því er lofað að lífsnauðsynlegar birgðir af mat, vatni og lyfjum verði fluttar til Gaza í gegnum stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Viðbúið er að Ísrael, sem hefur skilgreint flóttamannahjálp SÞ, UNRWA, sem hryðjuverkasamtök, muni áfram reyna að hindra slíka flutninga því Netanyahu hefur lýst því yfir að her Ísraels fari hvergi.

Ísrael hefur ætíð brotið alla samninga sem þeir skrifa undir þegar þeir telja það sér í hag – enda friðhelgir fram að þessu. Forsætisráðherra Ísraels hefur engan hug á öðru í þetta skiptið, enda sagði hann beinum orðum að loknum fundi sínum með Trump að Ísrael hygðist ekki fallast á sjálfstætt ríki Palestínu, eða að draga herlið sitt til baka frá Gaza.

Palestínumenn standa frammi fyrir afarkostum. Fallist Hamas ekki á samningana eða reyni að fá fram breytingar, þá heldur þjóðarmorðið áfram af meiri krafti. Trump gaf Netanyahu grænt ljós á blaðamannafundinum líkt og ríkisstjórnir Vesturlanda gerðu eftir 7. október 2023. Ennfremur munu ríkisstjórnir Vesturlanda, sem hafa ekkert gert til þess að afstýra þjóðarmorðinu, lýsa því yfir að Hamas beri sökina á áframhaldandi þjóðarmorði.

Stjórnvöld í Ísrael segja beinum orðum í ísraelskum fjölmiðlum að þessi samningur sé blekking. Íslensk stjórnvöld mega undir engum kringumstæðum gefa þessum áformum lögmæti. Eina lausnin er að þjóðarmorð Ísraels verði stöðvað, ráðamenn í Ísrael og þátttakendur í þjóðarmorðinu verði sóttir til saka og að Palestína verði frjáls.