Bandaríkin ætla að koma fyrir meðaldrægum eldflaugum í Þýskalandi – söguleg ákvörðun
—

Tjörvi Schiöth
27. júl, ’24

Þann 10. júlí sendu Bandaríkin og Þýskaland út sameiginlega tilkynningu þar sem segir að Bandaríkin ætla árið 2026 að koma fyrir meðaldrægum eldflaugum í Þýskalandi, þ.á m. Tomahawk stýriflaugum. Ætlunin er að stuðla að svokölluðum fælingarmætti (deterrence).

Tilkynningin var send út á sama tíma og leiðtogafundur NATO var haldinn í Washington.

Ekki er tekið fram hvort að eldflaugarnar muni bera kjarnaodda, en þessar eldflaugar eru fullfærar um að bera kjarnaodda og voru upphaflega hannaðar til þess. Bandaríkin eru þegar með kjarnavopn í Þýskalandi samkvæmt hinni svokölluðu kjarnavopnasamnýtingaráætlun NATO (NATO’s Nuclear Sharing Arrangement).

Þessar eldflaugar voru áður bannaðar samkvæmt samningnum um bann við meðaldrægum eldflaugum (INF Treaty), sem Ronald Reagan undirritaði með Míkhaíl Gorbatsjov árið 1987, en Bandaríkin drógu sig til baka úr samningnum árið 2019.

Gorbatsjov og Reagan skrifuðu undir INF samninginn árið 1987, ári eftir fund þeirra í Höfða í Reykjavík. Samningurinn bannaði allar meðaldrægar eldflaugar kjarnorkustórveldanna. Bandaríkin drógu sig til baka úr samningnum árið 2019 þegar Trump var forseti.

Ákvörðunin hefur þegar vakið hörð viðbrögð hjá Rússum sem hafa hótað að svara í sömu mynt. Þetta kemur einnig í kjölfar þess að þann 28. júní tilkynnti Vladímír Pútín Rússlandsforseti að Rússland ætlaði að halda áfram að þróa vopn sem áður voru bönnuð samkvæmt INF samningnum. Þetta er vísir að nýju vígbúnaðarkapphlaupi milli stórveldanna, svipað og í kalda stríðinu fyrra. Er sagan að endurtaka sig?

INF samningurinn bannaði öll eldflaugakerfi sem hafa drægni á milli 310 og 3.400 mílur. Tomahawk eldflaugar, sem Bandaríkin segjast núna ætla að koma fyrir í Þýskalandi, drífa um 1.000 mílur, og voru þess vegna bannaðar samkvæmt samningum (þ.e.a.s. ef þeim er skotið á jörðu niðri). En Bandaríkin hafa verið að nota þessar eldflaugar á skipum og kafbátum bandaríska sjóhersins (þar INF samningurinn bannaði ekki notkun sjóhersins á slíkum eldflaugum, heldur aðeins ef þeim er skotið frá landi).

Ljósmynd frá 1982: Tomahawk stýriflaug er skotið á loft af BGM-109G Gryphon eldflaugatrukk. Tomahawk stýriflaugin drífur yfir 1.000 mílur og getur borið kjarnaodda. Þessi eldflaugakerfi voru bönnuð samkvæmt INF samningnum, þar sem samningurinn lagði bann við „ground-launched cruise missiles“ (GLCM).

Skýring Bandaríkjanna á að draga sig til baka úr INF samningunum árið 2019 var sú að Rússar hefðu brotið á samningnum með því að þróa 9M729 stýriflaug sem skotið er á jörðu niðri. En Rússar neituðu því að eldflaugin bryti á samningnum og sögðu hana hafa hámarksdrægni upp á 298 mílur.

Rússar sökuðu einnig Bandaríkin um að hafa hugsanlega brotið gegn INF samningnum með því að koma fyrir Aegis Ashore eldflaugavarnakerfum í Rúmeníu og Póllandi. En kerfið notar Mk-41 „vertical launcher“ sem er fær um að skjóta Tomahawk stýriflaug. A leiðtogafundi NATO núna í júlí tilkynntu Bandaríkin að Aegis kerfi þeirra í Póllandi væri nú starfhæft.

Bandaríkin neituðu hinsvegar að semja við Rússa um þessi deilumál og ríkisstjórn Trump dróg sig til baka úr INF samningnum árið 2019.

Raunverulega ástæðan fyrir þessu virðist aftur á móti hafa verið sú að Bandaríkin ætluðu að koma fyrir meðaldrægum eldflaugum í Asíu til að sporna gegn Kína. Bandaríkin hafa nú þegar (í apríl á þessu ári) komið fyrir svokölluðum Typhon „launchers“ á Filippseyjum, sem eru færir um að skjóta Tomahawk stýriflaugum. Þetta er eldflaugakerfi sem var áður bannað samkvæmt INF samningnum. Kína hefur fordæmt þessa ákvörðun harðlega.

Talsmaður kínverska varnarmálaráðuneytisins sagði að þetta „auki verulega hættuna á að stríð brjótist út“ og að þetta „grafi verulega undan friði á svæðinu [í Austur-Asíu]“.

En núna ætla Bandaríkin einnig að koma þessum eldflaugakerfum fyrir í Þýskalandi. Síðast þegar Bandaríkin tóku þessa sömu ákvörðun árið 1979 leiddi það til mikilla mótmæla í Evrópu.

Mótmæli gegn kjarnavopnum í Bonn í Þýskalandi 1981. Ákvörðun Bandaríkjanna að koma fyrir meðaldrægum eldflaugum í Þýskalandi og Evrópu hafði upphaflega verið tekin í forsetatíð Jimmy Carter árið 1979. En þegar Ronald Reagan tók við forsetaembættinu 1981 og hélt áfram með sömu stefnu leiddi það til mikilla mótmæla sem beindust gegn Reagan, meðaldrægum eldflaugum og kjarnavopnum almennt.

Á 9. áratugnum voru miklar deilar um það að Bandaríkin ætluðu að koma fyrir nákvæmlega sömu eldflaug og nú í Þýskalandi (og öðrum Evrópuríkjum), þ.e.a.s. Tomahawk stýriflaug. En deilurnar á 9. áratugnum snérust bæði um Tomahawk cruise missiles og einnig Pershing II medium-range ballistic missiles.

Á þeim tíma var ákvörðunin (sem hefur verið kölluð NATO Double-Track Decision) kveikjan að mikilli mótmælabylgju sem setti vatn á millu friðarsinna og hreyfingarinnar gegn kjarnavopnum, en sú hreyfing var mjög öflug í Evrópu á 9. áratugnum, eða þangað til að kalda stríðinu lauk.

Mótmæli gegn meðaldrægum eldflaugum í Þýskalandi á 9. áratugnum: „Árásarvopn Reagan munu spilla friðnum: NATO-hermenn segja ‘nei!’ við Cruise Missiles og Pershing 2!“ Þegar talað er um „Cruise Missiles“ er m.a. verið að vísa til Tomahawk eldflaugarinnar. Eldflaugin á myndinni er líkan af Pershing 2.

Þessar miklu deilur um meðaldrægar eldflaugar í Evrópu á 9. áratugnum hafa verið kallaðar Euromissile Crisis. Ætli sama ákvörðunin núna muni leiða til svipaðrar krísu?

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Hermálaútgjöld ESB munu meira en fjórfaldast

Ólöf Benediktsdóttir

Áætluð úgjöld Evrópusambandsins til hermála munu aukast um meira en 400 % ef svo fer sem horfir í næstu fjárhagsáætlun þess 2028-34.  Frjáls félagasamtök …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Nýjustu greinar

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.