Barnaníð, pólitík, morð og genarannsóknir: Úkraínutenging Epsteins

Jón Karl Stefánsson
5. febrúar, 2026

Þrátt fyrir að meirihluta þeirra gagna sem Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur lagt hald á í tengslum við rannsókn á málinu tengdu Jeffrey Epstein sé ritskoðað og að meira en helmingur gagnanna hefur enn ekki verið birtur, er margt að finna af makalausum upplýsingum í því sem þó hefur verið birt. Sú mynd er útbreidd af þessu máli að einungis um hafi verið að ræða kynlífsþjónustu fyrir ríka dónakarla, og reyndar kerlingar, á hinni margfrægu eyju. En, nei, það sem viðgengist hefur hjá þessu valdamesta fólki heims er ekki einungis mun grófara hvað varðar níðingshátt, heldur sýna þau hversu gríðarlega mikil ítök fólk eins og Epstein og samstarfsfólk hans hefur á heimsmálin.

Hér verður tánni aðeins dýft í þetta fen sem Epstein málið er, einskonar sýnishorn. Það sem áhersla er lögð á hér er að mesta vægið í þessum skjölum liggur í því að þau gefa innsýn í hversu virk tengsl þessi maður, og þau öfl sem stóðu að baki honum, hafa í viðskipta- og stjórnmálalíf hinnar vestrænu stjórnmálaelítu. Það er ljóst á þessum skjölum að Epstein var að vinna á vegum ísraelsku leyniþjónustunnar, Mossad, og hafði einnig sterk tengsl við hina bandarísku (sjá m.a. skjal nr 00090314). Auk þessa sagðist hann beinlínis starfa fyrir hina ofurvaldamiklu fjölskyldu, Rotschilds (sjá skjal nr 00832976). Tengingar Epsteins náðu víða og hér verður ekki mögulegt að lista nema lítið brot af þessu valdaneti. Eftirfarandi dæmi frá Úkraínu er nánast valið af handahófi

Líftæknitilraunastofur og klónun

Í tölvupósti EFTA02625486 ræðir maður að nafni Bryan Bishop um að hann ætli að halda áfram með músatilraunir sínar í rannsóknarstofunni sinni í Úkraínu. Tilgangurinn sé að gera tilraunir með að breyta sæðisfrumum úr fólki. Jeffrey svarar honum þar „Mér líkar við þessar tilraunir með að setja manneskjufóstur í líkama. Bíðum í 9 mánuði; frábær endir.“

Samtal þessara herramanna heldur áfram. Í tölvupósti frá júlí 2018 býður þessi Bryan Bishop Epstein á fund sem ber heitið „Hönnunarbörn“ (Designer babies). Um mánuði síðar koma ný tölvupóstsamskipti milli þessara manna (skjal 01003966), þar sem segir meðal annars:

Í viðauka þessa tölvupósts er skjalið sem þú baðst um, það er reikniörkin fyrir „notkun fjármagns“ fyrir „hönnuð börn“ og „manneskjuklónun“ fyrirtækið. Þetta kemur okkur út úr þessum sjálf-fjármagnaða „bílskúrs líffræði“ fasa yfir í fyrstu fæðingu hannaðs barns, og mögulega einnig manneskju-klón, innan 5 ára. Þegar við höfum náð okkar fyrstu fæðingu mun allt breytast og heimurinn verður aldrei hinn sami, né heldur framtíð mannkyns. …“.

Allt þetta fer fram í tilraunastofum í Úkraínu. Þó ekki verði fullyrt um nákvæmlega hvað fólst í tilraunum eins og þeim sem Epstein og félagar hans stóðu á bakvið, þá verður að setja þær í samhengi við það sem komið hefur í ljós með einmitt tilraunastofur sem þessar í Austur Úkraínu.

Árið 2008 greindi BBC frá því að komist hefði upp um að nýfædd börn, þá bæði andvana börn en einnig heilbrigð, hefðu kerfisbundið verið hlutuð í sundur og líffæri tekin úr þeim til að fá lífefni fyrir stofnfrumurannsóknir- og viðskipti. Bæði úkraínsk yfirvöld og breskir sérfræðingar hefðu rannsakað málið og söfnuðu sönnunargögnum um að þetta hefði viðgengist árum saman.

Árið 2022 greindi svo herforinginn Shukrat Adilov frá því í rússneskum fjölmiðlum að hersveitir þjóðernissinna sem börðust gegn aðskilnaðarsinnum og Rússum hefðu kerfisbundið myrt börn í austurhéruðum Úkraínu og fjarlægt úr þeim líffærin í gróðaskyni. Erfitt er að meta sannleiksgildi þessa, en ljóst er að viðskipti með líffæri á svarta markaðinum getur verið gróðavænleg iðja. Hin breska the Guardian greindi frá því árið 2012 að þá væri áætlað að a.m.k. 10 þúsund líffæri væru seld ár hvert á svarta markaðinum á heimsvísu. Þessi viðskipti gæfu mikið í aðra hönd og til væru dæmi um að ríkir viðskiptavinir borguðu meira en 100 þúsund bandaríkjadali fyrir að komast í heilbrigð líffæri. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um eiturlyf og glæpi (UNODC) hefur áætlað að ólögleg viðskipti með líffæri skili árlega á milli 840 milljónum til 1,7 milljörðum Bandaríkjadala.

Mansalshringur með börn

Þessi tengsl Epsteins við vafasamar tilraunastofur með manneskjur í Úkraínu eru langt frá því að vera fyrstu tengsl hans við landið. Hann hafði árum saman stundað með samstarfsfólki sínu mansal á börnum, sérstaklega barnungum konum. Fjöldi tölvupósta tengjast þessu. Meðal tengiliða Epsteins í Úkraínu er manneskja sem kallast „Masha“, en um 121 tölvupóstanna eru til þessarar manneskju.

Í tölvupósti frá því í október 2012 ræðir Epstein t.a.m. um ónafngreindan tengilið í Úkraínu sem getur útvegað honum um 400 stelpur í gegnum fyrirsætufyrirtæki og giftingarþjónustu. Tölvupóstinum fylgja ljósmyndir (sem hafa verið ritskoðaðar) af stúlkum, rétt eins og um pöntunarlista væri að ræða. Fjöldi tölvupósta tengjast slíkum „viðskiptum“ með fátæk börn. Enginn viðskiptavina Epsteins hefur hins vegar verið sóttur til saka. Áhuginn á örlögum fátækra barna er ekki meiri en það.

Zelenskyi og úkraínsk stjórnmál í brennidepli

Í löngu bréfi greinir ónafngreind kona frá því að forseti Úkraínu, sem hún kallar reyndar Zylenski, taki þátt í mansalshring. Hún nefnir þar einnig aðra stjórnmálamenn, t.d. Cyril Ramaphosa, forseta Suður Afríku, Rishi Sunak og Keir Starmer, sem meðseka. Ekki skal fullyrt um sannleiksgildi þessara frásagna hér, en önnur skjöl sýna að Epstein hafði sérstakan áhuga á bæði Úkraínu og Rússlandi. Honum líkaði illa við Pútín og vildi sjá borgarastyrjöld og valdaskipti í landinu. Í einu bréfanna, nr 01212938, greinir hann frá því að Zelenski hafi leitað til hans um hjálp. Hann bætir því við, í samtali við ónafngreindan einstakling, að Pútín telji Zelenski vera undir stjórn Ísraela. Í seinni bréfasamskiptum er því lýst hvernig stjórnmál séu skrípaleikur í landinu og hægt sé að græða gríðarmikinn pening þar.

Epstein og „A., de Rotschild“ áttu í miklum bréfasamskiptum sem tengdust Úkraínu. Í einu bréfanna, merkt 01932408 segir Rotschild „Ég sakna samtalanna okkar og vona að allt sé í lagi hjá þér. Verð heima á morgun, ertu laus? Og ræðum Úkraínu“.

Þráhyggja fyrir Pútín og stjórnarskiptum í Rússlandi

Epstein virðist hafa haft sérstakan pólitískan áhuga á því að grafa undan Pútín í Rússlandi. Mikill fjöldi gagna í Epstein skjölunum ber vitni um þetta. Sem dæmi koma fram í skjali nr EFTA01994271 samskipti milli Epstein og manns að nafni Boris Nicolic árið 2012 þar sem segir:

Við ættum að fara saman fljótlega til Rússlands og þú ættir að hitta vin minn Ilya Ponamerev. Hann er meðlimur í Dúmunni og hann og Alyona (mjög gáfaða og sæta kærastan hans) eru helstu skipuleggjendur uppreisnarinnar gegn Pútín… þetta er mjög hættulegt – ert þú með hugmyndir um hvernig er hægt að hjálpa honum“.

Epstein reyndi meðal annars að nota tengsl sín við Thorbjørn Jagland, fyrrverandi formanni Verkamannaflokksins í Noregi og yfirmaður norsku nóbelsverðlaunanefndarinnar til margra ára, til að komast að Pútín. Í einu bréfanna (nr. 00960723) til Jagland, sem var fastagestur á eyju Epsteins, segir:

Ég veit að þú átt fund með Pútín þann tuttugasta. Hann er fullur örvæntingar í ósk sinni um að koma á viðskiptum við Vesturlönd… ég er með lausnina fyrir hann… ef það hentar þér, þá myndi ég vilja hitta hann einhvern tímann í júní og útskýra lausn mína… ég held að þetta væri gott fyrir þín markmið. Að skipta út einhverju sem hann vill fyrir eitthvað sem þú vilt“.

Samkvæmt Sky news gerði Epstein fjölda slíkra tilrauna til að ná í Pútín. Á hljóðupptökum heyrist til dæmis hvernig hann ræðir við samstarfsmann um hvernig væri hægt að lokka hann í „hunangsgildru“, sem virðist hafa verið helsta herbragð Epsteins. En þetta var án árangurs.

Kanínuhola

Þetta er einungis brot af því sem hægt er að lesa úr þessum Epsteins skjölum sem þó hafa verið birt. Gögnin sýna sterk tengsl við leyniþjónustu Ísraels, við gríðarlega áhrifamikið fólk í viðskiptalífinu, þ.m.t. allra ríkasta fólk heims. Þarna er rætt um málefni eins og hvernig Davos (samráðsvettvangur einkafyrirtækja á alþjóðavettvangi) getur tekið við hlutverki Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt löggæslu og eftirlitsverk, hvernig koma megi á stjórnaskiptum í ýmsum löndum, og svo mætti lengi telja. Afskipti hans af málefnum Úkraínu er einungis eitt margra merkja um það að málið ristir miklu dýpra en hunangsgildruverkefni, eins og áður hefur verið haldið fram. Þetta sýnir hvernig heimsstjórnmálin fara fram bakvið luktar dyr, og hvers konar fólk það er sem situr efst á þessum pýramída sem við búum í.