Í Reykjavík: Val um tvær stefnur
—

Vésteinn Valgarðsson
18. maí, ’18
Vésteinn Valgarðsson
Vésteinn Valgarðsson

Í grófustu dráttum má skipta pólitík hægristefnu: einstaklingshyggju, markaðshyggju, hagsmuni auðvaldsins – og vinstristefnu: félagshyggju, samneyslu, hagsmuni alþýðunnar (okkar). Annað má næstum kalla núansa.

Eftir að hefðbundnu vinstriflokkarnir misstu sósíalismann og fótfestuna, hefur þá rekið æðilangt til móts við auðvaldið. Svo mikið að sumir halda að hægri og vinstri séu úrelt hugtök. Það er auðvitað misskilningur sem stafar af villuráfi borgaralegu vinstriflokkanna, og sést best á að fjöldi vinstrisinnaðs eða fátæks fólks púkkar ekki upp á þá.

Það er hollt að muna grófu drættina í pólitíkinni. Hvað sem fólki finnst um núverandi borgarstjórnarmeirihluta, er ljóst að hægrivalkostirnir þýða meiri einstaklingshyggju, markaðshyggju og hagsmunagæslu fyrir auðvaldið. Það liggur í hlutarins eðli að ef íhaldið leiðir næsta borgarstjórnarmeirihluta, þá mun samneysla á borð við skóla eða strætó sitja á hakanum, stuðningur við fátæka minnka, stórburgeisum hleypt með lúkurnar í sameiginlega sjóði og eignir. Umferð og svifryk aukast. Þetta er staðreynd.

En hvað með núverandi meirihluta, sem hefur leyft húsnæðisverði að snarhækka á kjörtímabilinu, fjölda útigangsmanna að tvöfaldast (til viðbótar við tvöföldun á síðasta kjörtímabili), fjársvelti leikskólana, heykst á að láta strætó fara á réttum tíma eða bjóða næga búsetu fyrir fatlaða eða aldraða… – getur alþýðufólk í alvörunni ætlast til að áframhaldandi stjórn þeirra verði öðruvísi en verið hefur? Eða verður okkur enn og aftur lofað sömu íbúðunum eftir 4 ár, eins og fyrir 4 árum síðan??

Núverandi meirihluti hefur pólitískt efni á meiri félagshyggju. En mun ekki velja hana ótilneyddur.

Alþýðufylkingin býður nú fram til borgarstjórnar í annað sinn. Okkar erindi í pólitík er aðeins eitt: hagsmunir alþýðunnar. Okkar metnaður stendur til að vera verkfæri alþýðunnar. Við munum aldrei taka þátt í markaðsvæðingu innviðanna, niðurskurði á velferð eða manngerðum húsnæðisskorti sem hækkar verðið. Við gætum tekið þátt í að mynda borgarstjórnarmeirihluta, en það kostar meira en þægilega stóla. Hann kostar mikla hækkun framfærslu og lægstu launa. Ókeypis verði strætó. Húsnæðiskostnaður lækki með mikilli nýbyggingu á lægsta mögulega verði og félagslega reknu lánakerfi. Og að götur verði sópaðar oftar, til að minnka svifrykið.

Atkvæði til Alþýðufylkingarinnar tryggir ekki árangur eitt og sér: Árangur stendur og fellur með virkni fjöldans – þunga stéttabaráttunnar. Alþýðufylkingin er reiðubúin. Val Reykvíkinga stendur um tvennt: Auðvaldið og markaðurinn leika lausum hala, nema alþýðan taki í taumana og stuðli að félagslegum lausnum.

Atkvæði greitt R-lista Alþýðufylkingarinnar er lóð á vogarskál félagslegra lausna, baráttu fyrir jöfnuði og auknum lífsgæðum almennings.

Stuðningsfulltrúi og varaformaður Alþýðufylkingarinnar er í 3. sæti á framboðslista til borgarstjórnar

þessi grein birtist áður á Visir.is föstudaginn 11. maí

Notaðu vinstri og hægri örvatakkana til að fletta greinum.

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Ísland gerði rétt í að segja „nei“ við ESB

Thomas Fazi

Á laugardaginn höfnuðu Íslendingar tillögu ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið: 52,8 prósent kusu gegn tillögunni en 47,2 prósent með henni. …

Úkraína átti aldrei séns

Úkraína átti aldrei séns

Andri Sigurðsson

Þessi gagnrýnislausi stuðningur við stríð Bandaríkjanna og vesturlanda gegn Rússum á allur eftir að koma harkalega í bakið á Illuga Jökulssyni, Jóni Gnarr, Smára …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

Móðir allra hernaðarlegra glappaskota

John J. Mearsheimer

Þann 28. ágúst 2026 var ég í þættinum „The Chris Hedges Report“ og ræddi þar aðallega um yfirstandandi hörmungar í Íran. Chris vildi fá …

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

ESB: réttindi launafólks víkjandi gagnvart markaðsfrelsinu

Einar Ólafsson

Þann 22. ágúst s.l. birtist hér á Neistum grein eftir Jón Ferdínand Estherarson, „Niðurbrot verkalýðshreyfingarinnar innan ESB“.  Hann telur þar upp nokkrar tilskipanir og …

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Af hverju Íransstríðið mun dragast á langinn

Chris Hedges

Í virtu og vinsælu hlaðvarpi sínu The Chris Hedges Report….  ræðir Chris Hedges við breska fyrrverandi diplómatann og rithöfundinn Alastair Crooke, sem hefur mikla …

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Til íhugunar um ESB klúbbinn

Ögmundur Jónasson

Hér að neðan er upptaka af fundi í Safnahúsinu í Reykjavík hinn 8. ágúst síðastliðinn. Þar var fjallað um vígvæðingu Evrópusambandis og misbeitingu valds. …

Frá velferð til vígvæðingar

Frá velferð til vígvæðingar

Ólöf Benediktsdóttir

Greinin fjallar um þær breytingar í átt til hervæðingar sem hafa orðið á hinni áður tiltölulega friðsælu Evrópu á undanförnum árum, með því að …

Nýjustu greinar

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Grænlandssamningur og sókn Bandaríkjanna á Norðurslóðum

Þórarinn Hjartarson

Marco Rubio kom til Íslands í gær (mánudag) og verður fram að hádegi í dag. Hann er á Evrópureisu sem öll gengur fyrst og …

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ákall Juliiu Mendel um frið í Úkraínu

Ólöf Benediktsdóttir

„Þó þið séuð helstu gáfumenni Evrópu, hafið séð tölur og útreikninga, myndir og áætlanir, lesið bækur og greinar, vitið þið samt ekkert um þetta …

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Þjóðarhagsmunir – meira af 11. september

Katjana Edwardsen

Forseti eða forsætisráðherra (eða hver sá sem opinberlega stjórnar í landi) kann að búa yfir framúrskarandi eiginleikum, en einn eiginleiki sem slíkt fólk skortir …

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

„Staðgengill“ CIA: Hið sanna hlutverk Sádi-Arabíu í 11. september afhjúpað

Kit Klarenberg

Aldarfjórðungi eftir 11. september beinast spjótin að Sádi-Arabíu. Kit Klarenberg rýnir í dómsskjöl sem benda til að CIA hafi ráðið í það minsta tvo …

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Rannsóknir Elíasar Davíðssonar á efnahagsþvingunum

Jón Karl Stefánsson

Sá Íslendingur sem hefur unnið mesta vinnu í rannsóknum á efnahagsþvingunum, afleiðingum þeirra og meintum tilgangi er Elías Davíðsson. Greinar hans um efnið hafa …

Stóra núllið

Stóra núllið

Sólveig Anna Jónsdóttir

Uppgangur ysta hægrisins í Evrópu er afleiðing stjórnmála sem hafa brugðist vinnandi fólki. Hér á landi snýst umræðan um hallalaus fjárlög á meðan kjör …

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Engin þjóð hefur nokkru sinni greitt upp skuldir sínar

Ritstjórn

Michael Hudson (f. 1939) er bandarískur hagfræðingur og sagnfræðingur og einn fárra marxískra hagfræðinga á Vesturlöndum. Hann ólst upp í róttæku sósíalísku umhverfi Minneapolis, …

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

Herkví Jemens á Rauðahafi stöðvar olíuútflutning Sáda

The Cradle

Olíuútflutningur Sádi-Arabíu hefur stöðvast og engin skip konungsríkisins hafa farið úr Rauðahafi síðan Jemen náði yfirráðum yfir Bab al-Mandabsundi fyrir nokkrum dögum, eins og …

Leita

Notaðu örvatakka til að velja niðurstöðu og Enter til að opna. Escape lokar leitinni.

Sláðu inn leitarorð.