Herinn: út um framdyr, inn um bakdyr
—

Þórarinn Hjartarson
22. júl, ’19



Samkvæmt útvarpsfréttum eru framundan framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurfluvelli auk ratsjárkerfis í fjórum landshornum, framkvæmdir fyrir 14 milljarða króna. Upphæðin jafngildir ca. 100 nýjum glæsivillum.

„Framkvæmdunum má skipta í tvo hluta. Annars vegar er uppfærsla á ratsjárkerfum NATO umhverfis landið og hins vegar viðhald og uppbygging á Keflavíkurflugvelli, bæði af hálfu NATO og bandaríska hersins… Bandaríski flugherinn ætar svo að útbúa aðstöðu til búsetu í einskonar gámaíbúðum fyrir meira en þúsund hermenn inni á varnarsvæðinu. Íbúðirnar rísa ekki strax heldur verður lagt skólpkerfi í jörðu, raflagnir og annað slíkt.“ Sjá nánar.

mikepompeooggudlaugur

Þegar Mike Pompeo utanríkisráðherra kom í heimsókn til Íslands í vetur sagði hann að „Ísland verði ekki vanrækt lengur“ Sjá nánar.

Hann ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson um viðbúnað á norðurslóðum og „hvert sé best að flytja hergögn og annað, til að tryggja öryggi á norðurslóðum“. En samkvæmt RÚV: „Guðlaugur Þór túlkar orð Pompeo um flutning hergagna ekki sem svo að Bandaríkjamenn séu að boða aukin hernaðarumsvif“ …„Þannig að það er ekkert neitt annað í gangi en það sem er búið að vera í gangi á undanförnum árum“.

Friðardúfan Katrín Jakobsdóttir sagðist auk heldur hafa sagt við Pompeo að „mikilvægt sé að ekki verði hernaðarumsvif á norðurskauti“ og á Arctic Circle í fyrra sagðist hún vona að „Norðurslóðir verði vopnlaust svæði“ Sjá hér.

Katrín hefur hlutverk í samhenginu: að gefa uppbyggingunni hér mildilegt andlit. Sjá hér.


Hinar auglýstu framkvæmdir benda ekki til að allt sé bara í hefðbundnum skorðum á Miðnesheiði. Viðvera herliðs eykst jafnt og þétt. Kafbátaleitarsveitir Bandaríkjanna og NATO-ríkja dvelja nú reglulega á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar bætist við á annað eða þriðja hundrað manns sem koma þrisvar á ári vegna „loftrýmiseftirlits“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG, spurði utanríkisráðherra í nóvember sl. um viðveru erlends herliðs á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli frá 2007-2017. Svarið var á þessa leið: „Á síðustu ellefu árum hefur viðvera erlends herliðs á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli verið mjög breytileg frá ári til árs, allt frá sautján dögum árið 2007 til þess að vera dagleg viðvera síðustu þrjú árin.“ Og fram kom í svarinu að fyrsta árið voru hermennirnir alls 17 en síðasta árið voru þeir 1220. Ekkert að breytast? Sjá hér svarið.


Herstövasamningurinn við BNA er enn í fullu gildi. Bandaríkin fluttu aðeins her sinn í bili af taktískum ástæðum. Í stefnumörkun núverandi ríkisstjórnar Íslands segir: „…grunnstoðir utanríkisstefnunnar eru samstarf vestrænna ríkja, evrópskt og norrænt samstarf, aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu, varnarsamningurinn og friðar- og öryggissamstarf.“

Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, viðurkennir nýja og aukna hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna hér og í Norður-Atlantshafi, sem auðvitað stafar af hinni miklu ógnun frá Rússum:

„Þeir [Bandaríkjamenn] eru náttúrulega búnir að virkja aðra flotadeildina á nýjan leik og það er alveg augljóst að það verða hér meiri hernaðarumsvif. Það verður meiri fókus. Hernaðarumsvif Rússa og uppbygging er auðvitað mest hér, miklu meiri en uppbygging Bandaríkjamanna. Því miður þá er það þannig að hernaðarumsvif eru að aukast.“ Sjá nánar.


Það er reginlygi að Rússar leiði vígvæðinguna. Við höfum ekki gleymt Trident Juncture í haust: 10 herskip, 6000 sjóliðar, 400 bandarískir landgönguliðar á Íslandi, og héðan stukkur þeir yfir í mestu heræfingu í Skandinavíu eftir kalda stríðið: 50 þúsund hermenn, 8 þúsund stríðsökutæki og skriðdrekar, 70 herskip og 130 flugvélar bara í Noregi. Og ári áður var 20 þúsund manna NATO-æfing í Svíþjóð (hlutlaust land!). Bandaríski flotinn hefur í fyrsta sinn í sögunni fengið tvær fastar herstöðvar í Noregi. Norðurlönd liggja flöt sem stökkpallur fyrir Bandaríkin og NATO gegn Rússum. Uppbyggingin í Keflavík er liður í því. Þetta eru EKKI „STRÍÐSLEIKIR“ (uppáhaldsorð sumra hjá SHA). Þetta er STRÍÐSÁRÓÐUR OG STRÍÐSUNDIRBÚNINGUR. NATO í vígahug – Trident Juncture á Íslandi og Noregi

Hver ógnar hverjum? Hver æfir stríð við landamæri hvers? Bandaríkin hafa yfir 800 herstöðvar erlendis. Rússar hafa eina flugherstöð og eina flotastöð í Sýrlandi, og þá er allt upptalið. Árið 2017 stóðu Rússar fyrir 3.8% af herútgjöldum heimsins, Bandaríkin 35%. Þegar hertólahlutföllin eru þannig er huggun að heyrða það og sjá að Pompeo og Pentagon ætla að „hætta að vanrækja Ísland“. Eða hvað, VG?

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Nýjustu greinar

Arabískar nætur   

Arabískar nætur   

Katjana Edwardsen

Eitt eigum við öll sameiginlegt: við búum í ríkjum – öðru nafni löndum – sem flest hver njóta alþjóðlegrar viðurkenningar (sum að vísu aðeins …

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Evrópa í krísu – tengist það ekki ESB?

Tjörvi Schiöth

Mótmælin, óeirðirnar og ófriðurinn í Evrópu eru enn eitt dæmið sem sannar að það sem ESB-sinnar sögðu fyrir þessar kosningar 29. ágúst—allur fagurgalinn, gylliboðin …

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Þetta er verkaskipting – ekki „fráhvarf frá Úkraínu“

Billy Bob

Bandarískt „fráhvarf frá Úkraínu“ er lygi. Þetta er verkaskipting. Ákveðinni frásögn er nú haldið stíft að okkur. Að Trump sé að „hverfa frá“ Úkraínu. …

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Kúbverskur hermaður sem lifði af árás Trumps í Caracas: „Þeir vissu hvar allt var“

Cuba en Resumen

Gustavo Petro reitti fulltrúa ríkisstjórnar Venesúela til reiði með því að vísa til greinar sem birtist í kúbverska miðlinum Resumen Latino þann 6. október. …

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Þrjú höfuð eru betri en eitt

Sæþór Benjamín Randalson

Þegar þing ASÍ kemur saman í október munu fulltrúar taka fyrir tillögu sem við fyrstu sýn virðist vera mál er snýr að skipulagslegri lagfæringu. …

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum deginum

Billy Bob

Þriðja heimsstyrjöldin tekur á sig mynd og stigmagnast með hverjum degi sem líður. Mikilvægt er að skilgreina skýrt og ótvírætt öflin á bak við …

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.