Óvinur ríkisins – Enemy of the state?
—
Jacques Baud er svissneskur greinandi alþjóðastjórnmála sem Evrópusambandið hefur bannfært vegna skoðana hans, gert ókleift að ferðast innan ESB, lokað á bankareikninga hans og fryst eigur. Allt þetta vegna „rangra“ skoðana um Úkraínustríðið.
Jacques Baud, var opinber starfsmaður, gegndi yfirmannsstöðu í svissneska hernum og þekkir vel til í Úkraínu. Baud er búsettur í Brussel en getur sig þar hvergi hrært og meinað um allar lífsbjargir.
Vandinn sem Evrópa glímir við, segir Baud, eru vanhæfir stjórnendur, þá skorti þekkingu og dómgreind til þess að taka skynsamlegar og raunhæfar ákvarðanir. Það hafi þeir ekki gert í Úkraínustríðinu, þess vegna sé það að tapast. En þetta má greinilega ekki segja.

Ein bóka Jacques Baud um Úkraínustríðið
Nánar segir Baud að gengið hafi verið út frá því að Rússland myndi hreinlega hrynja á fyrstu mánuðum stríðsátaka og hefðu NATÓ ríkin í reynd sóst eftir átökum fyrir bragðið. Þetta hafi verið kolrangt mat og nú sitji vestræn ríki uppi með hundruða milljarða skuldbindingar um að pumpa inn í stríðsreksturinn og afleiðingar stríðsins í Úkraínu.
Svissneska ríkisstjórnin hafi viljað nálgast ESB en sé nú að vakna upp við þann vonda draum að almenningur sé að gerast fráhverfari slíku faðmlagi. Þessir tilburðir ESB til þess að hefta skoðanafrelsi sýni grímulaust valdakerfi að verki.
Hér að neðan fylgja tenglar á fjögur viðtöl: fyrst er viðtal Nima R Alkhorsrid við Jacques Baud, síðan viðtöl við Scott Ritter, Glen Diesen og Pepe Escobar um þetta sama efni [bannfæring vegna skoðana].
Scott Ritter, er fyrrum stjórnandi í Bandaríkjaher, síðar eftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna, sem m.a. var falið að finna upplogin gereyðingarvopn í Írak. Munu augu hans þá hafa opnast fyrir misbeitingu valdsins. Um Ritter segir Wipipedia:
William Scott Ritter Jr. is an American former United States Marine Corps intelligence officer, former United Nations Special Commission weapons inspector, author, and commentator. Ritter was a junior military analyst during Operation Desert Storm.
Wikipedia komst fram úr því að segja hér heiðarlega frá. Svo er hins vegar ekki þegar kemur að norska fræiðmanninn Glen Diesen. Hann er norskur háskólakennari sem hefur getið sér gott orð fyrir rannsóknir sínar og framlag sitt til umræðu um alþjóðastjórnmál. Hann hefur verið gagnrýninn á stefnu BNA, NATÓ og Evrópusambandsins og er fyrir vikið sagður vera hallur undir Rússa enda sé hann tengdur norska stjórnmálaflokknum Fred og Rettferdighed. Ekki veit ég hvort þessi tengsl eru raunveruleg að örðu leyti en því að hann hafi verið fenginn til þess að tala á fundum sem sá flokkur hefur haft aðkomu að. Og sá flokkur lagðist vissulega gegn vopnasendingum til Úkraínu og hefur beitt sér í þágu friðsamlegra lausna. Bingó: Erindreki Rússa!!!
Pepe Escobar er víðkunnur brasilískur blaðamaður sem býr hér og þar, ekki síst í São Paulo, París, Bangkok eða Hong Kong.
Ítarlegt viðtal við Jacques Baud:Col. Jacques Baud: Is the West Finally Waking Up?
Viðtal við Scott Ritterhttps://www.youtube.com/watch?v=uO2J48gU2qU (see from 20:17 minutes)
Viðtal við Glen Diesen https://www.youtube.com/watch?v=kYWm-oSVKLs (see from 15:45 minutes)
Viðtal við Pepe Escobar https://www.youtube.com/watch?v=r30E28A1ajg (see from 6:50 minutes)
Birtist áður á heimasíðu Ögmundar https://www.ogmundur.is þann 31. desember







