Ég styð fyllilega kæru Julian Assange til yfirvalda í Svíþjóð
—
Ég styð fyllilega kæru Julian Assange til yfirvalda í Svíþjóð þar sem hann krefst þess að lögregla frysti greiðslur upp á 11 milljónir sænskra króna (um 150m ISK) til nýja friðarverðlaunahafa Nobels, Maríu Corrinu Machado, á meðan meint lögbrot eru rannsökuð í tengslum við þessa verðlaunaafhendingu. Þó að Nóbelsnefndin í Osló ákveði friðarverðlaunahafann hafa Svíar ábyrgð á umsýslu fjármuna tengdum arfi Alfred Nóbels en veiting fjármuna til Machado er gróflega á skjön við markvið friðarverðlaunanna sem hann skráði skýrt í erfðaskrá. Það kemur einnig til álita að lög séu brotin sem banna fjárstuðning við óhæfuverk og stríðsglæpi þegar ljóst er að Machado hefur gerst klappstýra yfirvofandi loftárása og ef til vill innrásar Trumpstjórnarinnar í Venesúela. Hún hefur þegar klappað upp mannskæðar árásir á fiskibáta undan ströndum landsins.
Það er óbærilega vitskert að veita friðarverðlaun Nóbels til Machado og vel má rökstyðja að með því atferli hafi norska Nóbelsnefndin hraðað atburðaþróun og skapað réttlætingarrök fyrir Trump að ráðast á landið.
Miðað við sturlaðar yfirlýsingar Bandaríkjaforseta fyrir rúmum sólarhring gæti verið stutt í allsherjarárás á Venesúela – en þar eru mestu olíubirgðir heimsins (ef menn velkjast í vafa um raunverulega ástæðu ofstækisins).
Þeir sem gagnrýndu ólögmæta innrás í Írak 2003 voru gjarnan spurðir heimskulega og með þjósti hvort þeir styddu harðstjórann Saddam Hussein. Nú þegar sú saga endurtekur sig vona ég að fólk falli ekki í þá gryfju heimskunnar að nefna Maduro til sögunnar í þessu samhengi.
Hér er tengill á kæruna







