Vestræn afstaða gegn Íran eftir einni forskrift
—

Í fréttaflutningi og yfirlýsingum þjóðarleiðtoga á Vesturlöndum, vegna árása Ísraels og Bandaríkjanna, afhjúpast ýmislegt. Fjölmiðlar keppast við að segja okkur sem mest um árangur Ísraela en sem minnst um gagnárásir Írans sem hafa valdið miklu tjóni.
Jafnframt er því aldrei haldið til haga að það voru Ísraelar sem stungu Íran í bakið, í miðjum samningaviðræðum. Ábyrgðin er sett á herðar Írans.
Þetta sést hvað skýrast í yfirlýsingum leiðtoga Vesturlanda. Þeir segja að Íran verði að snúa aftur að samningaborðinu, auk þess sem það sé frá Íran sem heiminum stafar „ógn”.
Það merkilegasta er þó hversu líkar þessar yfirlýsingar eru. Það er kannski of vægt til orða tekið, því í sumum tilfellum er verið að nota sömu setningarnar. Hér má sjá yfirlýsingar forsætisráðherra Bretlands og Kanada og utanríkismálastjóra ESB. Þau gefa góðan þverskurð.

Heyrum tvo evrópska lykilmenn í viðbót:
„Iran must never acquire the bomb“ „Iran is the principal source of regional instability” – Ursula von der Leyen
„Iran must never be allowed to possess nuclear weapons” – Friedrich Merz kanslari
Forsætis- og utanríkisráðherrar Íslands virðast hafi fengið senda sömu línu og aðrir foringjar á Vesturlöndum, því þær segja nákvæmlega það sama. Allir kyrja sömu möntruna um að það sé Íran sem sé ógn við heimsbyggðina.
„Við verðum að hafa hugfast kannski rótina að þessu og hún er sú að ætlun Írana að koma sér upp kjarnavopnum, það er einfaldlega ógn við öryggi, ekki bara í Miðausturlöndum heldur ógn við frið í heiminum.“ – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
„Framganga Írans og ásælni stjórnvalda í Teheran í kjarnavopn hefur verið slík á undanförnum árum að það væri augljóslega ógn við heimsfriðinn ef þeir næðu að þróa slík gereyðingarvopn. Þessi stefna Írans hefur vissulega grafið undan stöðugleika á svæðinu…” – Kristrún Frostadóttir
Hinn samstillti málflutningur setur ógnina og ábyrgðina í deilunni á Írani og tekur þannig grundvallarafstöðu með árásaraðilunum: Ísrael og Bandaríkjunum. Í einum kór. Og Ísland er með.