Stjórnarmeirihlutinn má gjarnan svitna út af bókun 35
—

Ögmundur Jónasson
4. júl, ’25

Það á að vera erfitt að koma umdeildum málum í gegnum þingið. Það má taka tíma og á að taka tíma. Þetta er gjarnan kallað málþóf sem er náttúrlega niðrandi orð um nokkuð sem á fullkomlega rétt á sér. Tilgangur þingmanna með því að teygja umræðu um vafasöm mál á langinn er að freista þess að stöðva þau eða fá þeim breytt. Mikilvægt er að ná eyrum þjóðarinnar svo slík mál verði ekki afgreidd í kyrrþey. Sjálfur hef ég allnokkrum sinnum tekið þátt í slíkri umræðu. Og viti menn, í flestum tilvikum var ég á svipuðu róli og meirihluti þjóðarinnar en stjórnarmeirihlutinn hins vegar að keyra í gegn mál sem illa þoldu dagsljósið; vildi fyrir vikið helst forðast athygli.

Dæmi um þetta var einkavæðing þjóðarbankanna og Pósts og síma, markaðsvæðing orkunnar, styrking einkaeignrréttar á vatninu, kvótakerfið í núverandi mynd þótt ekki væri ég sjálfur kominn á þing þegar framsalskerfið var lögfest. Sama átti við þegar EES samningurinn var samþykktur árið 1993. Í þeirri umræðu var heldur betur talað um málþóf og ekki að ástæðulausu.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks þorði ekki að láta málið ganga til þjóðarinnar að greiða um það atkvæði í almennri atkvæðagreiðslu eins og nánast öll almannasamtök í landinu höfðu farið fram á, þar meðal verkalýðshreyfingin og bændasamtökin. Myndin hér að ofan er af veggspjaldi sem BSRB lét útbúa þar sem hvatt var til þess að hlustað yrði á rödd þjóðarinnar.

Plakat frá baráttunni um EES-samninginn 1993

Tugþúsundir undirrituðu áskorun um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES samninginn og í umræðu í þjóðfélaginu var vakin athygli á því að nær helmingur þingmanna væri andvígur málinu. Til marks um það var frávísunartillaga Jóns Helgasonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði með þeirri tillögu en þrjátíu og þrír voru á móti og þar með gegn því að málið gengi til þjóðarinnar. Þetta kemur upp í hugann þegar hlustað er á núverandi þingmenn halda því fram að um EES samninginn hafa verið mikil samstaða á sínum tíma. Svo var ekki. Hann var þó allt annar samningur -og mun skárri – en hann er orðinn nú, aðstæður gerbreyttar og samningurinn mun yfirgripsmeiri og jafnframt takmarkandi innlendu valdi en áður var.

Nú er tekist á um svokallaða bókun 35. Fylgismenn segja hana engu breyta. Hvers vegna þá þetta offors? Staðreyndin er sú að hún breytir miklu. Hún þrengir að innlendu úrskurðarvaldi, hnikar til landamærum Evrópuréttar og íslenskrar lagatúlkunar. Grátt svæði verður svart/hvítt Íslandi í óhag. 

Þetta er að sjálfsögðu stórmál og ástæða þess að ég var á meðal þeirra sem sendu athugasemdir til Alþingis um málið og má sjá þær hér: https://www.ogmundur.is/is/greinar/bokun-35-verdskuldar-umraedu-utan-things-og-innan

Greinin birtist á vefsíðu höfundar ogmundur.is 20. júní

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Nýjustu greinar

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.